Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Síða 82

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Síða 82
Staða og líðan ungra karlmanna í landsbyggðarsamfélagi 82 .. en í rýnihópaviðtölunum var það upplifun og reynsla ungu karlmannanna að slíkt væri til staðar. Í viðtölunum ræddu þátttakendur stöðu kynjanna á vinnumarkaði og ræddu sérstaklega um viðhorf samfélagsins til karla- og kvennastarfa. Sögðu þeir að það þætti töff ef kona færi í karlastarf en karl- menn ættu alls ekki að fara í kvennastörf. Að þeirra mati væri vinnumarkaðurinn kynjaskiptur og upplifðu þeir að ákveðin störf væru ætluð konum og önnur körlum og innan vinnustaða væri þessi skipting einnig til staðar. Máli sínu til stuðnings sögðu þátttakendur að drengir væru settir í líkam- lega erfiðari störf og það væri fyrirfram ákveðið að stúlkur gætu ekki sinnt slíkum störfum. Þá væru stúlkur álitnar betri í þjónustustörfunum og þættu meira aðlaðandi en drengirnir, því væru drengirnir frekar settir í uppvaskið en stúlkurnar í móttökuna og salinn á hótelum og veitingastöðum. Enn fremur kom fram að erfiðara væri fyrir stúlkur að fá vinnu í iðngreinum, drengirnir gengju fyrir þar. Viðmælendur í einstaklingsviðtölunum tengdu þennan kynjamun við námsval og töldu drengina sækja meira í iðn- og tækninám á meðan stúlkurnar stefndu í nám á háskólastigi. Umræður Þegar rýnt er í niðurstöður einstaklings- og rýnihópaviðtala og spurningakönnunarinnar kemur í ljós að samfélagsleg gildi og orðræða um karlmennskuna hefur áhrif á frammistöðu og líðan ungs fólks, sérstaklega unga karlmenn. Í samfélaginu má segja að karllæg gildi og dreifbýliskarlmennska séu ríkjandi þar sem vald og líkamlegir yfirburðir eru í forgrunni. Eru þessar niðurstöður í samræmi við bæði íslenskar og erlendar rannsóknir á dreifbýlissamfélögum (Ambjörnsson, 2021; Areschoug, 2019; Dahlström, 1996; Edvardsdóttir, 2013). Þessu til stuðnings vísuðu aðilar í viðtölunum til ólíkrar orðræðu til kynjanna á kynlífssviðinu, sterka vinnumenningu og orðræðuna um hefðbundin karla- og kvennastörf. Hins vegar kemur skýrt fram að þátttakendur í rýnihópaviðtölunum telja að það sé frekar eldra fólk í samfélaginu sem viðheldur þessum gildum, það yngra sé miklu frjáls- lyndara og sveigjanlegra og þátttakendur í rýnihópaviðtölunum samsömuðu sig ekki við þessi gildi og gagnrýndu þau. Hins vegar sættu þeir sig við ríkjandi skipulag og taka þannig þátt í að viðhalda ríkjandi gildismati. Sú samfélagslega klemma sem ungir karlmenn virðast vera í er vísbending um að þeir séu opnir fyrir annars konar hugmyndum um karlmennsku en þá sem ríkjandi er og staðfestir sú niðurstaða aðrar íslenskar og erlendar rannsóknir (Bye, 2009; Jóhannsdóttir og Gíslason, 2018; Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir og Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2018) Eins og áður sagði ræddu þátttakendurnir í rýnihópaviðtölunum um hina sterku vinnumenningu sem virðist einkenna samfélagið sem þeir upplifa að beinist sérstaklega að ungum karlmönnum. Það þykir eðlilegt og mikilvægt að þeir vinni með námi, vinni mikið og í vel launuðu starfi. Þessu væru þeir ekki sammála, því mikið álag fylgdi því að vera í skóla, stunda íþróttir og vinnu, en þrýstingur frá samfélaginu gerði það að verkum að til að standa undir væntingum væru flestir að vinna. Þessi áhersla samfélagsins um mikilvægi þess að vinna má tengja við niðurstöður rannsókna um hugmyndir um að dreifbýliskarlmaðurinn sé hörkutól og í góðu líkamlegu formi sem víli ekkert fyrir sér (Bye, 2009). Þessi niðurstaða var ekki í samræmi við niðurstöðu úr spurningakönnuninni sem var á þá leið að lítið álag fylgdi því að vera í skóla, íþróttum og/eða vinnu. Hafa ber í huga að meirihluti svarenda í könnuninni voru ungar konur og getur það bent til þess að munur sé á kynjunum þegar álag er metið. Upplifun ungra karlmanna er sú að ekki sé til staðar skilningur í samfélaginu á því mikla álagi sem er á ungu fólki, því ætlast er til að það standi sig vel á öllum þessum sviðum og nái árangri. Ljóst er því að ungu karlmennirnir virðast ekki tengja við hinar stífu hugmyndir um dreifbýliskarl- mennsku (Bye, 2009). Í því ljósi er ekki undarlegt að þátttakendur í rýnihópaviðtölunum lýstu því yfir að þeir væru oft þreyttir og við slíkar aðstæður væri skólaganga og nám látið sitja á hakanum en rannsóknir sýna að helsta ástæða þess að nemendur, sérstaklega drengir, hætti í námi sé slök mæting (Gísli Gylfason og Gylfi Zoega, 2021; Sigrún Jónatansdóttir o.fl,. 2021). Hér töldu aðilar að við heimilin væri að sakast því viðhorf og hvatning heimila til náms sé lykillinn að árangri í námi. Þátt- takendur í rýnihópunum töldu að drengir væru hvattir til þess að fara að vinna á meðan viðmælendur í einstaklingsviðtölunum töldu drengi ekki sjá tilgang með náminu og tengdu það beint við heimilin.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.