Félagsrit KRON - 15.12.1947, Side 26

Félagsrit KRON - 15.12.1947, Side 26
ar vefnaðarvöruverzlunar. Þegar á átti að herða fékkst þó K. R. ekki til að vera með í þessu f'yrirtæki, og liefur verið nánar frá því skýrt í kaflanum um það félag. Voru þá teknar upp samningaumleitanir við Alþýðubrauðgerðina, um að hún yrði þátttakandi í fyrirtækinu, en það varð einnig árangurslaust. Réðst því félagið í það að hefja rekstur vefnaðar- og búsáhaldaverzl- unar upp á eigin spýtur í júlímán- uði 1936. Var verzlun þessi í ágæt- um húsakynnum í iiinu nýja Al- þýðuhúsi við Hverfisgötu og Ing- ólfsstræti, þar sem nú er bókabúð KRON. Vörubirgðir búsáhalda- verzlunarinnar „Berlínar“ voru keyptar og fluttar í hina nýju búð. I ársskýrslunni 1936 segir, að rekst- ur búðarinnar hafi gengið prýði- lega, og vöruverð verið þar miklu lægra en annars staðar í bænum á sams konar vörum. Þó er í skýrsl- unni mjög kvartað um takmörkuð innflutningsleyfi. Nam sala þessara vara, sem í reikningunum koma fram undir nafninu „sérdeild“, 123.000 kr. árið 1936. Samtals var því vörusalan árið 1936 749.000 kr., eða um það bil helmingi meiri en árið áður. Allt frá stofnun félagsins höfðu larið fram umræður í stjórninni um nauðsyn þess að útvega félaginu hið fyrsta stærra og betra húsnæði, og ýmsar tilraunir verið gerðar í þá átt. Endanleg lausn á því máli fékkst haustið 1935, er félagið tekk mjög aukið húspláss á Skólavörðustíg 12, bæði fyrir búðir, pöntunaraf- greiðslu og skrifstofur. Var þá horn- búðin fengin á leigu. Þetta húsnæði var tekið til afnota á árinu 1936, og er í ársskýrslu þess árs talið, að búð- in fullnægi nú fyllstu kröfum neyt- enda, livað rúm og hreinlæti snerti, enda hafi sölubúðir sænskra neyt- endafélaga verið hafðar til fyrir- myndar við innréttingu. I sambandi við þessa búð var komið fyrir sér- stakri kjötdeild. Önnur aukning starfseminnar, sem lengi hafði verið fyrirhuguð, og mjög á eftir knúið af hinum einstöku deildum, var stofnun úti- búa. Komst þetta í framkvæmd á ár- inu 1936, en þá var hinn 1. október hafinn rekstur útibús fyrir austur- bæinn á Grettisgötu 46. Var keypt búð, sem þar hafði verið starfandi áður, ásamt vörubirgðum, og réðst kaupmaðurinn sem starfsmaður til Pöntunarfélagsins. Snemma á árinu 1937 var sett á stofn útibú fyrir vest- urbæinn á Vesturgötu 33. í apríl 1937 voru keyptar vélar og annar út- búnaður Kjötbúðar Reykjavíkur af Sambandi íslenzkra samvinnufélaga og sett á stofn kjötbúð á Vesturgötu 16. Var þar m. a. rekin pylsugerð, en gekk illa sökum skorts á faglærð- um mönnum. Sömuleiðis var á ár- inu 1936 farið að selja kaffi með sérstöku vörumerki félassins, og hafinn undirbúningur að því að setj'a á fót kaffibrennslu. Þá var einnig að myndast vísir að efnagerð með eigin framleiðslu gerdufts. Enginn vafi getur á því leikið, að 56 Félagsrit KRON
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Félagsrit KRON

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsrit KRON
https://timarit.is/publication/2018

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.