Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 119

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 119
Helgi Skúli Kjartansson 119 .. Eskfirðingar gáfust ekki upp á samvinnufélagsskapnum heldur endurreistu hann með nýju útgerðar- félagi og ekki minna en tveimur kaupfélögum. Útgerðarfélagið hét Kakali, stofnað 1933. Það fékk nú ríkisábyrgð á lánum sem dugðu til að semja um nýsmíði á fjórum bátum. Þrír voru einkum ætlaðir til þorskveiða, nokkru stærri þó en eldri bátar í plássinu, gátu því sótt lengra og notað fjölbreyttari veiðarfæri. Sá fjórði var miklu stærri, en dýrari í rekstri, reyndist ekki henta til bolfiskveiða og var aðeins gerður út á stuttri síldarvertíð, auk þess sem hann nýttist til landhelgisgæslu (Friðrik Steinsson, 1935). Aflabrögð voru góð fyrsta starfsár Kakala en afleit eftir það (Tafla 2) enda gafst hann upp eftir annað árið. Félagsmenn hafa tapað stofnfé sínu, en ekki skal fullyrt hve mikið af tapi félagsins lenti á þeim sem ábyrgðarmönnum eða á ríki, sýslu og hrepp vegna ábyrgða og veða. Bátar Kakala voru þó ekki seldir úr plássinu heldur voru þeir uppistaðan í þilskipaflota Eskfirðinga næstu árin, gerðir út af mismunandi hópum einstaklinga – vafalaust með Landsbankann að bakhjarli (Einar Bragi, 1983, bls. 152–153; sbr. töflu 3 og viðauka). Kaupfélögin tvö urðu langlífari, fyrstu verslanir á Eskifirði í langan tíma sem tókst nokkurn veginn að koma undir sig fótunum. Af þeim var hið yngra, Kaupfélagið Björk, beinn arftaki gamla kaupfélagsins, aðildarfélag SÍS og treysti mjög á viðskipti bænda. Það yfirtók eina af smáverslunum staðarins og gerði eiganda hennar, Markús E. Jensen, að kaupfélagsstjóra (Einar Bragi 1973, bls. 148–153). Þá var bróðir Markúsar, fyrrnefndur Arnþór Jensen, þegar orðinn kaupfélagsstjóri hins félagsins, Pöntunarfélags Eskfirðinga, og varð það smám saman hans aðalstarf þótt hann væri með­ fram stjórnandi Hugins. Með því að kalla sig pöntunarfélag sór félagið sig í ætt verslunarsamtaka sem víða voru stofnuð í þéttbýli, tengd verkalýðsfélögum og vinstrihreyfingu, t.d. PAN, Pöntunar­ félag alþýðu, Neskaupstað, sem mun hafa verið hin beina fyrirmynd Eskfirðinga. Flest slík félög uppfylltu ekki skilyrði samvinnulaga um að í kaupfélagi bæri hver félagsmaður ótakmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félagsins. Þau voru því ekki skráð sem samvinnufélög og ekki tæk í SÍS fyrr en samvinnulögunum var breytt 1938. Pöntunarfélag Eskfirðinga var hins vegar frá upphafi formlegt samvinnufélag með fulla samábyrgð. Eðlilega var það samt bændafélagið Björk sem fékk inngöngu í SÍS, Pöntunarfélagið ekki fyrr en löngu seinna þegar það hafði yfirtekið Björk (Einar Bragi 1973, bls. 24–42). Góð ráð dýr Eskfirðingar höfðu sem sagt ýmis spjót úti til að glæða atvinnulífið í plássinu. Og það væntanlega fleiri en hér hafa fundist heimildir um. Einhvers konar tilraun hefur það t.d. verið 1934 að hefja á ný útgerð árabáta og láta 30 manns skiptast á að róa á þremur bátum. Áhafnir trillubátanna eru líka fjöl mennari þetta ár en ella, væntanlega vegna skiptivinnu (Tafla 3). Öll þessi viðleitni hrökk þó skammt. Eskifjörður sökk æ dýpra í atvinnuleysi og fátækt. Þótt ríkið veitti illa stöddum sveitarfélögum vissa aðstoð, greiddi t.d. hluta af kostnaði þeirra við fátækra- framfærslu og atvinnubótavinnu, þá dugði það ekki til að halda Eskifjarðarhreppi á floti. Í árs­ byrjun 1933 höfðu tveir oddvitar hreppsins, þáverandi og fyrrverandi, tekið saman svarta skýrslu um ástandið (Ólafur H. Sveinsson og Arnfinnur Jónsson, 1933; Einar Bragi 1983, bls. 148–153). Án frekari aðstoðar „fer fjöldi hreppsbúa á vonarvöl og hreppsfélagið verður gjaldþrota á þessu ári“ eru niðurlagsorð þeirra. Síðar á árinu var auglýst nauðungaruppboð á fasteign í eigu hreppsins og síðan lýst eftir kröfum í bú hans þar eð hann hefði leitað aðstoðar ríkisins samkvæmt sérstökum lögum. Hvernig enn hafði hallað undan fæti má sjá 1936 þegar Eskfirðingar sendu þriggja manna nefnd til Reykjavíkur að fylgja eftir málstað sínum við þing og stjórn (Sendinefnd frá Eskifirði er stödd …, 1936). Þá hafði hreppurinn „svo að segja verið rekinn af ríkinu“ síðan 1933, enda ómögulegt að innheimta útsvör. Sendimenn töldu örvænt að bátaútvegur dygði til viðreisnar þorpinu (Tafla 2 sýnir ástand hans) heldur yrði að efna til „stórútgerðar eða stóriðnaðar“. En hvorugt gerðist. Kreppan hélt áfram.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.