Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Side 74

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Side 74
Staða og líðan ungra karlmanna í landsbyggðarsamfélagi 74 .. Sú rannsóknarspurning sem leitast var við að svara með rannsókninni er: Á hvaða hátt hafa sam- félagsleg gildi og orðræða áhrif á frammistöðu og líðan ungra karlmanna í því samfélagi sem þeir búa og hvernig birtist það í námsgengi þeirra, líðan og framtíðaráformum? Umfjöllunin byggir á rannsókn sem gerð var meðal ungs fólks í Sveitarfélaginu Hornafirði á árinu 2021 þar sem tekin voru einstaklingsviðtöl við aðila sem vinna með ungu fólki, rýnihópaviðtöl við drengi á aldrinum 18-20 ára og spurningakönnun sem lögð var fyrir ungt fólk á aldrinum 15-30 ára. Karlmennska og kvenleiki Lykilhugtök í umræðunni um kyngervi er karlmennska og kvenleiki. Þegar rætt er um kyngervi takast á tvenns konar sjónarmið; eðlishyggja sem gengur út á að karlar og konur séu í eðli sínu ólík og mótunarhyggja sem felur í sér að hugmyndir okkar um karlmennsku og kvenleika séu félagslega mótaðar og að það fari eftir aðstæðum hverju sinni hvað teljist karlmennska og hvað sé kvenleiki (Hermína Huld Hilmarsdóttir og Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2021; Maríanna Jónsdóttir Maríu- dóttir og Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2018). Samkvæmt Connell (2006) vísar orðræðan um karl- mennsku og kvenleika til þeirra eiginleika sem samfélagið hefur ákveðið að einkenni karla og konur. Með því að eigna körlum og konum ákveðna eiginleika sem eru ólíkir er verið að stilla þessum hugtökum upp sem andstæðum með ólíkt vægi „þar sem hið karllæga er yfirskipað hinu kvenlæga“ (Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir og Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2018, bls. 2). Connell (2015) telur einnig að skoða verði hugmyndir okkar á hugtökunum karlmennsku og kvenleika í sögulegu samhengi og segir að hugmyndir breytast eftir því hvernig heimurinn breytist. Það sem einkenndi hugmyndir um karlmennsku og kvenleika á nýlendutímanum er annað en á tímum alheimsvæðingar. Þar sem hér er verið að skoða stöðu og líðan ungra karlmanna verður sjónum beint að hugmynd- um um karlmennsku. Connell og Messerschmidt (2005) tala um að viðteknar karlmennskuhug- myndir (e. hegemonic masculinity) séu tvenns konar; annars vegar er það innri ríkjandi karlmennska en hér er um að ræða ákveðna forréttindastöðu sem sumir karlar búa yfir fram yfir aðra karla og ytri ríkjandi karlmennsku en þá er átt við þau stofnanabundnu yfirráð sem karlar hafa yfir konum. Þó svo að kynjakerfi samfélagsins byggi á þessum hugmyndum þá hefur það breyst og fleiri víddir eru nú viðurkenndar, svo sem umhyggjukarlmennska (e. caring masculinity) og inngildandi karlmennska (e. inclusive masculinity). Það virðist benda til þess að vægi hefðbundinna og íhaldssamra tegunda af karlmennsku hafi minnkað og að nú sé meira rými fyrir annars konar karlmennsku sem áður var undirskipuð og jaðarsett (Jóhannsdóttir og Gíslason, 2018; Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir og Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2018). Í þessu sambandi er vert að nefna að rannsóknir hafa sýnt að á sama tíma og konur hafa sótt í hefðbundin karlastörf virðist það ganga hægt fyrir karla að sækja í hefðbundin kvennastörf og námsáhugi og starfsáhugi ungs fólks sýnir kynjamun. Það birtist í því að stúlkur gefa störfum sem snúa að umhyggju ungra og sjúkra, svo sem kennslu og hjúkrun meira vægi en drengir frekar verkfræði- og tæknistörfum (Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, 2004; Hermína Huld Hilmarsdóttir og Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2021). Rannsóknir á karlmennsku hafa verið gerðar innan ýmissa fræðasviða. Má þar nefna rann- sóknir í menntavísindum þar sem meðal annars er fjallað um námshegðun, frammistöðu og náms- og starfsáhuga en niðurstöður slíkra rannsókna sýna kynbundin mun (Connell og Messerschmidt, 2005; Ingólf ur Ásgeir Jóhannesson, 2004; Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir og Ingólfur Ásgeir Jó- hannesson, 2018). Karlmennska hefur einnig verið viðfangsefni rannsókna í afbrotafræði sem meðal annars sýndi að karlar eru líklegri en konur til að leiðast út í glæpi og að glæpir karla eru annars eðlis en kvenna. Í fjölmiðlarannsóknum voru þær myndir sem fjölmiðlar draga upp af ólíkum karl- mennskuhugmyndum skoðaðar og í heilbrigðisrannsóknum hefur karlmennskuhugtakið verið notað til að skoða heilsutengda hegðun karla, svo sem áhættuhegðun þegar kemur að kynlífi. Í stofnana- rannsóknum beina rannsakendur sjónum sínum að kynjaðri stjórnunarhegðun og hlutverki þess við ákvarðanatöku. Hin kynjaða landfræðilega vídd og kynbundinn munur á körlum og konum innan
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.