Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Side 172

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Side 172
Aðskilin búseta: Búsetumynstur pólskra innflytjenda í Reykjavík 172 .. er einnig hærra en á öðrum svæðum borgarinnar í skólahverfum Rimaskóla, Engjaskóla, Norð- lingaskóla og Sæmundarskóla. Eldri úthverfin eru það svæði sem kemst næst nýrri úthverfunum en pólskir innflytjendur í því hverfi hafa búið að meðaltali sjö ár á Íslandi og 7,5 ár Fellaskólahverfi. Mynd 6. Ólíkindavísitala. Samanburður á búsetumynstrum pólskra innflytjenda eftir lengd dvalar og borgarbúa með íslenskan bakgrunn 12 Nýrri úthverfin eru það svæði þar sem pólskir innflytjendur búa sem hafa búið lengst á landinu, að meðaltali í 7,1 ár. Þar stendur Ingunnarskólahverfi upp úr með 11,8 ár að meðaltali en meðaltalið er einnig hærra en á öðrum svæðum borgarinnar í skólahverfum Rimaskóla, Engjaskóla, Norðlingaskóla og Sæmundarskóla. Eldri úthverfin eru það svæði sem kemst næst nýrri úthverfunum en pólskir innflytjendur í því hverfi hafa búið að meðaltali sjö ár á Íslandi og 7,5 ár Fellaskólahverfi. Mynd 6. Ólíkindavísitala. Samanburður á búsetumynstrum pólskra innflytjenda eftir lengd dvalar og borgarbúa með íslenskan bakgrunn Til að draga saman heildarmyndina birtir mynd 6 ólíkindavísitölur þar sem búsetumynstur pólskra innflytjenda sem hafa verið mislengi á Íslandi eru borin saman sem og við búsetumynstur borgarbúa með íslenskan bakgrunn. Fyrstu þrjár súlurnar bera búsetumynstur pólskra innflytjenda eftir lengd dvalar saman við borgarbúa með íslenskan bakgrunn. Næstu tvær súlur bera búsetumynstur pólskra innflytjenda sem hafa búið á Íslandi í 5-9 ár og tíu ár eða lengur saman við búsetumynstur pólskra innflytjenda sem hafa búið skemur en fimm ár á landinu. Að lokum ber sjötta súlan búsetumynstur pólskra innflytjenda sem hafa búið í tíu ár eða lengur á landinu saman við búsetumynstur pólskra innflytjenda sem hafa búið hér í 5-9 ár. Í stuttu máli benda tölurnar ekki til þess að lengri búseta tengist aukinni samleitni við búsetumynstur borgarbúa með íslenskan bakgrunn. Þvert á móti er hæsta hlutfallið sem þyrfti að flytja á milli skólahverfa til að fá sömu búsetudreifingu og borgarbúar með íslenskan bakgrunn á meðal pólskra innflytjenda sem hafa búið á Íslandi í 10 ár eða lengur. Niðurstöðurnar benda einnig til þess að búsetumynstur pólskra innflytjenda heilt yfir samanstandi af aðskildum búsetumynstrum að minnsta kosti tveggja hópa þeirra, það er þeirra sem hafa búið á Íslandi í lengri tíma og þeirra sem hafa búið þar í skemmri tíma. Raunar eru búsetumynstur þessara tveggja hópa jafn ólík og búsetumynstur þeirra og borgarbúa með íslenskan bakgrunn. Hópurinn sem hefur búið á Íslandi í 5-9 ár stendur svo mitt á milli enda meðlimir þess hóps hugsanlega að færast á milli þessara hópa. Sambandið á milli fjölda pólskra innflytjenda í skólahverfi og miðgildi ráðstöfunartekna íbúa hverfisins er mun veikara ef það er aðeins horft til þeirra innflytjenda sem hafa búið á landinu í 10 ár eða lengur en ef það er horft til allra pólskra innflytjenda. Pearson fylgnin er -0,49 samanborið við - 0,84. Tilhneigingin til að safnast saman á tekjulægri svæðum er enn til staðar en hún er mun veikari en hún er fyrir hópinn sem hefur búið skemur á Íslandi. Niðurstöðurnar í þessum hluta styðja að hluta við tilgátu 3 að því leyti að pólskir innflytjendur sem 29,2% 25,3% 31,1% 20,0% 32,6% 16,1% 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% 35% 0-4 ár 5-9 ár >9 ár 5-9 ár >9 ár >9 ár Íslenskur bakgrunnur Innflytjendur 0-4 ár- Innflytjendur 5-9 ár Til að drag s man heildarmyndina birtir mynd 6 ólíkindavísitölur þar sem búsetumynstur pólskra innflytjenda sem hafa verið mislengi á Íslandi eru borin saman sem og við búsetumynstur borgarbúa með íslenskan bakgrunn. Fyrstu þrjár súlurnar bera búsetumynstur pólskra innflytjenda eftir lengd dvalar saman við borgarbúa með íslenskan bakgrunn. Næstu tvær súlur bera búsetumynstur pólskra innflytjenda sem hafa búið á Íslandi í 5-9 ár og tíu ár eða lengur saman við búsetumynstur pólskra innflytjenda sem hafa búið skemur en fimm ár á landinu. Að lokum ber sjötta súlan búsetumynstur pólskra innflytjenda sem hafa búið í tíu ár eða lengur á landinu saman við búsetumynstur pólskra innflytjenda sem hafa búið hér í 5-9 ár. Í stuttu máli benda tölurnar ekki til þess að lengri búseta tengist aukinni samleitni við búsetu- mynstur borgarbúa með íslenskan bakgrunn. Þvert á móti er hæsta hlutfallið sem þyrfti að flytja á milli skólahverfa til að fá sömu búsetudreifingu og borgarbúar með íslenskan bakgrunn á meðal pólskra innflytjenda sem hafa búið á Íslandi í 10 ár eða lengur. Niðurstöðurnar benda einnig til þess að búsetumynstur pólskra innflytjenda heilt yfir samanstandi af aðskildum búsetumynstrum að minnsta kosti tveggja hópa þeirra, það er þeirra sem hafa búið á Íslandi í lengri tíma og þeirra sem hafa búið þar í skemmri tíma. Raunar eru búsetumynstur þessara tveggja hópa jafn ólík og búsetumynstur þeirra og borgarbúa með íslenskan bakgrunn. Hópurinn sem hefur búið á Íslandi í 5-9 ár stendur svo mitt á milli enda meðlimir þess hóps hugsanlega að færast á milli þessara hópa. Sambandið á milli fjölda pólskra innflytjenda í skólahverfi og miðgildi ráðstöfunartekna íbúa hverfisins er mun veikara ef það er aðeins horft til þeirra innflytjenda sem hafa búið á landinu í 10 ár eða lengur en ef það er horft til allra pólskra innflytjenda. Pearson fylgnin er -0,49 samanborið við -0,84. Tilhneigingin til að safnast saman á tekjulægri svæðum er enn til staðar en hún er mun veikari en hún er fyrir hópinn sem hefur búið skemur á Íslandi. Niðurstöðurnar í þessum hluta styðja að hluta við tilgátu 3 að því leyti að pólskir innflytjendur sem hafa búið lengur á Íslandi eru ekki eins bundnir við tekjulág hverfi eins og þeir sem hafa dvalið hér skemur. Lengstu búsetuna er að finna í nýrri úthverfunum og tilteknum skólahverfum innan þeirra þar sem hlutfall pólskra innflytjenda er fremur lágt.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.