Morgunblaðið - 01.10.2006, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 01.10.2006, Blaðsíða 17
greitt sérstaklega fyrir það. Ýmsar leiðir eru farnar í þeim efnum á þess- um alþjóðastofnunum, til dæmis þjónustusamningar. Ekki einangra sig við Ísland Valur Ingimundarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, segir augljósa þörf á auknum rannsóknum á sviði öryggis- og alþjóðamála á Ís- landi, enda séu þær komnar mun skemmra á veg hér á landi en á öðr- um Norðurlöndum. Markmiðið ætti að vera að stuðla að þekkingaröflun og upplýstri umræðu um þessi mál á Íslandi. Miklu máli skipti að skil- greina vel verksvið og skyldur slíkrar stofnunar sem gæti tekið til fræði- legra rannsókna, útgáfu, þekkingar- miðlunar til almennings og þjónustu- verkefna fyrir stjórnvöld og Alþingi og fleiri aðila. „Ég tel, að rannsaka eigi íslensk öryggismál í víðum skiln- ingi, enda hefur öryggishugtakið tek- ið miklum breytingum eftir að kalda stríðinu lauk, og í tengslum við aðra þætti sem varða íslenska utanrík- isstefnu.“ Varast beri þó að að hugsa sjálf- hverft og einangra starfsemina við samskipti Íslands við önnur ríki held- ur einnig leggja grunninn að stofnun sem rannsaki málaflokkinn í alþjóð- legu samhengi. NUPI fjalli t.d. ekki aðeins um norsk mál. Stofnuninni sé skipt í ákveðnar deildir sem sérhæfa sig í málefnum eins og Rússlandi, Persaflóa, Sameinuðu þjóðunum, friðargæslu, orkustefnu og -öryggi og svo framvegis. Auk þess séu gefin út rit og haldnir fyrirlestrar um málefni sem efst eru á baugi í öryggis- og al- þjóðamálum, til dæmis kjarnorku- stefnu Írans. Hann segir það sína skoðun að æskilegt sé að slík stofnun sé í nánum tengslum við háskóla- samfélagið. „Það væri besta leiðin til að stuðla að sjálfstæði hennar.“ fjórðungurinn draga fram lífið undir fátæktarmörkum. Fylgi við Lula er enda mest á meðal þessa hóps kjós- enda. Í norðausturhluta landsins þaðan sem forsetinn kemur og fá- tæktin er mest mælist fylgi hans allt að 70%. Millistéttin og viðskiptalífið styðja á hinn bóginn fremur Geraldo Alck- min, sem þykir búa yfir miklum stjórnunarhæfileikum þótt ekki ráði hann yfir persónutöfrum Lula for- seta. Alckmin nýtur enda hylli í Sao Paulo sem er auðugast ríkja Brasilíu og hið fjölmennasta. Þar var fram- bjóðandinn ríkisstjóri áður en hann hóf kosningabaráttuna. Hana hefur Alckmin einkum háð sem krossferð gegn spillingunni er hann kveður einkenna stjórn forsetans. Um flest er þetta mat hans rétt; mökkur embættismanna og flokkshrossa hefur þurft að taka pokann sinn vegna hneykslis- og spillingarmála á síðustu fjórum árum. Þau hafa að sönnu verið Lula nokkuð erfið en eftir stendur forsetinn ágætlega keikur enda haft fyrir satt að hann sé teflon-húðaður líkt og oft gildir um þá sem mestum frama ná á stjórnmálabrautinni. Barátta gegn forréttindastéttinni Lula hefur um margt staðið við stóru orðin sem féllu fyrir fjórum árum. Gríðarlegum fjármunum hef- ur verið varið í baráttuna gegn fá- tæktinni. Fátækar fjölskyldur njóta nú áður óþekktra styrkja og nið- urgreiðslna. Er Lula fór með sigur af hólmi í kosningunum árið 2002 brugðust fjármálamarkaðir illa við þar eð margir töldu að þessi ein- dregni vinstrisinni myndi kollsteypa ríkisbúskapnum. Annað kom á dag- inn og Lula nýtur nú trausts fjár- málamarkaða enda hefur hann mild- ast í málflutningi sínum og framgöngu á forsetastóli. Lula sem er lítt menntaður, sonur skóburstara, kveðst á hinn bóginn ekki hafa gleymt uppruna sínum og almennt virðast stuðningsmennirnir trúa orðum hans þótt róttæklingar á borð við Heloísa Helena haldi því mjög fram að forsetinn hafi gengið „kerfinu“ á hönd og njóti til fulln- ustu forréttinda valdsins. „Hér ræð- ir um baráttu verkafólks gegn höfð- ingjaveldi og forréttindastétt,“sagði Lula í ræðu á dögunum. „Þeir hafa ef til vill lesið meira en ég en þeir skilja ekki þjóðarsálina eins og ég.“ Trúlega hefur hann lög að mæla. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 2006 17 INNKAUPAKORT VISA Nýr dagur – ný tækifæri Bjarni reddar öllu. • Innkaupakort VISA er ókeypis kreditkort. • Ekkert stofngjald, árgjald eða seðilgjald. • Kortið er ætlað í rekstrarinnkaup og kemur í stað beiðna- og reikningsviðskipta. • Lengri greiðslufrestur. Hægt er að sækja um Innkaupakort VISA á www.visa.is og hjá öllum bönkum og sparisjóðum. Nánari upplýsingar í síma 525-2280 Úttektartímabil Innkaupakorts er almanaksmánuður og gjalddagi reiknings 25. næsta mánaðar. ’ Áætlun sem þessi er leyni-leg, eðli máls samkvæmt, annars væri lítið hald í henni.‘Geir H. Haarde forsætisráðherra um nýja bandaríska áætlun um varnir Ís- lands sem samkomulag hefur náðst um. ’Ábyrgð okkar á vörnum Ís-lands hefur ekkert breyst.‘Carol van Voorst , sendiherra Banda- ríkjastjórnar á Íslandi, um varnarsam- starfið. ’Ég harma það ef ágrein-ingur okkar hefur skyggt á það sem raunverulega skiptir máli og ég veit að Tony gerir það líka.‘ Gordon Brown , f jármálaráðhera Bret- lands og l íklegur arftaki Tonys Blairs í embætti forsætisráðherra, á fundi breska Verkamannaflokksins. ’Þið eruð núna framtíðin,gerið hana eins góða og þið getið.‘Tony Blair við sama tækifæri . ’Ég mun ekki sakna hennarsérstaklega.‘Stefán Halldórsson , landeigandi á Brú í Jökuldal , eft ir að för Jökulsár á Dal fram Jökuldal t i l Héraðsflóa hafði ver- ið heft á f immtudag. ’Bardaginn er aðeins hálfn-aður.‘Ómar Ragnarsson fréttamaður eftir að hafa farið fyrir fjöldagöngu niður Laugaveg í Reykjavík gegn Kára- hnjúkavirkjun. ’Það var eins og skrattinnværi að toga mig niður í jörðina.‘Númi Kárason , 10 ára, sem lenti í kviksyndi í malarnámu sunnan við bæ- inn Glerá ofan Akureyrar. ’Það sem okkur ber að hafa íhuga er að öll tungumál eru jöfn og við Íslendingar eigum að fagna því í hvert skipti þegar við fáum nýtt tungumál í þjóðarbúið því um leið fáum við nýja menningarstrauma.‘Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands, í ræðu á Evrópska tungu- máladeginum. Ummæli vikunnar Morgunblaðið/Brynjar Gauti Geir H. Haarde forsætisráðherra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.