Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Qupperneq 27
Jónína Einarsdóttir og Guðbjörg Linda Rafnsdóttir
27 ..
for volunteers were analysed. The interviewees agreed on respecting the
labour market rules, independent of whether the volunteers were domes-
tic or foreign. The context of voluntary work was seen as necessary and
acceptable to disrespect principles of collective agreements, competition,
and professional knowledge if it would benefit society. The idea of foreign
volunteers taking paid jobs from local people was rejected. The intervie-
wees agreed that voluntary work is vital to rural areas and a prerequisite
for the communities.
KEYWORDS: voluntary work – rural areas – labour market
Inngangur
Í grein um íslenskar landsbyggðir og byggðafélagsfræði bendir Þóroddur Bjarnason (2019) á að
atvinna við hæfi og góð laun séu mikilvæg lífsgæði sem spá fyrir um búsetuánægju, búsetufyrirætl-
anir og búferlaflutninga. Jafnframt gæti atvinnumissir leitt til búferlaflutninga frá svæðum þar sem
atvinnulífið er einhæft og framboð sambærilegra starfa takmarkað. Aðgengi að menningu og afþrey-
ingu, heilbrigðisþjónustu og verslun skipti einnig verulegu máli. Í skýrslu á vegum Byggðastofnunar
frá árinu 2019 (Þóroddur Bjarnason o. fl., 2019) kemur fram að atvinnutækifæri séu mikilvægasta
einstaka ástæða þess að fólk segist ætla að flytja búferlum. Í Byggðaáætlun fyrir árin 2018–2024 er
lagt til að verkefnið Brothættar byggðir haldi áfram (Stjórnarráð Íslands, e.d.). Markmið verkefnis-
ins, sem hófst árið 2012, er að sporna við fólksfækkun og styrkja atvinnulífið í fámennum byggðar-
lögum með einhæft atvinnulíf. Mælst er til þess að íbúarnir hugleiddu framtíðarmöguleika heima-
byggðarinnar og að leitað yrði lausna á þeirra forsendum (Brothættar byggðir, e.d.). Byggðaáætlun
2018–2024 lýsir stefnu ríkisins í byggðamálum, sem felur í sér að „jafna tækifæri allra landsmanna
til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðarlaga um land allt. Sérstök
áhersla er lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf“
(Stjórnarráð Íslands, e.d).
Með ofangreint í huga er markmið rannsóknarinnar sem fjallað er um hér að skoða viðhorf íbúa
á svæðum sem hafa tekið þátt í verkefninu Brothættar byggðir til mögulegra áhrifa sjálfboðastarfa á
atvinnumál og uppbyggingu svæðisins. Við leitumst við að svara spurningunni: Efla sjálfboðastörf,
unnin af erlendum eða innlendum sjálfboðaliðum, byggðarlög sem tóku þátt í verkefninu Brothættar
byggðir, eða taka þau störf frá fólki sem vildi búa í byggðalögunum ef atvinnutækifæri væru fyrir
hendi? Við skoðum þetta m.a. í ljósi áherslna aðila vinnumarkaðarins um að banna skuli sjálfboða-
störf sem skekki samkeppnisstöðu á vinnumarkaði og feli í sér launaþjófnað. Með sjálfboðastörfum
er hér átt við þau störf sem eru unnin af erlendum eða innlendum einstaklingum, aðfluttum eða
heimafólki, án þess að fyrir þau fáist greitt samkvæmt kjarasamningum. Þessi skilgreining helgast
af umfjöllun verkalýðshreyfingarinnar og skilningi þátttakenda.
Þegar fjallað er um sjálfboðaliða á vinnumarkaði er oftar en ekki vísað til erlendra sjálfboðaliða,
sem hefur fjölgað mjög á Íslandi á undanförnum árum (Guðbjörg Linda Rafnsdóttir o.fl., 2019).
Þó reiða íslensk félagasamtök og heimamenn oft fram mikla sjálfboðavinnu í þágu nærsamfélags-
ins (Hrafnsdóttir og Kristmundsson, 2017; Steinunn Hrafnsdóttir, 2012; Steinunn Hrafnsdóttir o.fl.,
2017). Með auknum fjölda erlends starfsfólks á íslenskum vinnumarkaði, hafa aðilar vinnumarkað-
arins varað við félagslegum undirboðum og launaþjófnaði, sem erlent láglaunafólk þykir einkum
útsett fyrir. Aðilar vinnumarkaðarins hafa einnig fjallað um launaþjófnað í tengslum við sjálfboða-
vinnu, og gefið skýr fyrirmæli um að sjálfboðavinna við efnahagslega starfsemi og lögbýli standist
ekki kjarasamninga. Bændur, ferðaþjónustuaðilar, sveitarfélög og aðrir sem hafa ráðið sjálfboðaliða
í störf sem um gilda kjarasamningar hafa verið sakaðir um brot á kjarasamningum og frásagnir af
illri meðferð hefur ratað í fréttir (Guðbjörg Linda Rafnsdóttir o.fl., 2019). Á heimasíðu ASÍ er að
finna eftirfarandi texta: