Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Síða 68
Styrkur í smæðinni. Líðan og samskipti unglinga í smærri og stærri byggðalögum
68 ..
því að streita og hraði sé meiri á höfuðborgarsvæði en á þeim svæðum utan þess sem hér voru til
skoðunar, líkt og bent er á í erlendum rannsóknum á efninu (Boraita o.fl., 2022). Þá gæti stuðningur
fullorðinna við ungmenni verið minni í stærri samfélagi höfuðborgar en við þau sem búa í minni
samfélagi þar sem „allir þekkja alla“. Niðurstöðurnar benda þó alltént til þess að ástæða sé til að
horfa betur á hvað skýrir þennan mun.
Rannsóknin sýndi að stúlkur fundu oftar til vanlíðanar en piltar. Þetta samræmist niðurstöðum
annarra bæði hér á landi (Ársæll Arnarsson, 2019; Rannsóknir og greining, 2022) og annars staðar
(Bor o.fl., 2014). Jafnframt sýndu niðurstöður meiri tíðni umkvartana hjá stúlkum á höfuðborgar-
svæði miðað við stúlkur á Vestur- og Norðurlandi. Í sænskri rannsókn kom einnig fram meiri van-
líðan meðal ungra kvenna í borg miðað við strjálbýli (Jonsson o.fl., 2019). Umhverfi og aðstæður
stúlkna og kvenna í strjálli byggð virðist vernda þær betur en kynsystur þeirra í stærra byggðalagi og
er full ástæða til að kanna það betur. Skýringa á þessu má vafalaust leita víða en í sænsku rannsókn-
inni velta höfundar því upp hvort ungar konur í strjálbýli upplifi meiri stuðning, stjórn á aðstæðum
sínum og stöðugleika en ungar konur í borg. Hér má einnig hugleiða þátt streitu og áreita sem jafnan
er meiri í borgarsamfélagi og nær ef til vill frekar til kvenna. Hvorki hér né í sænsku rannsókninni
kom fram slíkur munur meðal pilta eða ungra karla.
Unglingar í 8. bekk á höfuðborgarsvæði fundu oftar til vanlíðanar en unglingar á sama aldri á
Suðurnesjum og á Vestur- og Norðurlandi. Athygli vekur að meðaltöl 8. bekkinga fyrir tíðni um-
kvartana á þessum tveimur svæðum voru einnig lægri en meðal eldri nemenda á öllum svæðum.
Þetta bendir til þess að það sem getur valdið vanlíðan meðal unglinga nái heldur síðar til unglinga
utan höfuðborgarsvæðis. Ef marka má sýn rannsakenda á áhrif umhverfis á lífsgæði í borgum og
strjálbýli eru það afar ólíkir þættir sem draga úr lífsgæðum í borg en í bæjum eða sveit. Þættir á
borð við þéttleika byggðar, streita og hraði borgarsamfélags ná ef til vill fyrr að skapa neikvæðar
afleiðingar fyrir unglinga höfuðborgarsvæðis heldur en það sem dregur úr lífsgæðum í strjálbýli svo
sem verri aðgangur að menntun, tómstundaiðkun eða þjónustu. Setja má þessar niðurstöður í sam-
hengi við rannsókn þeirra Pedersen og Gram (2018) þar sem unglingar í minni byggðalögum lýstu
flóknari tilfinningum til byggðalagsins eftir því sem leið á unglingsárin. Hér voru meðaltöl unglinga
í 9. og 10. bekk á svæðunum tveimur einmitt mun nær meðaltölum jafnaldra á höfuðborgarsvæðinu
en meðaltöl 8. bekkinga. Mögulegt er að sú niðurstaða bendi til þess að það sé flóknara fyrir eldri
unglingana að skapa sér athafnarými á svæðinu og endurspegli einhvers konar endurmat þegar ung-
mennin fara að sjá fyrir endann á skyldunámi og huga að næstu skrefum.
Meðaltal fyrir efnahag fjölskyldna var örlítið hærra á höfuðborgarsvæði miðað við hin svæðin.
Líkt og almennt þekkist úr rannsóknum tengdist betri efnahagur lægri tíðni umkvartana hjá ungling-
unum (Ársæll Arnarsson, 2019; Lund o. fl., 2018; Svandís Nína Jónsdóttir, 2022). Ákveðna mótsögn
má greina sem felst í að hærri tíðni umkvartana finnst meðal unglinga á höfuðborgarsvæði þar sem
einnig er að finna heldur betri efnahag fjölskyldna. Í tilfelli búsetu er það því ekki efnahagur fjöl-
skyldna sem skýrir mun á umkvörtunum unglinga heldur eitthvað annað í lífi og aðstæðum þeirra
líkt og fjallað hefur verið um svo sem öryggi og stuðningur samfélagsins í minni byggðalögum og
streita og áreiti stærri byggðalaga.
Fjöldi vina var svipaður á öllum svæðum ef undan er skilinn fjöldi vina af erlendum uppruna
sem var heldur meiri á höfuðborgarsvæði. Á því svæði er fjöldi unglinga af erlendum uppruna meiri
en á öðrum stöðum og þar með skapast þar fleiri tækifæri til að stofna til vinatengsla við þá. Með
fleiri vinum eykst möguleiki til félagslegs stuðnings sem svo aftur leiðir til betri líðanar unglingsins
(Flynn o.fl., 2017; Wang o.fl., 2017) og kemur ekki á óvart að niðurstöður sýndu tengsl fjölda ís-
lenskra vina og lægri tíðni umkvartana. Tengslin voru öfug fyrir fjölda vina sem eingöngu voru sam-
skipti við á netinu. Því fleiri sem slíkir vinir voru, því hærri tíðni vanlíðanar kom fram. Rannsóknir
hafa sýnt tengsl samfélagsmiðlanotkunar við vanlíðan, sérstaklega meðal stúlkna (Santos o.fl. 2023)
og er líklegt að fjöldi netvina tengist almennt meiri notkun samfélagsmiðla sem skýri þessa niður-
stöðu. Ekki er þó hægt að fullyrða um orsakasamhengi þeirra tengsla sem hér koma fram. Bæði gæti