Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Side 101
Þóroddur Bjarnason, Jón Þorvaldur Heiðarsson og Guðný Rós Jónsdóttir
101 ..
Athygli vekur að margir þeirra erlendu ríkisborgara sem flugu með Niceair voru búsettir á Íslandi.
Það átti við fjórðung danskra farþega, þriðjung farþega frá öðrum Norðurlöndunum, og nærri helming
til tveggja af hverjum þremur erlendum ríkisborgurum frá öðrum löndum. Yfirgnæfandi meirihluti
flugfarþega Niceair voru því ekki erlendir ferðamenn í venjulegum skilningi, en upptökusvæði er-
lendra ferðamanna virðist einkum hafa verið í Danmörku og annars staðar á Norðurlöndunum.
Erindi og áfangastaðir farþega Niceair samkvæmt könnun um borð
Mynd 6 sýnir áfangastaði farþega í flugi Niceair til Kaupmannahafnar samkvæmt könnun sem gerð
var um borð í vélinni í febrúar–apríl 2023. Þar kemur fram að Danmörk var endanlegur áfangastaður
71% farþeganna en 12% voru á leið til annarra Norðurlanda. Álíka stórir hópar eða 5–7% voru á leið
til Vestur-Evrópu, Austur-Evrópu og Suður-Evrópu en aðeins einn farþegi var á leið út fyrir Evrópu,
eða til Marokkó. Allir farþegar Niceair til Tenerife voru á leið til Kanaríeyja og eru því ekki sýndir
í töflunni.
Þá kemur fram í töflunni að meirihluti þeirra farþega í Kaupmannahafnarfluginu sem ekki voru á
leið til Danmerkur héldu áfram með tengiflugi. Því taldist fjórðungur allra farþega Niceair vera ten-
gifarþegar sem bókað höfðu sínar eigin tengingar í gegnum Kastrup flugvöll.
Tafla 6. Áfangastaðir og tengiflug farþega Niceair til Kaupmannahafnar samkvæmt spurn-
ingakönnun um borð
Fjöldi Hlutfall Tengiflug í Kaupmannahöfn
Danmörk 272 71% 3%
Önnur Norðurlönd 47 12% 72%
Vestur-Evrópa annað 21 5% 57%
Austur-Evrópa 27 7% 94%
Suður-Evrópa 18 5% 100%
Önnur lönd 1 0% ---
Samtals 386 100% 26%
Tafla 7 sýnir loks samsetningu farþegahópsins eftir búsetu og ríkisborgararétti og tilgang ferðarinnar
hjá einstökum undirhópum. Um 80% þeirra sem tóku þátt í könnuninni voru Íslendingar búsettir á
Íslandi en 20% skiptust jafnt á milli Íslendinga búsettra erlendis, útlendinga búsettra á Íslandi og
útlendinga búsettra erlendis.
Vakin er athygli á því að merkja mátti við fleiri en einn tilgang með ferðinni og því er summa
ferða vegna vinnu, afþreyingar eða skemmtunar og til að hitta fjölskyldu eða vini hærri en 100%.
Um 5% svarenda gáfu upp aðrar ástæður, og má þar til dæmis nefna að einn farþegi sagðist vera að
sækja köttinn sinn til Kaupmannahafnar.
Um fjórðungur allra farþega sagðist vera í vinnuferð að hluta eða öllu leyti og var óverulegur
munur eftir búsetu og ríkisborgararétti. Helmingur farþeganna sagðist vera að ferðast sér til skemmt-
unar eða afþreyingar og voru voru Íslendingar líklegri en erlendir ríkisborgarar til þess. Hins vegar
sögðust um 40% vera að heimsækja fjölskyldu eða vini og voru íslenskir ríkisborgarar líklegri til
þess en útlendingar, sérstaklega þau sem búsett voru á Íslandi.
Sérstaka athygli vekur að meirihluti þeirra sem ekki voru búsett á Íslandi sagðist vera að ferðast
vegna heimsóknar til fjölskyldu eða vina. Gera má því skóna að meðal Íslendinga og erlendra ríkis-
borgara búsettra erlendis hafi mörg verið á heimleið úr heimsókn til fjölskyldu eða vina á Íslandi,
en meðal erlendra ríkisborgara búsettra á Íslandi hafi mörg verið á leið í heimsókn til fjölskyldu eða
vina í heimalandinu.