Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Side 28

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Side 28
Sjálfboðastarf í Brothættum byggðum 28 .. Gera verður skýran greinarmun á ólaunaðri vinnu í efnahagslegri starfsemi annars vegar og ólaunaðri samfélagslegri vinnu (sjálfboðavinnu) hins vegar. Ólaunuð vinna við efnahagslega starfsemi, framleiðslu og sölu á vöru eða þjón- ustu á markaði (í hagnaðarskyni) oft í samkeppni við fyrirtæki í sömu atvinnu- starfsemi, felur í sér óásættanleg undirboð á íslenskum vinnumarkaði og stenst hvorki kjarasamninga né lög. Dæmi um efnahagslega starfsemi þar sem gjarnan finnst fólk í ólaunaðri vinnu skv. athugun ASÍ er fyrst og fremst við ýmiss konar ferðaþjónustu, nánar tiltekið vinnu á kaffi- og veitingahúsum, á gistiheimilum og hótelum, hestaleigum og við hellaskoðanir auk ýmiskonar blandaðra starfa á sveitabýlum og/eða við bændagistingu (ASI, e.d.). ASI ítrekar að ólaunuð vinna við efnahagslega starfsemi þýði að atvinnurekendur sem nota hana hagnist á kostnað samneyslunnar og skapi sér samkeppnisforskot á markaði. Auk þess njóti ein- staklingar sem eru í ólaunaðri vinnu ekki tryggingaverndar. Einarsdóttir og Rafnsdóttir (2020) benda á að skert samneysla og ósanngjarnt samkeppnisforskot geti haft þýðingu fyrir jaðarbyggðir en flest störf erlendra sjálfboðaliða eru einmitt í dreifbýli. Ekki er þó samkomulag um hvað teljist réttmætt sjálfboðastarf, sem veldur óryggi, einkum þeirra sem hafa áhuga á að ráða til sín sjálfboðaliða. Í yfirlýsingu frá Bændasamtökum Íslands og Starfsgreinasambandsinu árið 2017 er áréttað mikilvægi þess að sjálfboðaliðar gangi ekki í launuð störf en einnig er bent á að í landbúnaði sé löng hefð fyrir „vinnuframlagi vina og ættingja í mjög skamman tíma t.d. í göngum og réttum. Ekki eru gerðar athugasemdir við þau störf sjálfboðaliða enda byggi þau á langri venju og sátt hefur verið um“ (Bændablaðið 2017, 28.febrúar). Hagnýt þekking rannsóknarinnar felst því í að skilja hvaða áhrif sjálfboðastörf geti haft á samfélög jaðarbyggða, en skv. skýrslunni „Byggðafesta og búferlaflutningar“ geta sjálfboðastörf verið ástæða flutninga úr dreifbýlinu (Byggðastofnun, 2021). Hvaða þýðingu hefur það fyrir Brothættar byggðir, sem einkennast af atvinnuleysi heimafólks, en jafnframt árstíðabundnum skorti á vinnuafli, að sjálf- boðaliðar sinni þar störfum sem eru ekki launuð? Þannig veltum við fyrir okkur hvort sjálfboðaliðar styðji við jaðarbyggðir og taki þátt í verkefnum sem hefðu annars ekki verið framkvæmd, eða vinni gegn „heilbrigðari“ atvinnuuppbyggingu sem fer eftir reglum um kaup og kjör. Hér er áherslan á sjónarhorn heimafólks. Við höfum fjallað um hugmyndir og reynslu erlendu sjálfboðaliðanna annars staðar (Rafnsdóttir o.fl., 2020). Staða þekkingar Nokkuð hefur verið fjallað um áhrif erlendra sjálfboðaliða á nærsamfélög í fátækum löndum og oft bent á að sjálfboðaliðarnir hagnist mest, enda fá þeir uppfylltar eigin langanir í nýja lífsreynslu (Baumgarten, 2022; Wright, 2013). Oftast er um að ræða sjálfboðaferðamennsku (e. voluntoursim) en sú tegund ferðamennsku hefur aukist hvað hraðast í heiminum, þar sem ungt fólk ferðast og sér fyrir sér með sjálfboðavinnu gegn fríu fæði og húsnæði (Baumgarten, 2022). Þetta er einnig tilfellið á Íslandi. Erlend ungmenni sem koma til landsins sem sjálfboðaliðar virðast almennt líta á slíka vinnu sem ódýra og spennandi leið til að ferðast til landsins. Þau vinna margvísleg störf, að mestu ófag- lærð, en sem falla að jafnaði undir efnahagslega starfsemi. Stærsti hluti starfanna fer fram í dreifbýli (Rafnsdóttir o.fl., 2020; Guðbjörg Linda Rafnsdóttir o.fl., 2019). Ýmsar ástæður geta verið fyrir þessari þróun, svo sem aukið atvinnuleysi meðal ungs fólks í Evrópu (Powell, 2018; Rancew-Sikora og Skaptadóttir, 2016), aukin eftirspurn eftir sveigjanlegu vinnuafli (Deery og Jago, 2002) samhliða frelsisþrá ungs fólks og löngun þess til að kynnast nýjum stöðum og lifnaðarháttum (Dlaske, 2016; Lyons o.fl., 2012; McGloin og Georgeou, 2016; Wearing og McGehee, 2013). Mikilvægt er þó að hafa í huga að sjálfboðaliðar eru ekki eingöngu erlendir sjálfboðaferðamenn sem flakka um heiminn, heldur einnig heimafólk sem sinnir sjálfboðavinnu í sinni eigin heimabyggð, ýmist fyrst og fremst sér til ánægju eða af skyldurækni.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.