Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Qupperneq 128
Áhrif búsetu á vinnuumhverfi starfsfólks á opinbera vinnumarkaðinum
128 ..
lagslegs stuðnings og starfsánægju tengist vilja starfsfólks til að veita samstarfsfólki sínu aðstoð og
aðgang að sinni sérþekkingu og að starfsánægja skapi jákvætt viðhorf og hollustu gagnvart vinnu-
staðnum. Félagslegur stuðningur á vinnustað stuðlar einnig að jákvæðari starfsreynslu og stuðlar
þannig að meiri skuldbindingu við vinnustaðinn (Rousseau og Aubé, 2010). Auk þess sem félags-
legur stuðningur tengist helgun í starfi þannig að starfsfólk sem upplifir oftar félagslegan stuðning á
vinnustað er meira helgað starfi sínu (Kiema-Junes o.fl., 2020).
Mikilvægt er að hafa í huga að félagslegur stuðningur á vinnustað lítur annars vegar að stuðningi
frá vinnufélögum og hins vegar að stuðningi frá yfirmönnum. Stuðningur frá vinnufélögum vísar til
þess að hve miklu leyti vinnufélagar veita félagslegan og tilfinningalegan stuðning og traust til ann-
arra vinnufélaga sem og hjálp með verkefni (Karasek og Theorell, 1990). Stuðningur frá yfirmönnum
vísar aftur á móti til tilfinningalegs stuðnings eins og samkenndar, endurgjafar og leiðbeininga og
stuðnings við þætti eins og úrræði á vinnustað og framgang í starfi (Bhanthumnavian, 2003). Nýleg
rannsókn Pinna og félaga (2020) sýnir að félagslegur stuðningur bæði frá yfirmönnum og vinnufé-
lögum hefur bein áhrif á starfsánægju á vinnustað. Rannsókn McGuire (2007) sýnir fram á mikilvægi
þess að hlusta á starfsfólkið, leyfa því að tala um persónulegt líf og reynslu og veita þannig stuðning
við að losa um erfiðar tilfinningar sem stuðlar að bættri líðan starfsfólksins. Þannig er hægt að mynda
gott samband milli starfsfólks sem bætir vinnuumhverfi þess og gefur því þá tilfinningu að það til-
heyri og líði vel á vinnustaðnum (Ahmad og Veerapamdian, 2012; Hayes o.fl., 2010).
Félagslegur stuðningur á vinnustað og jákvæður starfsandi sem tengist góðri líðan og starfs-
hvatningu geta einnig verið verndandi þættir fyrir starfsfólk í miklum starfskröfum á tímabundnum
álagstímum (Anderson o.fl., 2023; Seinsche o.fl., 2023). Rannsóknir sýna jafnframt að félagslegur
stuðningur yfirmanna og vinnufélaga getur dregið úr vinnutengdri vanlíðan (Van der Heijen o.fl.,
2017; Hirschl og Gondim, 2020) og dregið úr neikvæðum áhrifum vinnutengdra streituvalda á al-
menna vellíðan í starfi (Hirschl og Gondim, 2020).
Rannsóknir sýna að félagslegur stuðningur á vinnustað getur verið verndandi þáttur gegn nei-
kvæðum þáttum í vinnuumhverfinu (Fang, o.fl., 2021; Hjördís Sigursteinsdóttir o.fl., 2020; Rossi-
ter og Sochos, 2018). Samkvæmt Rasmussen, Hansen og Nielsen (2011) stuðlar mikill félagslegur
stuðningur bæði frá yfirmönnum og vinnufélögum að vellíðan starfsfólks á vinnustað og að sama
skapi hafi lítill félagslegur stuðningur frá yfirmönnum og vinnufélögum neikvæð áhrif og ýti undir
vinnutengda streitu starfsfólksins. Rossiter og Sochos (2918) tengir félagslegan stuðning við einelti
og kulnun þannig að félagslegur stuðningur vinnufélaga og yfirmanna dró úr neikvæðum áhrifum
eineltis á vinnustað og kulnunar í starfi.
Íslenskar rannsóknir á starfsfólki sveitarfélaga sýna að í kjölfar efnahagskreppunnar 2008 kemur
fram að starfsánægja minnkaði eftir því sem leið frá efnahagshruninu, einkum vegna sparnaðarað-
gerða stjórnenda, starfsálag jókst, ánægja með stjórnun minnkaði og umhyggja stjórnenda fyrir
heilsu og líðan starfsfólksins minnkaði (Hjördís Sigursteinsdóttir, 2016). Starfsfólk í menntunar- og
umönnunargeiranum hjá sveitarfélögunum upplifði aukið vinnutengt ofbeldi og hótarnir í kjölfar
kreppunnar (Sigursteinsdóttir o.fl., 2020a) sem og vinnutengt einelti og áreitni (Sigursteinsdóttir
o.fl., 2020b). Rannsókn frá árinu 2015 á starfsfólki sveitarfélaga sýnir að þó starfsánægja hafi mælst
nokkuð há og viðhorf starfsfólksins til vinnunnar sé gott þá tengdist það starfi sínu ekki nægilega
vel, þörfum starfsfólksins var ekki nægilega vel sinnt og það taldi sig vanta viðurkenningu og hrós
í starfi og meiri hvatningu frá bæði yfirmönnum og vinnufélögum (Hjördís Sigursteinsdóttir, 2020).
Nýleg íslensk rannsókn meðal starfsfólks íslenskra sveitarfélaga sýnir að félagslegur stuðningur
hefur jákvæða, miðlungs sterka fylgni við starfsánægju og veika neikvæða fylgni við einelti í starfi.
Út frá þessum niðurstöðum er ályktað að félagslegur stuðningur tengist starfsánægju og er vernd-
andi þáttur gegn einelti og áreitni í starfi og því mikilvægt að huga vel að félagslegum stuðningi á
vinnustað, sérstaklega þegar sálfélagslegt vinnuumhverfið er viðkvæmt eins og á tímum COVID-19
(Hjördís Sigursteinsdóttir og Fjóla Björk Karlsdóttir, 2022).