Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Síða 81
Anna Guðrún Edvardsdóttir, Óskar Kristjánsson og Hugrún Harpa Reynisdóttir
81 ..
standa sig í skóla, íþróttum og vinnu. Máli sínu til stuðnings nefndu þeir þá breytingu að nú sé nám
til stúdentsprófs þrjú ár í stað fjögurra og við þessa breytingu hefði ungt fólk minna svigrúm til að
sinna áhugamálum. Þá væri litið á þá sem ekki gætu lokið stúdentsprófi á þremur árum sem slaka
námsmenn.
Í rýnihópaviðtölunum kom fram að upplýsingar um sálfræðiþjónustu væru ekki sýnilegar og
erfitt væri að leita sér aðstoðar á heilsugæslu í heimabyggð, því óttinn við að allir myndu vita af því
var mikill og hamlaði því að þeir leituðu sér aðstoðar. Þá vildu þeir síður ræða við einhvern sem væri
búsettur á staðnum, svo sem starfsmann í skólanum eða heilsugæslunni af ótta við að persónuleg
mál þeirra yrðu að bæjarslúðri, eða að viðkomandi þekkti sig eða fjölskyldu sína sem gerði aðstæður
óþægilegar. Niðurstöður spurningakönnunarinnar sýndu sambærilegar niðurstöður.
Flestir þátttakendur í könnuninni upplifðu jákvæðar tilfinningar svo sem gleði og hamingju frek-
ar en neikvæðar svo sem kvíða og þunglyndi. Það sem vakti hins vegar athygli var hversu stór hluti
taldi sig upplifa þreytu. Sú niðurstaða var í samræmi við niðurstöður rýnihópaviðtala en þar töluðu
ungu karlmennirnir um að þeir upplifðu þreytu en margir væru í námi, stunduðu vinnu og íþróttir
líka, svo leiða má að því líkum að slíkt sé algengt meðal ungs fólks í samfélaginu.
Kynjahlutverk og viðhorf
Flestir þátttakendur í spurningakönnuninni töldu að viðhorf til ungs fólks væri hvorki jákvætt né
neikvætt og mjög fáir töldu viðhorfið vera neikvætt. Þó voru fleiri sem töldu viðhorf til ungra karl-
manna vera neikvæðara heldur en til ungra kvenna. Sú niðurstaða var ekki samhljóma niðurstöðum
rýnihópaviðtala þar sem ungu karlmennirnir töldu að viðhorf til ungra kvenna væri neikvæðara
heldur en til ungra karla. Í þessu sambandi nefndu þeir hina viðteknu karlmennsku sem birtist í mis-
munandi viðhorfi til kynlífshegðunar karla og kvenna en það fólst í því að það þætti töff ef drengir
væru með mörgum stúlkum en litið niður á stúlkur sem væru með mörgum drengjum. Töldu þátt-
takendur að þessu viðhorfi væri viðhaldið af báðum kynjum.
Ungu karlmennirnir í rýnihópaviðtölunum töldu þó að meira traust væri borið til stúlkna í sam-
félaginu því viðhorf til stúlkna væri að þær væru þægar og ábyrgar. Máli sínu til stuðnings nefndu
þeir að stúlkum gengi betur að fá húsnæði til árshátíðarhalda og sæju þær því um þá hluti og í fjár-
öflunum gengi stúlkum betur í sölumennskunni, drengjunum væri frekar neitað. Þeim fyndist því að
krafa samfélagsins gagnvart stúlkum væri að þær ættu að vera prúðar og þægar, en að þeim fyndist
þetta vera á undanhaldi í kjölfar „metoo“ byltingarinnar.
Samskipti kynjanna og ólíkur samskiptamáti þeirra var töluvert til umræðu í rýnihópunum en
fram kom að vinahópar væru blandaðir af drengjum og stúlkum sem væri jákvætt. Þátttakendur
gerðu að umtalsefni að stúlkurnar væru virkari í skipulögðu starfi, þær væru í fleiri ráðum og frekar
í nemendafélagi FAS og því líklegri til að láta hlutina gerast. Þeir væru virkari í íþróttum heldur en
stúlkur og þegar þær kæmust á unglingsaldurinn eða færu í framhaldsskólann, þá hættu þær íþrótta-
iðkun og hefðu því meiri tíma í annað. Þátttakendur upplifðu einnig að samskiptamáti kynjanna
væri flókinn því drengir væru frekar einfaldir en stúlkur flóknar. Þær notuðu samfélagsmiðlana til
samskipta frekar en drengir og þá upplifðu þeir að oft væri meira drama í kringum stúlkurnar sem
ættu það til að bregðast illa við ef drengirnir væru ekki sammála þeim. Fyrir vikið voru þeir hættir að
segja skoðun sína til að forðast að fá skammir fyrir. Eitt sem þátttakendur rýnihópaviðtalanna nefndu
sem mun á kynjunum var að ef drengjum líki ekki við hvor annan, þá segi þeir það bara hreint út og
væru ekki að umgangast þá sem þeim líkaði ekki við. Hins vegar væru stúlkurnar meira að þykjast
en töluðu svo illa um hvor aðra og látast vera vinkonur þegar þær væru fyrir framan viðkomandi.
Þá sögðust þátttakendur alveg skilja að stúlkur tækju drengjum með fyrirvara í ljósi þeirrar umræðu
sem verið hefur í samfélaginu í kjölfar „metoo“ byltingarinnar. Viðmælendur í einstaklingsviðtöl-
unum gerðu að umtalsefni þennan mun í samskiptum og samskiptamáta kynjanna og voru sammála
rýnihópaviðtölunum.
Meirihluti þátttakenda í spurningakönnuninni taldi að vinnumarkaðurinn væri ekki kynjaskiptur,