Kjarnar - 01.02.1948, Side 50

Kjarnar - 01.02.1948, Side 50
esína þarf að eignast mann sem hefur hönd í bagga með gerðum hennar, en Gústi er ekki stjórn- samnr," var hann vanur að segja eins og við sjálfan sig. Gústi sat við hljóðfærið og var að leika þýtt lag við einhverja eft- irlætisvisu sína. Hann var ekki eins hár og Harry og ekki eins sterklega vaxinn. Hann hafði bjart, hrokkið hár, og féll lokkur af því venju- lega fram á ennið. Svipur hans var oftast alvarlegur og hann gat orðið hvass á brúnina, en þegar hann lék á hljóðfæri eða söng, varð hann sem annar maður. Ef hann söng sjóaravísu, virtist hann verða sjó- maður af lífi og sál. Þegar hann söng einhverja gleðivísu, Ijómuðu augu hans, og brosið varð barns- legt. Andartaki síðar gat hann orð- ið blíður elskhugi við að syngja fal- lega ástavísu. Allri Rogers-fjöl- skyldunni þótti vænt um Gústa. Georgína dáðist einkum að honum, og Júlía hefði vel getað orðið ást- fangin af honum, ef staða föður hennar hefði ekki vakið henni of- urlítinn ofmetnað. Faðir hennar var með sama mark- inu brenndur og hún. Hann mat aðra menn eftir sjálfum sér og var ekki ætíð glöggskyggn. Hann leit á Gústa sem minni mann en sitt fólk. Honum sást yfir viljaþrekið, sem lýsti sér í því, að þessi tiltölulega fátæki drengur hafði brotizt til há- skólanáms og sxðan til læknisnáms, og sá aðeins næmgeðja unglinginn, sem Teresína vafði um fingur sér. Gegn henni var hann algerlega varnarlaus. Hann þrætti við hana, og þau áttu oft sennu saman, en hún sigraði ævinlega. Þetta sá Rog- ers, og það kom honum á þá skoð- un, að Agúst Palmer mundi verða jafnþreklaus í starfi sínu sem í við- ureigninni við Teresínu. Frú Rogers sagði glaðlega: „Zena systir mín ætlar að koma á hátíð- ina. Eg fékk bréf frá henni í dag.“ Harry Naylor spurði: „Er það eina systirin, sem þér eigið? Ég held ég hafi aldrei séð hana.“ Teresxna og Georgína hrópuðu einum rómi: „Zena frænka? Kem- ur hún hingað til Philadelphíu? Hvenær kemur hún, mamma?" f stað þess að svara spurningum systranna, sneri frú Rogers sér að Harry Naylor: „Já, hún er eldri en ég, eins og þér vitið. Hún er ákaflega auðug — giftist inn í Las- callas-ættina —. Hún er mjög mik- ils virt í Frakklandi. Við eigum á- kaflega mörg og tigin skyldmenni í Frakklandi. Faðir minn var við hirð Josephs Bonaparte, greifa af Bördentown. Hann var ákaf- lega ...“ Nú tók herra Rogers fram i: „Hvað ertu að segja, Gústa? Þetta er í þriðja sinn. Geturðu ekki not- að önnur orð en „ákaflega" til þess að lýsa ættfólki okkar?" „Hún hefur ekki komið hingað Nr. 1 KJARNAR 48
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Kjarnar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.