Kjarnar - 01.02.1948, Blaðsíða 83
þú hefðir kannske gaman af því
að lesa hana.“
„Sína er ekki fullklædd enn, og
ég var að spjalla við Ágúst Palmer.
Gerðu svo vel að koma inn til okk-
ar á meðan þú bíður hennar."
Philippe fannst Ágúst aðlaðandi
þiltur, og honum þótti gaman að
ræða við hann.
Júlía virti þessa tvo menn fyrir
sér. Philippe var hár, herðabreið-
ur og beinvaxinn. Þótt hún væri
mjög ástfangin af honum, duldust
henni ekki vissir skapgerðarbrestir
hjá honum. Hann bjó ekki yfir
neinni ákveðinni ósk, engri djúp-
stæðri löngun, átti ekkert mark í
Hfinu annað en það að njóta þess
auðs, sem honum hafði fallið í
skaut. Ágúst var grennri og renglu-
legri og fremur veiklulegur í útliti.
Hann hafði lagt hart að sér, og
hann átti sér ákveðið takmark í
framtíðinni. Er þeir eltust, mundi
f’hilippe verða feitur af hóglífi,
en Gústi mundi alltaf verða magur.
Philippe var harðjaxl, sem alltaf
urundi herja það út, sem hann
þarfnaðist, en Gústi mundi alltaf
þjást af blæðandi und hugsjóna-
urannsins.
En hvað allt virtist öfugsnúið í
þessum heimi. Gústi virtist elska
Teresínu af heilum hug, miklu
innilegar en Philippe mundi
nokkru sinni gera, það var hún al-
veg viss um. En hún unni Phil-
ippe, þótt hún vissi, að Gústi væri
miklu betri maður.
Samræðum þeirra þriggja lauk,
er Teresína kom inn. Hún var glöð
og innileg í garð Philippes, eins
og ekkert hefði í skorizt, og lét
bera mikið á hringnum, sem Phil-
ippe hafði gefið henni, og var
erfðagripur frá móður hans. Það
var storkun til Gústa og viðvörun
til Júlíu.
Frá júlí til september 1876.
Philippe taldi sjálfum sér trú
um það hvað eftir annað, að hann
ynni unnustu sinni af heilum hug,
og þegar hann leitaði að sönnunum
fyrir því í huga sér, svaraði hann
alltaf á sömu leið: „Hvernig getur
nokkur maður annað en elskað
hana? Hún er svo dásamlega fög-
ur.“ Þrátt fyrir þetta lifði alltaf
einhver efi í hugskoti hans. En
hann svæfði þennan efa i ástarat-
lotum sinum. Hann þurfti því ekki
aðeins að sannfæra Teresínu um
ást sína, heldur líka sjálfan sig.
Síðan kvöldið, sem þau trúlof-
uðust, hafði Teresína vísað allri
ástleitni af hcndi Philippes á bug,
eða forðazt að vera ein með hon-
um nema við öruggar kringum-
stæður. Hún gaf elskhuga sínum
enga fullnægingu, en hélt honum
Nr. 1
81
KJARNAR