Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Side 69

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Side 69
Eyrún María Rúnarsdóttir 69 .. átt við að unglingar sem líður verr leiti eftir tengslum á netinu eða að fjöldi vina sem eingöngu eru samskipti við á netinu bendi til samfélagsmiðlanotkunar sem hefur skaðleg áhrif á líðan. Greining á tengslum líðanar og fjölda netvina eftir kyni var ekki viðfangsefni þessarar rannsóknar og bíður það betri tíma. Þegar áfram er horft til vina sem eingöngu eru samskipti við á netinu er það eina atriðið sem tengdist líðan á ólíkan hátt eftir búsetusvæði. Unglingar á Vestur- og Norðurlandi nutu ávinnings af vináttu á netinu sem sýndi sig í lægri tíðni umkvartana hjá þeim miðað við unglinga á höfuðborgar- svæði þegar netvinir voru fleiri. Niðurstöðurnar eru forvitnilegar en lítið er til af efni þar sem slík samskipti eru til skoðunar. Í rannsókn frá 2008 reyndust borgarbörn frekar nýta sér möguleika nets til samskipta og nutu stuðnings vina á þann hátt frekar en ungmenni í strjálbýli (Dooris o.fl., 2008). Ekki fannst munur hér á milli búsetusvæða á fjölda vina sem eingöngu voru samskipti við á neti. Niðurstöðurnar benda samt sem áður til þess að unglingar úr þeim skólum sem rannsóknin náði til á Vestur- og Norðurlandi hagnist á vinatengslum sem netið býður upp á. Með öðrum orðum, samskipti á netinu eru jákvæð fyrir þennan hóp unglinga en tengjast ekki vanlíðan líkt og gildir að jafnaði fyrir aðra þátttakendur í rannsókninni. Vera má að á þeim svæðum sé aðgengi að félögum og vinum í raunheimi rýrara en annars staðar og því bæti unglingar þar sér fámennið upp með samskiptum við vini í netheimi. Uppbyggileg samskipti vina og stuðningur þeirra tengist vellíðan unglinga (Sigrún Aðalbjarnardóttir, 2019) og má færa fyrir því rök að netsamskipti við vini hafi einmitt þann ávinning fyrir unglinga á Vestur- og Norðurlandi sem tóku þátt í rannsókninni. Mikilvægt er að rannsóknir á samfélagsmiðlanotkun og samskiptum unglinga á netinu horfi ekki einungis til skaðlegra áhrifa heldur taki tillit til þess hverrar tegundar samskiptin eru og að slík samskipti og tengsl geti verið gjöful í ýmsum aðstæðum. Einn af kostum þessarar rannsóknar var að byggt var á mælingum sem sannað hafa gildi sitt. Svörun var góð og stærð og gerð úrtaks þannig að hægt var að skoða svör á mismunandi land- svæðum. Ekki er þó hægt að alhæfa á alla unglinga út frá þessari rannsókn. Úrtakið var ekki tilvilj- unarkennt og náði að auki eingöngu til nokkurra íslenskra byggðalaga en ekki annarra. Þetta ber að hafa í huga við túlkun niðurstaðna. Þau gögn sem nýtt voru í rannsóknina byggðu á spurningalista sem hannaður var með annars konar markmið í huga en hér voru sett fram. Spurningar um aðgengi að íþrótta- og tómstundastarfi, náttúru, og menntun hefðu til dæmis gefið áhugaverða vídd. Líkt og bent var á hér að ofan gefa þversniðsrannsóknir eins og þessi annars konar svör um orsakasamhengi en ef um langtímagögn væri að ræða. Lokaorð Þessi rannsókn bendir til þess að ungu fólki sem býr á höfuðborgarsvæðinu líði verr en jafnöldrum þeir ra sem búa í annars konar byggðalagi. Þeir þættir sem hér voru til skoðunar, kyn unglinganna, aldur, efnahagur fjölskyldu og fjöldi vina hafði enginn áhrif á þann mun sem fannst. Niðurstöðurnar gefa ótvírætt til kynna að ástæða sé til að taka áhrif búsetu og umhverfis á líðan ungs fólks inn í reikninginn þegar fjallað er um líðan unglinga og þá staðreynd að hún virðist fara hrakandi. Frekari rannsóknir á því hvaða þættir í smærri og stærri byggðalagi til dæmis tengjast líðan eru mikilvægar. Önnur lykilniðurstaða rannsóknarinnar er að tengsl og samskipti við vini á netinu geta verið gagnleg og bætt líðan unglinga við tilteknar aðstæður en hér voru það ungmenni í byggðalögum á Vestfjörðum, Vesturlandi og Norðurlandi sem leið betur eftir því sem þau áttu fleiri netvini. Almennt hafa samskipti á samfélagmiðlum á sér neikvæðan stimpil og foreldrar eindregnir hvattir til að leita leiða til að stilla netnotkun barna sinna í hóf. Þó vissulega eigi hófið við í þessu samhengi er einnig mikilvægt að horfa til þess í hverju notkunin felst og hvað í veru unglinga á netinu skapar þeim tæki- færi og aukna velferð og hvað þar er þeim skaðlegt. Rannsóknir á því hvernig börn og unglingar í fámennari byggðalögum bæta sér upp tengsl við vini og félaga ef fáir jafnaldrar búa nærri eru nánast engar. Samskipti jafningja eru börnum og unglingum mikilvæg til vaxtar og þroska og er því brýnt að auka rannsóknir á þessu sviði.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.