Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 163

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 163
Kolbeinn Stefánsson 163 .. samsöfnun innflytjenda í ákveðin hverfi getur haft áhrif á bæði gæði menntunar barna þeirra sem og þau félagslegu tengslanet sem verða til í skólunum. Bæði geta haft áhrif á framtíðarmöguleika barna innflytjenda. Rannsóknarspurningin sem er leitast við að svara í þessari grein er eftirfarandi: Hvort falla búsetumynstur pólskra innflytjenda í Reykjavík best að kenningum um almenna, sértæka eða lagskipta aðlögun? Nánar verður fjallað um þessar kenningar í næsta kafla þessarar greinar. Það sem kemur hér á eftir er sem hér segir. Í næsta kafla verður farið yfir kenningar um búsetu- mynstur og rannsóknir á pólskum innflytjendum á Íslandi. Þar á eftir verður fjallað um gögnin sem rannsóknin byggir á og þær aðferðir sem eru notaðar til að greina þær en þó einkum svokallaða ólíkindavísitölu (e. dissimilarity index) sem verður notuð til að bera saman búsetumynstur pólskra innflytjenda og innfæddra. Í kjölfar þess verða birtar niðurstöður greininga og að lokum verða niður- stöðurnar dregnar saman og þær ræddar. Þessi grein er hluti af rannsóknarverkefninu Félagslegt landslag í Reykjavík sem er styrkt af hluta af Reykjavíkurborg. Fræðilegt samhengi Kenningar Rannsóknir á búsetumynstrum ólíkra þjóðfélagshópa eiga rætur sínar í rannsóknum á aðskilinni bú- seta svartra og hvítra í stórborgum Bandaríkjanna (sjá til dæmis Du Bois 1899; Duncan og Duncan 1955; Massey og Denton 1993; Park og Burgess 1925; Wilson 1987). Það er þó ekki hægt að heim- færa kenningar og niðurstöður rannsókna þess viðfangsefnis á búsetumynstur innflytjenda þar sem samhengið er gerólíkt. Stærstur hluti svartra Bandaríkjamanna eru afkomendur þræla sem voru flutt- ir nauðflutningum til Bandaríkjanna á meðan stærstur hluti seinni tíma innflytjenda á Vesturlöndum hafa valið að flytja þangað. Það á við um pólska innflytjendur á Íslandi. Þá er ekki endilega hægt að heimfæra niðurstöður rannsókna á stöðu innflytjenda á milli landa þar sem munur á stofnunum og menningu landa hefur allnokkur áhrif þar á sem og samsetning innflytjendahópsins. Hvað varðar samsetningu innflytjendahópsins er fjöldi þátta sem skiptir máli svo sem húðlitur, menningarleg fjarlægð, efnahagsástand í upprunalandinu, tungumálafærni (Heath og Cheung, 2007) og úr hvaða lögum upprunasamfélagsins innflytjendur koma (Engzell, 2019; Engzell og Ichou, 2019). Þannig hefur til dæmis börnum sumra innflytjendahópa í Bretlandi og Svíþjóð vegnað mjög vel í námi og síðar á vinnumarkaði á meðan innflytjendur frá öðrum löndum eiga erfitt uppdráttar (Engzell, 2019; Jackson, Jonsson og Rudolpji, 2011; Jonsson, 2007). Það er hins vegar ekki ljóst hvað slíkar niðurstöður segja okkur um afdrif pólskra innflytjenda á Íslandi. Jafnvel þegar um er að ræða innflytjendur frá sama landi er ekki hægt að heimfæra niðurstöður á milli landa, bæði vegna áðurnefnds munar á menningu og stofnunum en einnig vegna þess að fólk sem flytur frá sama landi en til mismunandi áfangastaða koma ekki endilega frá sömu svæðum eða úr sömu lögum heima- landsins. Í grunninn eru þrjú kenningaleg sjónarhorn um hvernig búsetumynstur innflytjenda þróast yfir tíma, það er 1) almenn aðlögun (e. assimilation), sértæk aðlögum (e. selective assimilation) og lag- skipt aðlögun (e. segmented assimilation). Samkvæmt kenningum um almenna aðlögun hafa innflytjendur takmarkaðar bjargir þegar þeir setjast að í nýju landi. Fyrir vikið taka þeir upp búsetu á svæðum þar sem húsnæði er ódýrara. Það þýðir að innflytjendur setjast fyrst að í hverfum þar sem aðrir íbúar eru almennt fátækari. Í fyllingu tímans skjóta þeir rótum í samfélaginu, hagur þeirra vænkast og þekking þeirra á samfélaginu eykst. Innflytjendurnir nýta þessar bjargir til að flytja sig um set og setjast nú að í efnameiri hverfum þar sem hærra hlutfall íbúa eru innfæddir (Alba og Nee, 2003). Það styrkir svo aftur tengsl þeirra við samfélagið sem ýtir undir að staða þeirra styrkist. Hluti af þessari þróun felst í aukinni samsömun innflytjenda við þjóðfélagið sem þeir fluttu til. Það þýðir meðal annars að því lengur sem innflytjendur hafa búið í landinu, því fleiri minningar eiga þeir sameiginlegar með innfæddum auk þess sem innflytjendur taka upp sífellt meira af lífsháttum innfæddra, svo sem siðum, venjum og gildum (Telles og Ortis, 2009). Með aukinni aðlögun innflytj-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.