Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 89
Þóroddur Bjarnason, Jón Þorvaldur Heiðarsson og Guðný Rós Jónsdóttir
89 ..
Á síðari árum hefur þetta fyrirkomulag þó víða riðlast með tilkomu lággjaldaflugfélaga og ferða-
þjónustuflugfélaga sem séð hafa viðskiptatækifæri í ódýru flugi heimafólks og borgarbúa um litla
flugvelli með stórum farþegaþotum (Alderighi o.fl., 2012; Dobruszkes, 2013; Pantazis og Leifner,
2006). Tilkoma flugrekstraraðila sem leigja farþegaþotur með eða án áhafnar, viðhalds og trygg-
inga hefur jafnframt skapað ný tækifæri fyrir lítil svæðisbundin flugfélög með auknum aðskilnaði á
eignarhaldi flugvéla, rekstri þeirra og skipulagi áætlunarflugs (Chabiera, 2021). Þannig hafa skapast
ný tækifæri fyrir frumkvöðla í heimabyggð til að bjóða upp á áætlunarflug á forsendum heimafólks
án þess að fjárfesta í flugvélum, sinna viðhaldi þeirra, þjálfa áhafnir eða uppfylla strangar kröfur sem
gerðar eru til flugrekstraraðila.
Á Íslandi hafa langar akstursfjarlægðir til Keflavíkurflugvallar, skortur á samkeppni í innanlands-
flugi til Reykjavíkurflugvallar og slakar tengingar milli flugvallanna tveggja leitt af sér verulegan
ójöfnuð í tækifærum landsmanna til utanlandsferða og möguleikum ferðaþjónustunnar sem heilsár-
satvinnugreinar eftir landsvæðum. Fjörutíu ára saga millilandaflugs um Akureyrarflugvöll endur-
speglar í senn langtímabreytingar og síbreytilegar aðstæður á alþjóðlegum flugmarkaði. Jafnframt
varpar hún ljósi á tækifæri og hindranir nærsamfélaga í hnattvæddum heimi þar sem ófullnægjandi
flugsamgöngur jafngilda efnahagslegri, pólitískri og menningarlegri jaðarsetningu.
Í þessari rannsókn verður fjallað um sögu millilandaflugs um Akureyrarflugvöll og áhrif þess á
ójöfnuð í utanlandsferðum. Í fyrsta lagi verður fjallað um þróun farþegaflugs á Íslandi í ljósi laga
og reglna, skipulags flugvalla og rekstrar flugfélaga á Vesturlöndum. Í öðru lagi verður saga milli-
landaflugs frá Akureyrarflugvelli rakin frá upphafi og fjöldi farþega áætlaður 1993–2022. Í þriðja
lagi verður lagt mat á áhrif millilandaflugsins frá Akureyri á hlutfallslegan ójöfnuð í utanlands-
ferðum milli landshluta. Í fjórða lagi verður upptökusvæði millilandaflugs frá Akureyri, uppruni og
áfangastaðir flugfarþega og sætanýting metin á grundvelli reynslunnar af millilandaflugi Niceair
frá Akureyri 2022–2023. Að lokum verður lagt heildarmat á samfélagsleg áhrif og framtíðarhorfur
millilandaflugs um Akureyrarflugvöll í ljósi alþjóðlegra rannsókna á þessu sviði.
Uppbygging og þróun farþegaflugs
Hefðbundin flugfélög
Hefðbundin flugfélög (e. traditional airlines) eða heildarþjónustuflugfélög (e. full service carriers)
tóku á sig mynd á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar (Reynolds-Feighan, 1998). Þótt flugfélög
í Bandaríkjunum væru einkarekin, úthlutuðu stjórnvöld flugleyfum til einstakra áfangastaða og
ákvörðuðu verð á flugmiðum með tilliti til áætlaðs kostnaðar og hæfilegs hagnaðar flugfélaganna
(Wilson og Klovers, 2020). Samkeppni milli bandarískra flugfélaga var því takmörkuð og snerist
fyrst og fremst um að veita sem besta þjónustu fyrir fast verð á tiltekinni flugleið. Í Evrópu voru
stærstu flugfélögin hins vegar flest í ríkiseigu líkt og aðrir helstu samgönguinnviðir landanna (Ra-
mos-Pérez og Sánchez-Hernández, 2013; Reynolds-Feighan, 1998). Stærð flugfélaganna réðist að
verulegu leyti af stærð og styrk viðkomandi landa og hagsmunir ríkjanna réðu miklu um skipulag
og verðlagningu þjónustunnar. Leiðakerfi ríkisflugfélaganna byggði í flestum tilvikum á geislum
innanlandsflugs frá höfuðborginni til borga og bæja og millilandaflugi til annarra landa samkvæmt
tvíhliða samningum viðkomandi ríkja um tíðni ferða og verðlagningu flugmiða.
Á Íslandi bar þróun farþegaflugsins talsverðan keim af bæði bandarísku og evrópsku fyrirkomu-
lagi. Icelandair er helsta flugfélag landsins og hefur starfað óslitið frá því á fjórða áratug síðustu
aldar. Það er þannig að stofni til sama félagið og Flugfélag Akureyrar sem stofnað var 1937, varð
Flugfélag Íslands 1940, sameinaðist Loftleiðum 1973 undir nafninu Flugleiðir innanlands en Icel-
andair á erlendum vettvangi, yfirtók Flugfélag Norðurlands og endurstofnaði Flugfélag Íslands sem
félag um innanlandsflug 1997, breytti nafni þess í Air Iceland Connect 2017 og yfirtók það að nýju
árið 2021. Icelandair hefur frá upphafi verið einkafyrirtæki sem þó hefur jafnan getað reitt sig á
stuðning íslenska ríkisins.