Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Side 143
Vífill Karlsson og Bjarki Þór Grönfeldt
143 ..
í Bandaríkjunum en sex milljónir á Spáni. Þar segir einnig að á meðal OECD-ríkja hafi Spánn og
Bandaríkin verið þau tvö ríki þar sem innflytjendum fjölgaði mest á árunum 2004-2008. Fjallað er
um að innflytjendur séu sérstaklega berskjaldaðir í kreppum eða á samdráttarskeiðum vegna þess að
þeir séu hlutfallslega margir á markaði fyrir afgangsvinnuafl eða varavinnuafl (e. secondary labour
market). Rannsakendur segja að á þeim markaði séu störfin gjarnan óstöðug, illa launuð og hlunn-
indarýr og innflytjendum sé því hættara við að missa vinnuna og lenda í fátækt þegar harðnar á
dalnum. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar virtist óöryggi innfæddra aukast á samdráttar-
skeiðum, jafnvel þó þeir stæðu betur en innflytjendur og gat gremja innfæddra beinst gegn inn-
flytjendum. Innflytjendur mættu meiri mismunun og félagslegri einangrun í báðum löndum eftir að
bankakreppan skall á. Þar kemur einnig fram að mismunun gagnvart innflytjendum hafi verið minna
áberandi á Spáni en í Bandaríkjunum og er það rakið til þess að ólöglegir innflytjendur af suður-
amerískum uppruna eru hlutfallslega fleiri í Bandaríkjunum en á Spáni, sem kemur m.a. fram í mun
lægri launum (sjá einnig Lessem og Nakjima, 2019).
Atvinnuleysi faglærðra innflytjenda af suður-amerískum uppruna var meira en hjá faglærðum
heimamönnum bæði í Bandaríkjunum og á Spáni en munurinn var meiri í síðarnefnda landinu (Cac-
hon og Aysa-Lastra, 2015). Hins vegar hafa ófaglærðir innflytjendur að þessu leyti orðið harðar úti í
kreppum og á samdráttarskeiðum en faglærðir innflytjendur. Það er í samræmi við niðurstöður ann-
arrar rannsóknar (Orrenius og Madeline, 2009). Enn önnur rannsókn, sem gerð var á Spáni, sýndi að
neysla innflytjenda dróst meira saman en hjá innfæddum í sömu kreppu (Ballester, Velazco, Rigall-I-
Torrent, 2015). Að því sögðu virðast innflytjendur vera meiri frumkvöðlar en heimamenn en fyrirtæki
þeirra eru fyrri til að leggja upp laupana á samdráttarskeiðum (Irastorza og Peña-Legazkue, 2018).
Í rannsókn Petrelli og félaga (2017), sem byggð var á ítölskum gögnum, kom í ljós að enginn
munur hafi verið á þróun andlegrar heilsu kvenna eftir uppruna, andstætt því sem spænsk rannsókn
Gotsens og félaga komst að (2015). Á Ítalíu virðast innflytjendur þó hafa haft almennt betri heilsu
en víða annars staðar og báru Petrelli og félagar sig saman við þrjár aðrar rannsóknir (Nielsen og
Krasnik, 2010; Spallek o.fl., 2011; Subedi og Rosenberg, 2014). Þá komu fram vísbendingar um að
innflytjendur á Norðurlöndunum hefðu verið í meiri smithættu gagnvart COVID-19 en innfæddir
(Sigurjónsdóttir o.fl., 2021). Á Spáni máttu konur af erlendum uppruna þola aukið ofbeldi í kjölfar
kreppunnar eftir bankahrunið og minni þjónustu hins opinbera (Briones-Vozmediano o.fl., 2014).
Þegar kom að þjónustu heilbrigðiskerfisins þá versnaði hún í kjölfar kreppunnar en sérstaklega
gagnvart innflytjendum (Porthé o.fl., 2017).
Nýlega kom út skýrsla frá Nordregio um stöðu innflytjenda á vinnumarkaði á Norðurlöndum á
tímum COVID-19 kreppunnar (Gassen og Penje, 2021). Þar komu fram áður þekkt stef eins og að
í kreppunni hefði félagslegur og efnahagslegur munur eftir uppruna aukist meðal íbúa. Enn fremur
að fólk af erlendum uppruna (þ.e. fætt erlendis) hefði misst atvinnu sína í ríkari mæli en innfæddir
af sömu stétt og stöðu og sérstaklega þeir sem fæddir eru utan Evrópusambandsríkja og hafa minni
menntun. Þess var getið að Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð hefðu verið að glíma við áskor-
anir er tengdust innflytjendum á vinnumarkaði, að þær áskoranir hefðu magnast eftir COVID-19 og
talið var mikilvægt að bregðast sérstaklega við til að koma í veg fyrir langtímaatvinnuleysi þeirra.
Lokaritgerð var unnin við Háskólann á Bifröst rétt eftir bankahrun á Íslandi og fjallaði um hagi
Filippseyinga við þær aðstæður (Torres, 2013). Þar kom í ljós að efnahagur þeirra versnaði verulega
vegna atvinnuleysis og stöðu á fasteignamarkaði. Einnig kom fram að veiking krónunnar olli veru-
legum búsifjum vegna þess að þeir áttu erfiðara með að styðja við fjölskyldur sínar í upprunalandinu
með fjárframlögum eins og þeir höfðu gert um tíma. Rannsókn Mirru fræðslu- og rannsóknarseturs á
stöðu innflytjenda í ferðaþjónustu leiddi í ljós verulegar brotalamir í stuðningskerfi við innflytjendur
sem og margvísleg brot á réttindum þeirra (Hallfríður Þórarinsdóttir, 2019). Annars hefur staða inn-
flytjenda á Íslandi lítið verið rannsökuð í tengslum við kreppur eða hagsveiflur. Því er fullt tilefni til
að ráðast í rannsóknir á stöðu þeirra á vinnumarkaði.
Eftirfarandi upplýsingar fengust hjá Jóngeiri Hjörvari Hlinasyni, sem starfar á Fjármála- og