Kjarnar - 01.02.1948, Side 90

Kjarnar - 01.02.1948, Side 90
og árekstrinum við unnustu sína út af því. Annað voru áhyggjur vegna Zenu frænku. Hvers vegna hafði hún yf- irgefið Philadelphiu svo skyndi- lega? Hún var að vísu töluvert hviklynd, það vissi hann vel af fyrri kynningu, en þetta var þó al- gerlega ólíkt henni að stinga svona af án þess að kveðja hann, ekki sízt vegna þess að hún hafði sýnt svo mikinn áhuga fyrir hinni væntan- legu giftingu hans. Ef til vill hafði einhver karlmaður komizt í spilið, það var alls ekki óhugsandi. Zena hafði oft játað fyrir honum yfir- sjónir sínar í áslamálum, og það var ekki ólíklegt, að eitthvað þess háttar hefði hent hana einu sinni enn. Hann veitti því nú athygli, að hann hafði ekki fengtð að sjá Júlíu alllengi. Þegar hann kom í Rogers- hús var það ævinlega annað hvort Teresína eða Mary, sem komu til dyra.Þegar hann hringdi dyrabjöll- unni beið hann með eftirvæntingu og vonaði að sjá glaðlegt bros Júlíu, þegar dyrnar opnuðust. Og hann átti bágt með að dylja vonbrigðin, þegar einhver annar opnaði fyrir honum. Hann fann það vel, að hann saknaði þess sárt að fá ekki að sjá Júlíu. Hún var falleg stúlka og þar að auki skemmtileg. Það var við- felldnara að tala við hana en Ter- esínu. Honum var nú allt í einu orðin þessi staðreynd ljós. Hann saknaði Júlxu. Ef hann fengi ekki að sjá hana í kvöld, þá ætlaði hann að minnsta kosti að komast að raun um, hvers vegna hann fékk ekki að sjá hana. Hann gekk út. Veðrið var fagurt og hann rölti hægt ofan eftir Gir- ard Avenue. Áin var þarna breið og útsýnið fagurt yfir dalinn fyrir handan ána. Einn og einn vagn hlaðinn alls konar vörum fór um veginn. Eftir ánni sigldu nokkrir flutningabátar. Þeir voru á upp- leið og héldu sig við bakkann hinurn megin. Eftir miðri ánni sigldi lítill gufubátur og sendi hvít- an gufustrók upp í loftið. Hann flutti skemmtiferðafólk. Hvernig væri að fara í stutta bátferð? Herbergið, sem Júlíu hafði alltaf fundizt svo aðlaðandi, veitti henni ekki sama frið og áður. í stað þess, að það hafði áðui verið henni kær- komið hæli og griðastaður, sem hægt var að flýja til, þegar amstur heimilisins þjáði hana, fannst henni það nú líkara fangaklefa. Hún vildi forðast það, og þess vegna hafði hún tekið þann kost- inn síðustu dagana, að fara langar gönguferðir ein sér. Þetta kvöld var veðrið svo fagurt, og hátíða- svæðið dró liana að sér eins og segulstál. En það væri rangt af henni að fara þangað. Ef hún væri einu sinni kominn þangað, mundi KJARNAR 88 Nr. 1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Kjarnar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.