Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Síða 29

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Síða 29
Jónína Einarsdóttir og Guðbjörg Linda Rafnsdóttir 29 .. Líkt og á Íslandi, þá er sjálfboðavinna heimafólks í Bandaríkjunum algengari í dreifbýli en í þétt- býli, enda þykja lítil samfélög líklegri til að styðja við sjálfboðastarf og virkja auðlindir nærsam- félagsins (e. community resources) en borgarsamfélög (Paarlberg o.fl.,2021). Samkvæmt Paarlberg og félögum er auðveldara að fá fólk til að sinna sjálfboðastörfum í heimabyggð, ef byggðin væri einsleit hvað íbúasamsetninguna varðar. Þeim er það því áhyggjuefni að dreifbýli víðast hvar í heim- inum er að ganga í gegnum versnandi efnahag og lýðfræðilegar breytingar; hækkandi meðalaldur íbúanna, og minni einsleitni. Slík þróun geti breytt innbyrðis samskiptum íbúanna og getu þeirra eða áhuga á að sinna sjálfboðastörfum. Ólíkt þeirri umræðu sem mest hefur borið á hér á landi, þá telja þau að ástæða sé til að hafa áhyggjur af framtíð sjálfboðastarfa í dreifbýli, einkum í byggðarlögum sem hafa lítin aðgang að þjónustu hins opinbera og kalla eftir umræðu um leiðir til að halda uppi sjálfboðastörfum í dreifbýli. Rannsóknir Qvist og félagar (2019) sýna að þátttaka í sjálfboðastarfi er mikil í Skandinavíu, eink- um í Noregi og Svíþjóð og hafi jafnvel aukist á tímabilinu 1990–2010. Sjálfboðavinna á sér helst stað í íþróttastarfi og tómstundum, þó merkja megi aukningu í störfum sem tengjast velferðarmál- um. Meiri sjálfboðavinnu í Noregi og Svíþjóð samanborið við Danmörku megi skýra með dreifðari byggðum fyrrnefndu landanna. Þrátt fyrir meira atvinnuleysi í Bandaríkjunum og í Skandinavíu en á Íslandi, þá nefna hvorki Paarlberg og félagar (2021) né Qvist og félagar (2019) möguleg neikvæð áhrif sjálfboðastarfa á vinnumarkaðinn og að slík störf geti grafið undan tækifærum fólks til þess að fá launaða vinnu og þar með veikt nærsamfélagið. Fræðileg nálgun Markmið greinarinnar er að skoða viðhorf íbúa á svæðum sem hafa tekið þátt í verkefninu Brot- hættar byggðir til mögulegra áhrifa sjálfboðastarfa á atvinnumál og uppbyggingu svæðisins. Það er áhugavert vegna áherslu stjórnvalda á atvinnuuppbyggingu á þessum svæðum, og þeirrar skoðunar aðila vinnumarkaðarins að sjálfboðastörf geti verið birtingarmynd launaþjófnaðar. Til að skilja ólík viðhorf viðmælenda og fulltrúa aðila vinnumarkaðarins verður stuðst við tvær kenningar við grein- ingu gagnanna. Annars vegar kenningu um félagsleg samskipti (e. social exchange theory) og hins vegar átakakenningu (e. conflict theory). Þessar kenningar eru hvor um sig margþættar. Í greininni er fjallað um þann kjarna þeirra sem varpar ljósi á umfjöllun aðila vinnumarkaðsins um sjálfboðavinnu á Íslandi og viðbrögð viðmælenda okkar við henni. Kenningin um félagsleg samskipti hefur á síðustu árum verið mikið notuð innan félagsvísinda og sálfræði þar sem hegðun einstaklinga á vinnustöðum er skoðuð (Cropanzano og Mitchell, 2005; Ahmand o. fl., 2023). Þótt sjálfboðastörf teljist ekki til hefðbundinna starfa á vinnumarkaði, getur kenningin varpað ljósi á slík störf (Hallmann og Zehrer, 2016). Rætur kenningarinnar má rekja til þriðja áratugs síðustu aldar, til mannfræðingsins Malinowski (1922), en var þróuð áfram af fé- lagssálfræðingnum Homans (1958) og félagsfræðingnum Blau (1964). Kjarni kenningarinnar er að nær öll mannleg sambönd séu byggð á gagnkvæmni, sem felst í því að fólk sér hag í að gefa og þiggja. Svokölluð fórnar-nytjagreining (e. cost-benefit analysis) á sér stað, oftast óformlega, þegar einstaklingar leggja mat á fyrirhuguð samskipti og hvor aðili um sig metur gagnsemi samskiptanna. Ávinningurinn getur hvort sem er verið óhlutstæður (e. abstract) svo sem þegar um vináttu er að ræða, eða áþreifanlegur (e. concret), t.d. þjónusta, fæði eða húsaskjól. Mat á ávinningi er þó fremur af tilfinningalegum eða samfélagslegum toga en efnahagslegum (Ritzer og Stepnisky, 2014). Átakakenningin fjallar um hagsmunaátök, ekki síst á vinnumarkaði, vegna tvískiptingu hans í atvinnurekendur sem kaupa vinnuframlag annarra og launþega sem selja vinnuframlag sitt. Kenn- ingin er almennt rakin til skrifa Karls Marx og Friedrich Engels um stéttabaráttu við upphaf iðn- væðingar og tilhneigingu atvinnurekenda til að arðræna launþega (Edgell, 2012; Marx og Engles, 1972). Kenningin hefur þróast í takt við breytta tíma og hin síðari ár hefur sjónum ekki síst verið beint að slæmri stöðu ungs fólks á vestrænum vinnumarkaði, sem stendur frammi fyrir miklu at- vinnuleysi, óstöðugleika og óöryggri vinnu (Kalleberg, 2018). Samkeppni um störf hefur aukist í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.