Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 48
Félagsþjónusta sveitarfélaga og viðbrögð við samfélagslegum áföllum
48 ..
Almannavarnaverkefni 2021–2022
Í maí 2021 samþykkti Héraðsnefnd Árnesinga fyrir hönd Almannavarna Árnessýslu (AÁ) sérstaka
fjárveitingu í þeim tilgangi að efla þekkingu, verkferla og færni starfsfólks velferðarþjónustu sveitar-
félaga í Árnessýslu vegna samfélagslegra áfalla og raskana sem þeim fylgja (Héraðsnefnd Árnesinga,
2021). Verkefnið snerist um að búa til námskeið fyrir starfsfólk félagsþjónustu sveitarfélaga í Árnes-
sýslu um viðbrögð við samfélagsáföllum ásamt því að vinna leiðbeiningar og gátlista í samræmi
við gagnreyndar vinnuaðferðir á þessu sviði. Höfundar þessarar greinar komu allir að verkefninu á
einn eða annan hátt. Í Árnessýslu eru átta sveitarfélög og er Árborg þeirra fjölmennast. Þátttakendur
sveitarfélaganna í verkefninu komu annars vegar frá Fjölskyldusviði Árborgar og hins vegar frá
Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings, sem á þeim tíma var rekin af sjö sveitarfélögum í Árnes-
sýslu. Í hópi þátttakenda var fagfólk með fjölþætta reynslu og menntun. Þau höfðu nýverið tekist á
við krefjandi aðstæður vegna Covid-19 og mörg höfðu reynslu úr störfum í kjölfar Suðurlandsskjálfta
og bankahruns árið 2008. Hér afmarkast umfjöllun greinarhöfunda við félagsþjónustuna í Árborg.
Undirbúningur
Í ágúst 2021 var haldinn fundur með þáverandi sviðsstjóra Fjölskyldusviðs Árborgar og þáverandi
deildarstjóra félagsþjónustu um fyrirkomulag þessarar vinnu með starfsfólki sviðsins. Umsjónar-
maður verkefnisins gerði grein fyrir tilgangi verkefnisins, sem var að draga úr tjónnæmi (e. vulne-
rability) og auka viðnámsþrótt/seiglu (e. resilience) íbúa, starfsfólks og samfélagsins í heild með því
að byggja á gagnreyndum aðferðum og reynslu á þessu sviði. Rætt var um markmið verkefnisins, að
efla þekkingu og færni starfsmanna velferðarþjónustu Árborgar til að takast á við almannavarnaást-
and og aðstæður þegar hefðbundnir verkferlar duga ekki til og daglegt líf notenda þjónustunnar, og
annarra íbúa, raskast eða stendur ógn af aðstæðum. Einnig voru kynntar hugmyndir um væntanlegar
afurðir verkefnisins. Annars vegar væru það sniðmát að námskeiði ásamt námsefni fyrir starfsfólk
sem félagsþjónustan fengi í hendur og gæti nýtt sér og lagað að aðstæðum hverju sinni. Hins vegar
væru verkferlar sem byggðu á daglegum verkefnum og skyldum félagsþjónustunnar og á faglegum
þekkingargrunni á sviði velferðar og vár. Niðurstaða þessa fundar var að þátttakendur Árborgar í
verkefninu yrðu deildarstjóri félagsþjónustu og teymisstjórar/forstöðumenn allra málaflokka í fé-
lagsþjónustu. Þá óskaði sviðsstjóri eftir að einnig yrðu þátttakendur af skólasviði og tóku þátt tveir
frá skólaþjónustu, einn frá leikskóla og einn frá grunnskóla.
Framkvæmd
Á tímabilinu 5. október til 16. nóvember voru haldnir þrír tveggja klukkustunda fundir með þátt-
takendum þar sem lögð var inn fræðsla um skipulag almannavarna og um fyrirliggjandi þekkingu á
sviði félagsþjónustu á tímum samfélagslegra áfalla. Þátttakendur miðluðu reynslu og upplýsingum
um sín daglegu störf og gerðu grein fyrir þeim leiðbeiningum og verkferlum sem þeir þekktu fyrir
störf sín á tímum samfélagslegra áfalla og raskana. Sett var upp sviðsmynd hamfara og unnið með
tímalínu viðbragða og aðgerða fyrir starfsvettvang þátttakenda. Þátttakendur hófu vinnu við gerð
verkferla og gátlista fyrir sínar starfseiningar.
Þann 15. desember var haldin „skrifborðsæfing“ þar sem þátttakendur voru við sín daglegu störf
og unnu út frá sviðsmyndum sem gefnar voru í upphafi dags. Bæjarstjóri og sviðsstjóri Fjölskyldu-
sviðs tóku þátt í æfingunni til þess að láta reyna á boðleiðir upp í efsta stjórnunarlag. Þátttakendur
fengu send afmörkuð verkefni í tölvupósti 5–6 sinnum yfir daginn, hver og einn út frá eðli síns starfs,
og unnu samkvæmt leiðbeiningum um verkferla og gátlista sem leitt höfðu af verkefninu fram að
því. Í lok dags var haldinn stuttur sameiginlegur fundur þar sem fólk sagði frá því hvernig því fannst
hafa tekist til með æfinguna.
Við framkvæmd verkefnisins var áhersla á gagnkvæma miðlun upplýsinga þar sem upplýsingar
og þekking starfsfólksins mótar niðurstöðu og afrakstur verkefnisins, enda er tilgangur þess að fé-
lagsþjónustan geti í framhaldinu verið sjálfbær um viðhald og þróun þessarar vinnu.