Félagsrit KRON - 15.12.1947, Qupperneq 8
stofnfjárframlags, er greiða þurfti
til að öðlast félagsréttindi, lækkaður
úr 50 kr. í 25 kr., og skyldu eftir-
stöðvarnar síðan greiðast með 10
kr. á ári, og arði af viðskiptum fyrst
og fremst varið í þessu skyni. Eng-
ar aðrar breytingar, er máli skipta,
voru nokkru sinni gerðar á lögum
félagsins. Stofnsjóðsinneignir námu
allan starfstíma félagsins rétt um
100 kr. að meðaltali á félagsmann,
og ber það vott um, að mikill hluti
félagsmanna hafi ekki náð að greiða
fullt stofnsjóðsframlag.
2. Starfsemi
Starafsemi Kaupfélags Reykjavík-
ur var í fyrstu ekki stórvægileg.
Húsnæði var fengið í vörugeymslu-
liúsi SÍS og var ekki tekin leigu
fyrsta sprettinn. Fékkst félagið ein-
göngu við pöntunarstarfsemi þar til
í júnímánuði 1933, að sölubúð var
sett á fót. Fullkomnar upplýsingar
um rekstur félagsins og efnahag eru
ekki til fyrir þetta tímabil, áður en
sölubúðin var opnuð. Þó ber skýrsh
formanns á aðalfundi hinn 6. marz
1933 það með sér, að frá því að starf-
semin hófst í desembermánuði 1931
og til aðalfundarins 1933 höfðu ver-
ið afgreiddar 12 pantanir, eða
nokkru minna en ein á mánuði til
jafnaðar. Nam söluverð þessara
pantana alls 57.400 kr. Þegar í byrj-
un var gerð nokkur tilraun til að
hefta starfsemi félagsins, þar sem
heildsölufyrirtæki bæjarins, að eim,
undanteknu, neituðu að eiga við-
skipti við það. Þetta kom þó ekki
að sök, þar sem félagið átti traustan
bakhjarl, þar sem SÍS var, og fékk
erlendar vörur fyrir þess tilstilli.
Jafnframt pöntunarstarfseminni
starfaði félagið að.því að útvega
meðlimum sínum afslátt hjá öðrum
fyrirtækjum á vörum, sem það sjálft
verzlaði ekki með. Tókst að útvega
slíkan afslátt, er nam frá 5 til 20%,
á brauði, fiski, kjöti, kolum og skó-
fatnaði. Eitt af fyrstu verkefnum fé-
lagsins var ennfremur að annast
kaup á mjólk og sjá um dreifingu
hennar til meðlimanna. Var mjólk-
in keypt lijá Mjólkurbúi Ölfusinga
og fór þessi starfsemi að nokkru
fram í samvinnu við Kaupfélag al
þýðu og síðar Alþýðubrauðgerðina.
Mun verðið yfirleitt hafa verið um
10% lægra en venjulegt mjólkur-
verð. Þessi starfsemi hætti um ára-
mótin 1934—35 vegna hinna nýju
mjólkursölulaga.
Á fyrsta aðalfundi félagsins, 15.
apríl 1932, telur formaður, að fé-
lagið hafi enn ekki bolmagn til að
setja upp sölubúð, og kennir þar
um fámenni félagsins og erfiðleik-
um þeim, er stöfuðu af innflutn-
ingshöftunum. Meðlimir, er skiptr
við félagið, eru þá taldir 82, en
stofnendur höfðu verið 50. Sköntmu
síðar er þó farið að vinna að því að
auka starfsemina mjög verulega.
Mikill styrkur varð félaginu að því,
að ríkisstjórnin bauðst til þess að
leigja félaginu lóð undir sölubúð á
mjög hentugum stað í bænum, í
Bankastræti 2, og sömuleiðis brauð-
gerð ríkisins á sama stað. Um haust-
38
Félagsrit KRON