Félagsrit KRON - 15.12.1947, Qupperneq 68
greiðslan og pöntunarafgreiðslan.
Um staðgreiðsluna hefur nokkuð
verið rætt áður, og skal lrér aðeins
ítrekað, að hún hlýtur að iækka
dreifingarkostnað allverulega, þar
sem hún bæði sparar bókhald og
innheimtukostnað auk þeirra van-
halda, sem ætíð hljóta að verða á
útistandandi skuldum. Það er fljót-
séð, að pöntunarafgreiðsla, þar sem
eingöngu er afgreitt allverulegt
vörumagn í einu, hlýtur að vera
stórum hagkvæmari en venjuleg
búðarafgreiðsla. Það munar litlu í
tilkostnaði fyrir verzlun að afgreiða
tíu kg. af einhverri matvöru í einu
heldur en að afgreiða eitt kg. Fyrir-
höfn móttakenda er heldur ekki
miklu meiri, og jafnvel minni, ef
um heimsendingu er að ræða, sem
einnig verður miklu ódýrari fyrir
verzlunina, ef um verulegt vöru-
magn er að ræða. Ef enginn verð-
mismunur er gerður, hvort sem um
lítil eða mikil kaup er að ræða,
freistast neytendur til að kaupa
aðallega í smáslöttum, sem aftur
gerir alla dreifinguna dýrari. KRON
hefur því frá upphafi haldið fast
við pöntunarafgreiðsluna sem veiga-
mikinn lið í starfsemi sinni. Árið
1938 var því skipulagi komið á
pöntunarafgreiðsluna, að fast pönt-
unarverð miðað við búðarverð var
sett á allar pöntunarvörur. Skyldi
það vera 5% lægra en búðarverð.
Þetta skipulag er að mestu óbreytt
enn. Afslátturinn er sá sami, en ekki
má gera pantanir fyrir minna en
100 kr. í einu. Pöntunarlistum má
98
skila í öllum matvörubúðum, jg eru
pantanirnar síðan afgreiddar frá
Skólavörðustíg 12 og sendar heim,
hvert sem er í bænum. Ekki er hægt
að njóta pöntunarkjara á öllum vör-
um, sem félagið selur. Er þessi af-
greiðsla takmörkuð við matvörur
og aðrar slíkar vörur, þó að undan-
teknu kjöti. Nýtur pöntunarfyrir-
komulagið sífellt mikilla vinsælda
og mun fyrirsjáanlega lialda áfram
að vera veigamikill liður í starfsemi
félagsins.
o
5. Framleiðslustarfsemi
Efnagerð
Bæði Kaupfélag Reykjavíkur og
Pöntunarfélag verkamanna höfðu
hafið rekstur efnagerða, þó í litlum
mæli væri. Hélt KRON þeirri starf-
semi áfram. Árið 1938 var efnagerð-
in flutt í húsið við Hverfisgötu 52
og fékk þar betri aðstöðu en áður.
Framleiðslan óx árið 1939 bæði að
magni og fjölbreytni, og var nú
tekið að framleiða matarlit, sykur-
vatn, niðursoðin ber og rabarbara o.
fl. auk kaffi- og gerblöndunar, sem
áður hafði verið rekin. Þá var og haf-
in framleiðsla á fóðurblöndu fyrir
kýr og hænsni, að miklu leyti úr inn-
lendum efnum, svo sem fiskimjöli
og heymjöli. Efnagerðin var á næstu
árum rekin með svipuðu sniði og
áður og skilaði jafnan góðum á-
rangri. í síðustu ársskýrslu KRON
1946 segir svo um efnagerðina:
„Efnagerðin færist stöðugt í aukana
og skilar góðum árangri, þegar á
Félagsrit KRON