Félagsrit KRON - 15.12.1947, Blaðsíða 47
því til félaganna, að þau hrindi
sameiningunni í framkvæmd hið
fyrsta. Síðan eru haldnir tveir al-
mennir félagsfundir um málið,
hinn 12. og 19. júlí. Kom fram svip-
uð andstaða eins og áður, en til-
lögur stjórnarinnar eru samþykktar
á báðurn fundunum, með 39 at-
kvæðum gegn 16 á þeim fyrri, og
52 gegn 21 á þeim síðari. Þó var
gert ráð fyrir nokkrum minniháttar
breytingum á lagauppkastinu, er
síðar náðist samkomulag um við
fulltrúa frá P. V.
I Pöntunarfélaginu gætti ekki
þeirrar andstöðu gegn sameining-
unni, er vart varð í hinu félaginu.
A fundum þeim, sem málið er rætt
á, er það aðeins eitt atriði í sam-
bandi við sameininguna, sem sætir
verulegri og nokkuð almennri gagn-
rýni, en það var nafnbreytingin
Kemur hér fram tortryggni gagn-
vart þeim breytingum á grundvelli
og skipulagi Pöntunarfélagsins, er
þegar höfðu átt sér stað, og nú áttu
að verða enn meiri, og sem fengu
sína ytri staðfestingu í nafnbreyt-
ingunni. Á framhaldsaðalfundi
Pöntunarfélagsins hinn 14. júlí eru
tillögur stjórnarinnar endanlega
samþykktar með 35 atkvæðum gegn
1,4. Þeir, sem atkvæði greiddu gegn
tillögunni, lýstu því þó yfir, að það
væri aðeins nafnbreytingin, senr
þeir gætu ekki fellt sig við.
Þar með var öllum steinum úr
vegi rutt og hinn 3. og 6. ágúst
halda félögin sína síðustu fundi og
kjósa fulltrúa á stofnfund hins nýja
félags.
IV, Neytendahreyfingin í HafnarfirSi og á SuSurnesjum
Eins og þegar hefur verið vikið
að, voru það ekki aðeins Kaupfélag
Reykjavíkur og Pöntunarfélag
verkamanna, sem stóðu að stofnun
KRON, heldur einnig neytendafé-
lög í Hafnarfirði og á Suðurnesjum.
Skal hér nokkur grein gerð fyrir
upphafi og þróun þessara félaga.
Pöntunarfélag
Verkamannafélagsins Hlifar
Það var Verkamannafélagið Hlíf,
sem fyrst stofnaði til neytendasam-
taka í Hafnarfirði. Þegar árið 1916,
er mjög kreppti að verkamönnum
Félagsrit KRON
sökum vaxandi dýrtíðar, kaus félag-
ið sérstaka nefnd til þess að athuga
möguleikana á sameiginlegum vöru-
innkaupum fyrir félagsmenn.
Nefnd þessi, sem kölluð var vöru-
kaupanefndin, fékk haustið 1916
kol og olíu, sem deilt var milli fé-
lagsmanna við verði, sem var langt
undir gangverði á staðnum.
Haustið 1919 fékk pöntunardeild
Hlífar allmikið af nauðsynjavörum,
og árið 1920 var opnuð sölubúð
undir nafninu Verzlunin Hlíf. Þessi
verzlun varð þó að hætta eftir eitt
ár vegna ýmissa örðugleika, og var
77