Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Side 95

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Side 95
Þóroddur Bjarnason, Jón Þorvaldur Heiðarsson og Guðný Rós Jónsdóttir 95 .. Vorið 2023 lögðu rannsakendur loks stutta spurningalistar fyrir farþega í flugi Niceair frá Akur- eyri til Kaupmannahafnar og Tenerife. Meðal annars var spurt um þjóðerni, búsetu, endanlegan áfangastað og hvort um tengiflug væri að ræða. Áhöfnin dreifði spurningalistunum til farþega og safnaði útfylltum spurningalistum í lok flugs. Upphaflega var stefnt að því að leggja spurningalistana fyrir með reglulegu millibili til ársloka 2023 en fyrirlögninni lauk þegar Nicear hætti starfsemi. Fyrir tilviljun söfnuðust nákvæmlega 600 útfylltir spurningalistar á tímabilinu 21. febrúar – 2. apríl 2023. Niðurstöður Millilandaflug um Akureyrarflugvöll Millilandaflug í leiguflugi frá Akureyrarflugvelli hófst á vegum Ferðaskrifstofu Akureyrar haustið 1982 með “beinu flugi” með Flugleiðum til Amsterdam, Kaupmannahafnar og Mallorka og stuttri millilendingu á Keflavíkurflugvelli. Ýmsar ferðaskrifstofur buðu sambærilegar ferðir frá Akureyri næstu árin, og sumarið 1986 bauð Arnarflug þýskum ferðamönnum jafnframt upp á flug frá Ham- borg til Akureyrar um Keflavíkurflugvöll. Á níunda áratugnum var reglulega rætt um nauðsyn þess að koma á reglubundnu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll. Flugleiðir flugu raunar nokkrar áætlunarferðir til Kaupmannahafnar sumarið 1983 en ekki varð framhald á þeirri starfsemi. Hins vegar fékk Flugfélag Norðurlands sérleyfi á flugi milli Akureyrar og Keflavíkur 1989 og starfrækti slíkt tengiflug við millilandaflugið næstu árin. Loks tókst að koma á reglubundnu farþegaflugi milli Akureyrar og Zürich sumarið 1990 á veg- um svissnesku ferðaskrifstofunnar Saga Reisen og belgíska flugfélagsins Trans European Airways (TEA). Fyrsta flugið lenti á Akureyrarflugvelli 8. júlí 1990 og við hátíðlega athöfn að viðstöddum samgönguráðherra gaf forseti bæjarstjórnar flugvél TEA nafnið City of Akureyri. Þetta vikulega áætlunarflug var starfrækt næstu sex árin, en Flugleiðir tóku við flugrekstrinum eftir að TEA varð gjaldþrota síðla árs 1991. Vélar Flugleiða millilentu þó í vaxandi mæli í Keflavík og innanlands- flugið var stundum notað til að koma farþegum til Akureyrar. Sumarið 1996 var flugið frá Zürich að mestu um Keflavíkurflugvöll og erlendum ferðamönnum hafði fækkað verulega, og í kjölfarið lagðist þetta flug alfarið af. Mynd 1 sýnir fjölda farþega í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll samkvæmt Flugtölum Isavia (2023b), en þær ná aðeins frá árinu 1993 og greina ekki milli farþega í áætlunarflugi öðru tilfallandi flugi. Á myndinni eru millilandaflug helstu aðila auðkennt en annað tilfallandi millilandaflug átti sér stað allt tímabilið. Eins og sjá má fóru 6–7 þúsund millilandafarþegar um Akureyrarflugvöll ár hvert meðan á flug Saga Reisen stóð. Eftir að því skeiði lauk var aðeins um leiguflug að ræða en boðið var upp á versl- unarferðir í beinu flugi frá Akureyri á hverju hausti á árunum 1988–1996. Sú flugstarfsemi náði hámarki haustið 1995 þegar farnar voru samtals tíu ferðir frá Akureyri til Cork og Dublin á Írlandi, Newcastle á Norður-Englandi og Edinborgar og Glasgow í Skotlandi. Það ár fóru 7.200 farþegar um Akureyrarflugvöll og var það met ekki jafnað næstu tíu árin. Haustið 1999 bauð Íslandsflug jafn- framt upp á vikulegar menningar- og verslunarferðir til Dublin frá Akureyrarflugvelli. Athygli vekur að ákveðin ládeyða var í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll um síðustu alda- mót, um það leyti sem samkeppni í innanlandsflugi lagðist einnig af. Það kann að skýrast að hluta til af nokkuð erfiðum tímum í sögu Akureyrar þar sem atvinnustarfsemi Sambands íslenskra sam- vinnufélaga (SÍS) og Kaupfélags Eyfirðinga (KEA) hafði lagst af og fólksfjölgun hafði verið lítil í nokkur ár í röð. Í apríl 2003 hóf Air Greenland reglubundið áætlunarflug tvisvar í viku milli Akureyrar og Kaup- mannahafnar. Stefnt var að flugi allt árið en Air Greenland sneri sér þó að öðrum verkefnum í desember sama ár. Þremur árum síðar hóf Iceland Express beint flug milli Akureyrar og Kaup- mannahafnar á sumrin og stóð það flug næstu sjö árin eða allt þar til Iceland Express varð gjaldþrota í árslok 2012. Efnahagshrunið haustið 2008 hafði umtalsverð áhrif á fjölda farþega sumarið eftir og síðustu tvö árin sem Iceland Express starfaði voru fyrirætlanir um áframhaldandi flug frá Akureyri
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.