Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 78

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 78
Staða og líðan ungra karlmanna í landsbyggðarsamfélagi 78 .. ins (Kristín Guðmundsdóttir og Sigrún Júlíusdóttir, 2006; Nyumba o.fl., 2017; Sim og Waterfield, 2019). Við upphaf viðtalanna var verkefnið kynnt fyrir þátttakendum, fjallað um framkvæmd og úr- vinnslu og farið yfir leyfismál. Þá var þátttakendum gerð grein fyrir nafnleynd og þeim heitið trúnaði við vinnslu og meðferð gagna. Í töflu 2 kemur fram skipting viðtalanna eftir kyni. Hvert viðtal var afritað og við greiningu viðtalanna var lögð áhersla á þemagreiningu. Með því að beita slíkri aðferð getur rannsakandi fundið þemu í viðtölunum, greint orðræðuna sem finna má í þeim og tengt það við þá fræðilegu umfjöllun sem rannsóknin byggir á og þá orðræðu sem fram kemur um stöðu og líðan ungra karlmanna í landsbyggðarsamfélagi (Charmichael og Cunningham, 2017). Tafla 2. Þátttakendur í einstaklings- og rýnihópaviðtölum Viðtöl Karlar Konur Einstaklingsviðtöl 2 3 Rýnihópaviðtöl 11 0 Markmiðið var að rödd hvers og eins kæmi fram og því var sérstakur gaumur gefinn hvernig viðmælendur settu hlutina fram. Þemun sem komu fram í viðtölunum voru flokkuð og pöruð saman með það fyrir augum að svara rannsóknarspurningunni. Þau þemu sem fram komu í öllum viðtöl- unum voru: samfélagið í Sveitarfélaginu Hornafirði, nám, frammistaða og árangur í skóla, líðan og úrræði henni tengd og kynjahlutverk og viðhorf. Rafræn spurningakönnun Þó að rannsóknin beindist fyrst og fremst að ungum karlmönnum var ákveðið að leggja rafrænu spurningakönnunina fyrir allt ungt fólk í sveitarfélaginu á aldrinum 15-30 ára. Markmiðið með slíkri nálgun var að fá dýpri innsýn og fleiri sjónarhorn um rannsóknarefnið og kanna hvort fram kæmi kynjamunur um málefni ungs fólks. Spurningakönnunin, sem lögð var fyrir ungt fólk í Sveitarfélaginu Hornafirði, var búin til í Survey Monkey sem er rafrænn vettvangur þar sem hægt er að búa til spurningakannanir á einfaldan hátt. Könnunin var nafnlaus og ekki hægt að rekja svör til þátttakenda. Notast var við tilviljunarúrtak; þ.e. allir í þýðinu, sem eru íbúar í sveitarfélaginu á aldrinum 15-30 ára, áttu jafna möguleika á að taka þátt. Könnunin var auglýst á vefsíðu sveitarfélagsins og Facebook síðu Nýheima þekkingarseturs. Við gerð spurningalistans voru niðurstöður einstaklings- og rýnihópaviðtala notaðar sem grunnur að spurningagerðinni. Byrjað var á að spyrja bakgrunnsspurninga, svo sem kyn, aldur og staða að vori 2021. Þá komu spurningar sem sneru að viðhorfi til menntunar, náms, vinnu með námi og hvort svarendur upplifðu álag í tengslum við vinnu og nám. Þriðji hluti spurningakönnunarinnar fjallaði um afþreyingamöguleika í sveitarfélaginu, félags- og íþróttastarf og hvort svarendur upp- lifðu álag í tengslum við slíka þátttöku. Spurningar um andlega líðan bæði í COVID-19 faraldrinum og eftir, upplifun jákvæðra og neikvæðra tilfinninga og vitneskja um og aðgengi að sálfræðiþjónustu í sveitarfélaginu komu þar á eftir. Spurt var um upplifun ungs fólks á viðhorfi til ungra karlmanna og kvenna í sveitarfélaginu og hvað þeim fyndist einkenna það samfélag sem þau búa í. Að lokum voru svarendur beðnir um að meta hvort vinnumarkaðurinn væri kynjaskiptur, framtíðaratvinnutækifæri og hvort að sveitarfélagið kæmi til greina sem framtíðarbúsetukostur. Þátttakendur í könnuninni var ungt fólk á aldrinum 15–30 ára búsett og/eða með lögheimili í Sveitarfélaginu Hornafirði. Könnunin var auglýst meðal ungs fólks og það hvatt til þátttöku. Opnað var fyrir könnunina í byrjun júlí og góð þátttaka var á fyrstu dögum eftir birtingu en dalaði þegar á leið. Þátttaka í könnuninni olli nokkrum vonbrigðum því töluvert stór hópur ungs fólks (sjá töflu 1) býr í sveitarfélaginu en einungis 40 tóku þátt. Ástæður þessa geta m.a. legið í því að könnunin var
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.