Félagsrit KRON - 15.12.1947, Page 21
Og mynduðu félagsmennirnir í
hverju hverfi félagsdeild. Þessar
nýju deildir höfðu miklu þrengra
verksvið, en þær gömlu. Þær höfðu
ekkert beint með pantanir eða vöru-
dreifingu að gera, en fundir þeirra
áttu hinsvegar að ræða reikninga
félagsins og lagabreytingar og kjósa
fulltrúa á aðalfund, einn fyrir
hverja 20 meðlimi. Telja má víst,
að aðaltilgangur þessa fyrirkomu-
lags hafi verið að halda nánu sam-
bandi milli meðlima og félagsstjórn-
ar, og hafi deildarstjórnir og deild-
arfulltrúar átt að vera þar tengilið-
ir. Um leið bar þetta fyrirkomulag
nokkurn keim af því eldra og upp-
runalegra. Það kemur í ljós í fund-
argerðum, að þessar breytingar hafa
mætt nokkurri andstöðu, og hafa
sumir félagsmanna viljað halda í
hið gamla skipulag að einhverju
leyti. Þó voru þessar lagabreytingar
að miklu leyti staðfesting á orðnum
hlut, því að pöntunardeildirnar inn-
anbæjar höfðu á árinu flutt af-
greiðslu sína til Pöntunarfélagsins.
I hinum breyttu lögum var álagn-
ing á pöntunarviðskipti ákveðin
10%, en í búð skyldi vöruverð vera
sem lægst, eða yfirleitt 10% undir
kaupmannaverði, en þá eingöngu
selt félagsmönnum. Af útborganleg-
um arði skyldu 3/5 leggjast í stofn-
sjóð sem séreign félagsmanna og á-
vaxtast með 4%. Ennfremur skyldi
varasjóðstillag verða 1% í stað
li/2% °g leggjast jafnt á pöntunar-
viðskipti sem önnur viðskipti. Á-
kvæðið um, að varasjóð mætti ekki
nota í rekstrinum, var fellt burtu,
enda mun því ekki hafa verið fram-
fylgt að öllu leyti.
Á sambandi Pöntunarfélagsins
við deildirnar í úthverfunum, sem
halda áttu hinu gamla skipulagi
þrátt fyrir lagabreytingarnar, virð-
ast hafa verið allmiklir örðugleikar.
Munu þeir örðugleikar fyrst og
fremst hafa stafað af því, að erfitt
var að halda uppi hinu gamla af-
greiðslufyrirkomulagi, en þó ekki
vegna fjarlægðarinnar hægt að flytja
afgreiðsluna til húsakynna Pöntun-
arfélagsins inni í bænum. Oskuðu
því úthverfadeildirnar eindregið
eftir sölubúðum í hverfum sínum,
en þeim kröfum taldi félagsstjórnin
sio eisa erfitt að sinna að svo stöddu,
o o
vegna fjárskorts og af ótta við, að
slíkar búðir gætu orðið baggi á fé-
laginu.
Þessi ágreiningur varð til þess, að
Grímsstaðaholtsdeildin gekk rir
Pöntunarfélaginu í marz 1936. Hef-
ur sú deild ætíð síðan starfað sem
sjálfstætt kaupfélag. En einnig í út-
hverfunum færðist starfsemin meir
og meir burt frá hinu gamla fvrir-
komulagi. í marz 1936 tekur Pönt-
unarfélagið þannig t. d. að fullu að
sér pöntunarafgreiðslu Skerjafjarð-
ardeildarinnar. í ársskýrslunni fyrir
árið 1936 er sagt, að enn séu tvö
félög í bænum, auk þeirra utan-
bæjarfélaga, sem þá voru komin í
samband við félagið, sem enn af-
greiddu vörur sínar sjálfar, en að
þau myndu þá fljótlega yfirfæra
hana til Pöntunarfélagsins.
Félagsrit KRON