Félagsrit KRON - 15.12.1947, Side 96
Fjórir starfsm.
höfðu starfað
hjá KRON frá
itofnun þess og
áttu þvi 10 ára
itarfsafmœli
hjá félaginu 6.
ág. 1947: Gyða
Halldórsd.,
Tryggvi Ólafs-
son, Reynir
Snjólfsson og
Aðalst. Guð-
mundsson
tungumálanámsskeiði, sérstaklega í
sænsku.
Árið 1938 var fremur dauft vfir
fræðslustarfseminni fyrri hluta árs-
ins, enda beindist starfið þá mest að
skipulagi félagsmálanna sjálfra. Síð-
ustu mánuði ársins færðist þó nýtt
fjör í starfið og tóku margir fulltrú-
ar drjúgan þátt í því. Nýir liðir í
fræðslustarfseminni voru námsskeið
fyrir yngstu starfsmennina, sendi-
sveinana, og húsmæðrafræðslan, sem
samkvæmt tillögu aðalfundar var
undirbúin á árinu, en kom ekki til
framkvæmda fyrr en á árinu 1939.
Árið 1939 héldu ýmsir áhugasam-
ir félagsmenn uppi leshring í því
skyni að kynna sér sögu samvinnu-
hreyfingarinnar og tilgang. Les-
hringurinn hafði aðsetur sitt á
skrifstofu félagsins og voru þátttak-
126
endur 15, að mestu fulltrúar og
deildarstjórnarmenn. Fulltrúar og
deildarstjórnir héldu einnig uppi
umræðum um samvinnumál og þá
einkum um félagið og starfsemi
þess.
Fyrri hluta ársins 1939 var haldið
uppi fræðslu fyrir húsmæður, m. a.
fluttu þeir dr. Jón Vestdal og Stein-
grímur Steinþórsson, búnaðarmála-
stjóri, erindi um næringarefni og
notagildi fæðutegunda.
Áhugasamar félagskonur kornu
einnig saman nokkrum sinnum til
þess að ræða um félagsmál og skipu-
lagningu fræðslustarfseminnar, en
það sem mest hamlaði því, að þátt-
taka í þeim fundum væri góð, var
óhentugt Iiúsnæði, og varð að notast
við skrifstofur félagsins.
Þá var komið á námsskeiði fyrir
Félagsrit KRON