Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Side 127
Hjördís Sigursteinsdóttir
127 ..
streita tengist háum samfélagskostnaði (Hassard o.fl., 2018), lítilli vinnugetu (Lindegård o.fl., 2014),
ýmsum heilsufarsvandamálum eins og kransæðasjúkdómum, heilablóðfalli og sykursýki af tegund 2
(Kivimäki og Kawachi, 2015) og þreytu og þunglyndi (Rose o.fl., 2017). Vinnutengd streita tengist
einnig langtíma veikindaleyfum (Holmgren o.fl., 2013). Starfsfólk sem vinnur með annað fólk er
sérstaklega útsett fyrir að fara í veikindaleyfi vegna vinnutengdrar streitu (Aronsson o.fl., 2019). Í
nýlegri rannsókn Pereira og félaga (2022) meðal starfsfólks í opinbera geiranum í Portúgal kemur
fram aukið streitustig og tilfinningaleg þreyta meðal starfsfólksins vegna COVID-19 faraldursins
og endurspeglast í minni starfsánægju, auknum fjarvistum frá vinnu og minni framleiðni. Hafa ber
þó í huga að streita sem hefur áhrif á líðan einstaklinga er ekki bara vinnutengd. Erfiðar heimilisað-
stæður, umönnun fjölskyldumeðlima og fjárhagsáhyggjur eru allt streituvaldandi þættir í einkalífinu
og hafa einnig áhrif á almenna vellíðan.
Fræðimenn eru ekki á einu máli um hvernig skilja má hugtakið vellíðan í starfi (Buffet o.fl., 2013;
Schulte og Vainio, 2010). Því hafa fræðimenn meðal annars lýst vellíðan í starfi út frá starfsánægju,
ásetningi um að halda áfram að vinna, helgun í starfi, fjármagni og vinnutengdri streitu (sjá t.d.
Hirschl og Godin, 2020; Kvist o.fl., 2012; Roustalainen o.fl., 2020). Þessir þættir eru gjarnan skoð-
aðir út frá sjónarhorni einstakra starfsmanna og vinnu þeirra, vinnusamfélagsins og vinnuskipulags
(Arian o.fl., Cotton og Hart, 2003; Hrischl og Condim, 2020; Sculte og Vainio, 2010). Starfsánægja
er það hugtak sem líklega hefur verið mest rannsakað innan skipulagsheilda (Weiss og Brief, 2001;
Wright, 2006). Algengt er að nota skilgreiningu Locke (1969) á starfsánægju en hún felur í sér við-
horf til vinnu og er bæði huglægt og tilfinningalegt viðbragð starfsfólks gagnvart starfi sínu. Að mati
Locke er starfsánægja lykilþáttur í líðan starfsfólks á vinnustað og getur hún haft áhrif á marga þætti
á vinnustaðnum eins og fjarveru, frammistöðu og starfsmannaveltu og til þess að þrífast í starfi þá
þarf að vera samræmi á milli þarfa starfsfólks og þess hvað það fær út úr starfinu. Starfsánægja hefur
ekki verið eins mikið rannsökuð meðal starfsfólks í opinbera geiranum eins og í einkageiranum og
líkleg skýring er að hvatning til vinnu og viðhorf er í meginatriðum eins í báðum þessum geirum
(Cantarellii o.fl., 2015). Rannsóknir sýna að vinnuskilyrði hafa mest áhrif á starfsánægju og starfs-
mannaveltu meðal opinbers starfsfólks, sem og félagsleg tengsl við vinnufélaga og yfirmenn, starfs-
anda, möguleika á stöðuhækkun og tækifæri til starfsþróunar (Borzaga og Tortia, 2006; Ellickson og
Logsdon, 2002; Kim, 2002; Wright og Davis, 2003). Nýlegar rannsóknir á starfsánægju á vinnustað
hafa staðfest enn frekar áhrif félagslegs stuðnings á starfsánægju á vinnustað (Kucharska og Bed-
ford, 2019; Mérida-López o.fl., 2019; Ng og Sorensen, 2008; Pinna o.fl., 2020). Auk þess sem bæði
starfsánægja og félagslegur stuðningur frá yfirmönnum og vinnufélögum á vinnustað tengjast betri
lífsgæðum (Yuh og Choi, 2017).
Ýmsar skilgreiningar eru til á félagslegum stuðningi á vinnustað og áhrifum hans á starfsfólkið.
Árið 1976 kom Cobb fram með skilgreiningu á félagslegum stuðningi sem upplýsingar sem einstakl-
ingur meðtekur um að öðrum sé annt um hann og einstaklingurinn sé metinn sem hluti af ákveðnum
hóp og hafi sömu skuldbindingar og hópurinn. Í sama streng taka Hobfoll og Stokes (1988) en þeir
skilgreina félagslegan stuðning sem samband eða félagsleg samskipti sem veita einstaklingum að-
stoð og umhyggju og mynda vingjarnleg tengsl milli einstaklinga eða hópa. Félagslegur stuðningur
á vinnustað felur í sér hjálpleg samskipti frá yfirmanni og vinnufélögum á vinnustað og er veittur
af umhyggju, trausti og virðingu (Fujishiro og Heaney, 2007; Karasek og Theorell, 1990). Undir
félagslegan stuðning fellur einnig upplýsingagjöf inni á vinnustað og er þá átt við ráðgjöf og leið-
sögn sem eru mjög mikilvægir þættir fyrir starfsfólk til að takast á við auknar kröfur og álag í starfi
(Seiger og Wiese, 2009). Félagslegur stuðningur eykur væntingar starfsfólks til vinnu og hjálpar til
við að mæta þörfum þess fyrir virðingu, tilfinningalegum stuðningi og sjálfstrausti, sem leiðir til
jákvæðrar vinnuhegðunar. Því meiri félagslegan stuðning sem starfsfólk fær eða skynjar, því betur
mun það geta unnið starf sitt og upplifað jákvæðari tilfinningar í vinnunni sem leiðir til aukinnar
starfsánægju (Lan o.fl., 2018). Rannsókn Kucharska og Bedford (2019) sýnir að sterk tengsl milli fé-