Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 34

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 34
Sjálfboðastarf í Brothættum byggðum 34 .. Landbúnaður og heimilisstörf Þeir viðmælendur sem eru ekki bændur skiptust í tvo hópa þegar spurt var hvort það væri í lagi að bændur hefðu sjálfboðaliða. Annar hópurinn var tvístígandi og hafði fyrirvara. „En já, ungt fólk ætti að hafa kost á að vinna við þetta ef því langar. Tvístigandi þó“, svaraði viðmælandi sem þekkti vel til stöðu landbúnaðar. „Mér finnst ekki rétt að vinna lengi í sveit kauplaust, kannski fjórar vikur, en ekki moka skít endalaust“, sagði annar. Sá þriðji var hikandi: „Já, verkalýðshreyfingin hefur rétt að vissu leyti, en hafa líka farið offorsi. Það er munur að vinna á gistiheimili eða í dútli með bónda 4–5 tíma á dag og oft ekkert, og færð bílinn lánaðan [nefnir dæmi um slíkt]. Þarf þó að passa upp á þetta. Ég er beggja blands.“ Nokkrir svöruðu afgerandi að þeim fyndist það ekki brot á kjarasamningum að bændur hefðu sjálfboðaliða. Einn viðmælandi sagði: „Fólk getur kannski verið í þessu og finnst það í lagi til að ferðast“, og bætti við: „Hjá sumum er þetta kannski lífsstíll, held ekki sé hægt að banna þeim að vinna launalaust.“ Margir viðmælenda töluðu um heimilisaðstoð og landbúnaðarstörf eins og vinnu sem falli utan almenns vinnumarkaðar: „Gleymist að bændur reka fyrirtæki ... allir sem eitthvað vita segja að sauðfjárbúskapur borgi sig ekki nema hafa þúsund kindur.“ Fjárhagsstaða sauðfjárbúa væri erfið. Augljóst væri að það verða ekki til ný störf þótt bændur hafi ekki sjálfboðaliða. Einn bóndi ítrekaði: „Þetta er lífstíll ... hef ekki einu sinni laun fyrir sjálfa mig.“ Bóndinn sagðist alltaf upplýsa sjálfboða- liðana um að „það verða langir dagar en svo fáið þið frí á móti, að ég lánaði þeim bílinn og kæmi þeim í tengsl við fólk hringinn í kringum landið. ... Ég er viljug til að gera ýmislegt fyrir fólk sem er viljugt að hjálpa mér.“ Þessi bóndi þarf ekki að auglýsa lengur eftir sjálfboðaliðum, því það er alltaf einhver þeirra sem vill koma aftur. Fyrrverandi bóndi taldi samhjálp bænda viðgangast ennþá, „en fólk er svo fátt í sveitunum. Fjöl- skylda og vinir eiga erfitt með að vera í burtu frá vinnu í lengri tíma, eða hafa fjarlægst búskapinn og það eru fá börn í sveit nú til dags.“ Fækkun sauðfjárbúa getur aukið vinnuálag þeirra sem eftir eru eins og einn bóndinn benti á: „[Það] þarf að smala sama svæði og áður þótt nágranninn bregði búi.“ Sumir bentu á að sjálfboðaliðarnir ynnu óbeint gegn fólksfækkun til sveita á tímum þegar fólks- fækkun væri mikil og skortur á vinnuafli á álagstímum. Auglýsingum eftir sjálfboðaliðum til Íslands hefur fækkað á undanförnum árum. Ætla má að það sé vegna ásakana um að það sé launaþjófnaður af hafa sjálfboðaliða í efnahgslegri starfsemi. Við- mælandi sem hjálpaði vini sínum að auglýsa eftir sjálfboðaliða sagði: „Ég ráðlagði honum að biðja bara um aðstoð við heimilishald, ekki landbúnaðinn, vegna umræðunnar um launaþjófnað.“ Þessi ábending passar við niðurstöður greininga höfunda á auglýsingum frá HelpX og Workaway, sem sýnir fækkun í beiðnum um vinnu við sveitastörf og fjölgun eftir aðstoð við barnapössun, en al- gengast er að beðið sé um aðstoð við heimilisstörf. Einnig eru dæmi um að bændur taki fram í aug- lýsingunum að ekki sé beðið um aðstoð við búskapinn, bara heimilishald og barnapössun. Arðrán, gagnkvæmur greiði og samhjálp Viðmælendum var tíðrætt um afstöðu verkalýðshreyfingarinnar til erlendra sjálfboðaliða og þótti hún á köflum harkaleg. Þótt reynslan af sjálfboðaliðum væri almennt góð, þá væri fólk hikandi að auglýsa eftir þeim vegna umræðunnar. Einn viðmælandi setti auglýsingu á Workaway, „langaði að prufa“, en það liðu ekki margir dagar „og komið bréf frá ASÍ.“ Viðmælandi lét kyrrt liggja, „vildi ekki gera neitt óþægilegt.“ Verkalýðshreyfingin vaktar samkvæmt þessu tilteknar sjálfboðaliðasíður og bendir auglýsendum á að um viðkomandi störf gildi kjarasamningar. Þegar spurt var hvort erlendir sjálfboðaliðar væru arðrændir útilokuðu tveir viðmælendur, báðir tengdir verkalýðsmálum, það ekki. Báðir höfðu þó mestar áhyggjur af aðbúnaði erlends verkafólks í byggðinni, en það væri ráðið til skamms tíma í gegnum starfsmannaleigur og óvíst hvort kjör þess stæðust kjarasamninga. Viðmælandi sem rekur fyrirtæki svaraði að það væru svartir sauðir í öllum atvinnuvegum. Annar sagði: „Ég ætla ekki að segja að aldrei sé arðrán“, það væri fólk sem hefði hætt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.