Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Blaðsíða 158
Staða innflytjenda á vinnumarkaði á krepputímum eftir byggðamynstri og atvinnugreinum
158 ..
byggju á höfuðborgarsvæðinu. Hér er komin upp ákveðin þversögn sem væri verðugt verkefni að
greina í frekari rannsóknum. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar þar sem borin er saman staða innflytj-
enda eftir búsetu á Íslandi og er það von höfunda að þessi grein geti veitt rannsakendum innblástur
til að ráðast í það mikilvæga verkefni.
Niðurstöðurnar um stöðu innflytjenda á vinnumarkaði eru í nokkru samræmi við þær erlendu
rannsóknir sem horft var til (t.d. Cachon og Aysa-Lastra, 2015; Orrenius og Madeline, 2009) en það
er áhyggjuefni og full ástæða til að hugleiða aðgerðir til úrbóta. Tvær hugsanlegar leiðir til úrbóta
væru aukin tungumálakennsla og betri upplýsingar um þessa stöðu en hvorutveggja eru liður í því
að gera innflytjendur upplýstari. Íslenskunámskeið fyrir innflytjendur mættu vera ódýrari. Aukin
menntun að öðru leyti virðist ekki vera vænleg til árangurs því innflytjendur eru oftar betur mennt-
aðir en Íslendingar innan sömu atvinnugreina. Hins vegar er brýnt að beita raunfærnimati gagnvart
innflytjendum því dæmi eru um að innflytjendur fái ekki að starfa á sínu sérsviði vegna þess að
menntun sú sem þeir hlutu erlendis og starfsreynsla eru ekki metin hér á landi. Gera mætti upp-
lýsingar um stöðu innflytjenda á Íslandi aðgengilegri og hafa þær á íslensku, ensku, pólsku og e.t.v.
fleiri tungumálum. Þá þyrfti líka að upplýsa innflytjendur vel um réttindi sín og skyldur. Fleiri að-
gerðir mætti eða þyrfti að nefna en hér er látið staðar numið.
Fjármögnun
Höfundar þakka styrk upp á 2.500.000 kr sem Byggðarannsóknasjóður veitti verkefninu og styrk frá
Þróunarsjóði innflytjendamála upp á 1.500.000 kr. Án styrkjanna hefði verkefnið aldrei verið unnið.
Rannsókn þessi naut líka styrkja Innviðaráðuneytisins og Byggðaáætlunar með fjármögnun á Rann-
sóknaretri í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst.
Eftirmálsgreinar
1 Dreifbýlið er reyndar undantekning þarna því ef stuðlarnir fara undir 1 þá komu þau samfélög ver út en dreifbýlið. Af
þessu má því ætla að fólki í dreifbýli landsins líki mjög vel aðstæður á vinnumarkaði þó svo tekjurnar séu lægstar þar
(Líkan 9).
2 Hér er um p-gildi (Prob > chi2) að ræða sem þarf að vera lægra en 0,05 til þess að sýna fram á að Líkanið í heild sinni
hafi einhver áhrif (nánar tiltekið: hafna tilgátunni um að líkanið í heild sinni hafi engin áhrif á breytileikann í háðu
breytu líkansins).
3 Krítíska gildið fyrir Líkan 10 var 14,1 við 5% marktektarkröfu (eða 12 við 10%) og 26 (eða 28,9) í Líkani 9.
Heimildaskrá
Balestra, S. og Backes-Kellner, U. (2017). Heterogeneous returns to education over the wage distribution: Who profits the
most? Labour Economics, 44, 89-105. https://doi.org/10.1016/j.labeco.2017.01.001
Ballester, R., Velazco, J., & Rigall-I-Torrent, R. (2015). Effects of the Great Recession on immigrants‘ household cons-
umption in Spain. Social Indicators Research, 123, 771-797. https://doi.org/10.1007/s11205-014-0760-1
Barbaglia, M. G., Have, M. t., Dorsselaer, S., Alonso, J. og de Graaf, R. (2015). Negative socioeconomic changes and
mental disorders: A longitudinal study. Journal of Epidemiology and Community Health, 69(1), 55-62. https://doi.
org/10.1136/jech-2014-204184
Block, J. H., Millán, J. M., Román, C. og Zhou, H. (2014). Job satisfaction and wages of family employees. Entrepre-
neurship Theory and Practice, 39(2), 183-207. https://doi.org/10.1111/etap.12035
Boyes, W. og Melvin, M. (1999). Economics. Houghton Mifflin Company.
Briones-Vozmediano, E., Agudelo-Suarez, A. A., Goicolea, I., & Vives-Cases, C. (2014). Economic crisis, immigrant
women and changing availability of intimate partner violence services: a qualitative study of professionals’ percep-
tions in Spain. International Journal for Equity in Health, 13(1), 79. http://dx.doi.org/10.1186/s12939-014-0079-1
Cachon, L. og Aysa-Lastra, M (ritstj.). (2015). Immigrant vulnerability and resilience. Springer Cham. https://doi.
org/10.1007/978-3-319-14797-0
Calnan, R., & Painter, G. (2017). The response of Latino immigrants to the Great Recession: Occupational and residential
(im)mobility. Urban Studies, 54(11), 2561-2591. https://doi.org/10.1177/0042098016650567
Duncan, G. J., & Holmlund, B. (1983). Was Adam Smith right after all? Another test of the theory of compensating wage
differentials. Journal of Labor Economics, 1(4), 366-379. https://doi.org/10.1086/298018