Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 58

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 58
Styrkur í smæðinni. Líðan og samskipti unglinga í smærri og stærri byggðalögum 58 .. somatic complaints among adolescents in the capital area compared to other regions. Girls reported more complaints than boys, and older ado- lescents more than their younger counterparts. Furthermore, lower family affluence was associated with a higher frequency of complaints. While a positive correlation was observed between more frequent complaints and a higher number of internet friends, interaction revealed that internet friendships appeared to benefit adolescents in the West and North more than their counterparts in the capital area. The findings underscore the significance of considering adolescent’s social settings when formulating interventions to improve their well-being. KEYWORDS: Settlements – Well-being – Adolescents Inngangur Líðan unglinga hefur verið undir smásjánni og benda rannsóknir til að henni fari hrakandi. Litið er til ýmissa samfélagsbreytinga 21. aldar sem mögulegra sökudólga en ekki er til einhlítt svar við því hvað veldur þessari þróun (sjá t.d. Ársæl Arnarsson, 2019). Eitt af því sem hefur lítið heyrst af í slíkum vangaveltum er hvort tegund búsetu og nánasta samfélag sem unglingurinn býr í, kemur þarna við sögu. Rannsóknir sem beinast að lífsgæðum og heilsu í borgarsamfélögum og þéttbýli í samanburði við strjálli byggðir eða fámennari bæi líta til þátta, svo sem streitu, umhverfis og náttúru, stjórnarfars og stöðu einstaklings í samfélagi (Krefis o.fl., 2018). Mengun, þéttleiki byggðar, lélegur húsakostur, streita, hraði í samfélaginu og félagsleg einangrun geta dregið úr lífsgæðum og vellíðan í borgarsamfélögum (Boraita o.fl., 2022). Í strjálbýli getur til dæmis flóknara aðgengi að heilbrigðis- og félagsþjónustu dregið úr lífsgæðum en einnig ef aðgengi að skólum eða atvinnutækifærum er af skornum skammti (Prochaska o.fl., 2020). Erlendum rannsóknum á heilsu og líðan barna og unglinga í stærri og smærri byggðalögum ber ekki saman, sumar sýna verri líðan í borg miðað við minni byggðalög eða sveitir og aðrar engan mun (Boraita o.fl., 2022; Jonsson o.fl., 2019; Rees o.fl., 2017). Ungu fólki finnst það öruggara og frjálsara í strjálli byggðum (Eriksson o.fl., 2011) en er ánægðara með aðstöðu til íþrótta- og tómstundaiðk- unar í borgum (Eriksson o.fl., 2011; Krefis o.fl., 2018). Í íslenskum könnunum meðal fullorðinna og ungmenna er mikilvægi sterkra tengsla við fjölskyldu og vini í smærri byggðalögum tíundað sem liður í þeirri ákvörðun að búa áfram á svæðinu (Þóroddur Bjarnason, 2011; Þóroddur Bjarnason o.fl., 2019). Tengsl og stuðningur fjölskyldu og vina eykur vellíðan á öllum aldursskeiðum en mikilvægi vina eykst á unglingsaldrinum (Sigrún Aðalbjarnardóttir, 2019). Áhrif vinatengsla á byggðafestu ætti því ekki að koma á óvart. Þekkt er einnig að efnahagur tengist síðri heilsu, að stúlkur finna frekar til vanlíðanar á unglingsaldri en piltar og að slök tengsl við vini auki vanlíðan (Ársæll Arnars- son, 2019). Óvíst er hvort búseta í þéttbýli eða strjálbýli skipti máli um þessi tengsl. Markmið þessarar rannsóknar sem unnin er úr spurningalistakönnun meðal nemenda í 8.-10. bekk var að kanna hvort tíðni sállíkamlegra umkvartana væri mismunandi eftir búsetusvæði. Þátt- takendum var skipt upp í þrjú svæði; höfuðborgarsvæði, Suðurnes og Vestur- og Norðurland. Auk þess að rýna í tíðni umkvartana var kannað hvort efnahagur fjölskyldu, kyn og fjöldi vina skipti máli um tengsl búsetu og líðanar. Ekki fundust sambærilegar rannsóknir á líðan unglinga eftir búsetu og er þetta því fyrsta rannsókn sinnar tegundar hér á landi. Þessi rannsókn gefur dæmi um líðan ungl- inga á nokkrum búsetusvæðum sem færa má rök fyrir að hafi ólíka eiginleika hvað varðar umhverfi og náttúru, þéttleika byggðar og aðgengi að þjónustu. Slíkar upplýsingar um líðan unglinga eftir búsetu, vinatengsl og áhrif efnahags fjölskyldu á líðan hafa gildi í umræðu um úrræði til að sporna gegn versnandi líðan unglinga og einnig til að auka skilning á lífi og lífsgæðum íbúa í mismunandi byggðalögum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.