Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Side 35

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Side 35
Jónína Einarsdóttir og Guðbjörg Linda Rafnsdóttir 35 .. að taka sjálfboðaliða vegna ásakanna: „Skil að menn séu hikandi, umræðan var eins og bændur væru í þrælahaldi.“ Sumir bentu á að setja þyrfti skýrari ramma um sjálfboðaliða, vinnutíma og lengd tímabils, en „það er alltaf einhver sem misnotar stöðuna.“ Viðmælandi taldi að þar sem ekki væri skrifað undir samning gætu sjálfboðaliðar „labbað út þegar þeir vilja.“ Hjá honum hafði enginn farið en sumir hefðu beðið um framlengingu og aðrir komið aftur. Annar viðmælandi ítrekaði það sama og lagði áherslu á viðvarandi vinskap milli heimilis- fólks og sjálfboðaliða. Dæmi voru um að fjölskyldan hafi heimsótt fjölskyldu sjálfboðaliðans, m.a. í brúðkaupsferð. Eins kom fyrir að sjálfboðaliðar kæmu í heimsókn ásamt fjölskyldu, jafnvel í bón- orðsferð. Viðmælendi undirstrikaði að „þessir krakkar eru reyndar ekki bara krakkar ... þau mynda heilt samfélag, hitta hina sjálfboðaliðana.“ Sjálfboðaliðarnir bæru saman aðstæður sínar og redduðu nýjum stað þegar þau væru ósátt . Viðkomandi hafði tekið til sín tvo sjálfboðaliða sem voru ósáttir við dvöl sína hjá öðrum og nefndi að „sú fyrsta [sem kom til hennar] flúði reyndar hótelvinnu.“ Þegar spurt var hvort sjálfboðaliðar væru arðrændir svaraði einn viðmælenda: „Þetta er ekki það sem þau [sjálfboðaliðarnir] segja mér, þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um heiminn.“ Hann sagðist meðvitaður um að „þetta er misnotað eins og annað“ og nefndi langar vaktir á hótelum: „Já, þau eru flest matvinnungar og sum eru hörkudugleg. Þau koma til að læra og ekki hægt að ætlast til að þau kunni allt. ... Myndi aldrei borga, hef ekki efni á því en ef ég borgaði myndi ég ætlast til meiri vinnu.“ Viðmælandinn ítrekaði: „Ég geri margt með sjálfboðaliðunum, fer í leikhús og ferðir og fleira, er ekki bara vinna. Það er gaman“. Viðmælandi, sem hafði tekið nokkra erlenda sjálfboða- liða, sagði að það ætti ekki að leggja „þetta upp sem reiknisdæmi. Þú kynnist þeim, þau þér og þú græðir alltaf en kannski ekki peninga, mátt ekki hafa þær væntingar.“ Það fylgdi vissulega kostnaður að hafa sjálfboðaliða, fæði, húsnæði og afþreying, viðkomandi hefði lánað bíla og tveir þeirra höfðu bilað í höndum sjálfboðaliða. Nokkrir viðmælendur kvörtuðu undan því að það mætti ekki hjálpa lengur, allt gengi kaupum og sölum, líka vinnan. Við lifðum í kapitalísku hagkerfi þar sem aðeins væri leyfilegt að borga með pening – ekki gagnkvæmum greiða, mat, húsnæði, ferðalögum, eða öðru: „Nú er bann lagt á hjálp- semi. Sorgleg þróun fyrir hjálpfúst fólk.“ Afkoma byggðarinnar og sjálfboðavinna Það er almenn samstaða um að íbúafundir vegna þátttöku í verkefninu Brothættar byggðir hefðu verið góðir. Fyrsta hugsunin hefði þó verið: „Á nú að finna eitthvað nýtt og sniðugt fyrir okkur.“ Þátttakan var almenn og einkenndist af samheldni og mikilvægri hugmyndavinnu. Þó varð minna úr framkvæmdum en áform voru um að mati viðmælenda, en þó sett af stað áhugaverð verkefni. Sum ganga vel en önnur ekki. Gagnrýnt var að of lítill peningur hefði verið ætlaður til verkefnisins og til of skamms tíma, og að útgerðir fengju kvóta en ekki smábátarnir. Bent var á að nemendum fækkaði jafnvel þar sem íbúafjöldinn hefði aukist, einkum þá vegna erlendra starfmanna sem koma og fara. Mörgum fannst byggðin sín afskekkt og afskipt og stundum í auknum mæli við sameiningu sveitarfélaga: „Við verðum að standa eins og vargur og standa vörð um það sem okkur ber.“ Það væri áskorun að halda í verslun og aðra þjónustu, t.d. heilsugæslu. Það vantaði mannskap, húsnæði og fjölbreyttari störf. Fólk úr öllum byggðunum sem heimsóttar voru lögðu áherslu á að sjálfboðavinna heimafólks væri gríðarlega mikilvæg fyrir samfélagsleg verkefni og framkvæmd mikilvægra viðburða sem oft væru árstíðabundnir. Án sjálfboðavinnu væru engir menningarviðburðir, skemmtanir né aðrar uppákomur. Einn viðmælandi sagði: „Vinnuframlag okkar auðgar mannlífið.“ Sjálfboðavinna kvenfélaga ein- kenndist t.d. af vinnu að „góðum málefnum sem við samþykkjum sjálfar og hagnaður fer í eitthvað fyrir samfélagið.“ Svörin við spurningunni um hvers virði sjálfboðavinna væri fyrir viðkomandi byggð voru mörg. Bent var á að verkefnin væru mikilvæg, þau glæddu menninguna og væru í raun hjartslátturinn í samfélaginu: „Er kjötið utaná beinunum“; „Samfélagið væri fátækara, það skiptir máli í dreifðum byggðum að standa saman“; „Er sálin í bæjarlífinu“; „Ekki bara það sem gert er
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.