Félagsrit KRON - 15.12.1947, Blaðsíða 100
gerðar að sjálfstæðum félögum. Um
aðdraganda skilnaðarins segir svo í
ársskýrslu KRON 1945:
„Eitt þeirra skipulagsákvæða sam-
vinnufélaganna, sem deila má um,
er hve stórt félagssvæði hvers félags
skuli vera. Koma þar m. a. til greina
staðhættir, atvinnuvegir, samgöng-
ur o. fl.
Að því er skipulag KRON varðar
hafa ýmsir félagsmenn verið á þeirri
skoðun, að eðlilegasta félagssvæði
þess væri í Reykjavík og næsta ná-
grenni, en bæði Hafnarfjörður og
Suðurnes væri hvort um sig eðlileg
félagssvæði sjálfstæðra kaupfélaga.
Aðrir hafa aftur á móti talið Gull-
bringu- og Kjósarsýslu, ásamt
Reykjavík, hæfilegt svæði fyrir eitt
félag, einkum þó í byrjun meðan
samtökunum væri að vaxa íiskur
um hrygg. Eftir átta ára starf
KRON var félagið orðið svo öflugt
á öllum framangreindum stöðum,
að þeirri skoðun óx fylgi að skipta
félaginu samkvæmt því, sem eðli-
legt rnætti telja samkvæmt framan-
greindum sjónarmiðum, enda liafði
það alltaf verið þannig, bæði sam-
kvæmt settum reglum og í fram-
kvæmdinni, að Hafnarfjarðar- og
Keflavíkurdeildir höfðu rýmri sjálf-
stjórn en aðrar deildir. Hver niður-
staða þessa máls yrði, hlaut fyrst og
fremst að velta á vilja félagsmanna
í þessum deildum, enda vörðuðu
úrslitin þá mest.“
Þessari málaleitan deildanna var
vel tekið af stjórn félagsins, og var
kjörin nefnd til að athuga, hvernig
aðskilnaðinum yrði bezt hagað og
til að gera drög að samkomulagi um
skiptin. Nefndin var sammála um,
að framkvæmdin yrði sú, að nýtt fé-
lag yrði stofnað á hvorum stað, og
einnig náðist fljótt samkomulag um
skiptagrundvöll. I samræmi við til-
lögur nefndarinnar bar stjórnin
frarn tillögu á aðalfundi 1945 um
aðskilnaðinn, er hlaut samþykki
fundarins. Samkvæmt þessari til-
lögu skyldu deildirnar lagðar niður,
ef meira en helmingur deildar-
manna óskaði þess skriflega, og lýsti
því jafnframt yfir, að hann stæði að
stofnun nýs kaupfélags á staðnum.
Hinum nýju félögum skyldi síðan
afhent stofnsjóðseign þeirra félags-
manna KRON, er gengið hefðu í
hið nýja félag. Ennfremur skyldi
hinum nýju félögum afhentur hluti
af varasjóði og hreinni eign KRON
umfram sjóði, er svaraði til þess
hluta af vörusölu KRON fram til
ársloka 1944, er átt hefði sér stað á
svæðum hinna nýju félaga. Hrein
eign umfram sjóði skyldi ákveðin
með sérstöku samkomulagi, eða að
öðum kosti eftir sérstöku mati.
Hinum nýju félögum skyldi gefinn
kostur á að kaupa allar eignir
KRON á félagssvæðum sínum eftir
samkomulagi eða mati. Samþykktin
um aðskilnaðinn skyldi ekki öðlast
fullnaðargildi, fyrr en hún hefði
verið rædd og borin undir atkvæði
í öllum deildum félagsins og síðan
samþykkt að nýju á fulltrúafundi
með eigi minna en 2/3 atkvæða at-
kvæðisbærra fundarmanna.
130
Félagsrit KRON