Tímarit lögfræðinga - 01.04.1986, Blaðsíða 58
mætti gera breyttar kröfur um menntun þegar dómsstörfin eru frá.
Menn sem hlotið hefðu menntun og þjálfun í opinberum rekstri og
opinberri stjórnsýslu yrðu vel fallnir til að hafa sýslustjórn með hönd-
um þegar verkefnin yrðu fremur fólgin í að koma á umbótum og ný-
mælum og annast framkvæmdastj órn en halda mönnum á réttri braut
með refsingum.
Verður nú vikið nánar að nokkrum atriðum sem sérstaklega koma
til álita varðandi þá endurskoðun stj órnsýslukerfis sem hér hefur vei'-
ið lýst í aðalatriðum.
Sýslumenn og umboðsmenn þeirra
Þegar skilið hefur verið milli stj órnsýslustarfa og dómsstarfa verð-
ur ekkert því til fyrirstöðu að einn umboðsmaður sé yfir annan sett-
ur, ef þurfa þykir. Þannig mætti hugsa sér að sýslur yrði nokkuð
stækkaðar í sumum tilvikum og að umboðsmenn í hinum ýmsu kaup-
stöðum heyrðu undir sýslumann héraðsins. Mætti þá skipta þeim
störfum sem bæjarfógetar gegna nú, eftir því sem hagkvæmt þætti,
milli þeirra og sýslumanna. Utan kaupstaða yrðu störf hreppstjóra
endurskipulögð, t.d. þannig að hreppstjóri gæti annast störf í um-
boði sýslumanns í fleiri en einum hreppi. Þá mætti fela bæjarfógeta
(lögreglustjóra) í kaupstað að annast hreppstjórastörf í nágranna-
hreppi. E.t.v. mætti endurvekja hina fornu lögsagnara með einhverj-
um hætti, en aðalatriðið er að koma á sveigjanlegu kerfi umboðs-
manna sýslumanna eftir þörfum og aðstæðum. T.d. mætti hugsa sér
að á Austurlandi væri aðeins einn sýslumaður en lögreglustjórar (bæj-
arfógetar) í stærstu bæjunum sem önnuðust þau störf sem mestu
skiptir að séu unnin í næsta nágreinni íbúanna. Þá önnuðust lögreglu-
stjórar þessir jafnframt sömu störf í nágrannabyggðum og gætu þá
þessi umdæmi verið sem hér segir:
1. Vopnafjörður (Skeggjastaðahreppur og Vopnafjarðarhrepp-
ur) ;
2. Seyðisfjörður með Seyðisfjarðarhreppi;
3. Neskaupstaður með Mjóafjarðarhreppi og Norðfjarðarhreppi;
4. Eskifjörður með Helgustaðahreppi og Reyðarfjarðarhreppi;
5. Fáskrúðsfjörður (Fáskrúðsfjarðarhreppur, Búðahreppur og
Stöðvarhreppur);
6. Breiðdalsvík — Djúpivogur (Breiðdalshreppur, Beruneshrepp-
ur, Búlandshreppur og Geithellnahreppur) ;
7. Höfn í Hornafirði (Bæjarhreppur, Nesjahreppur, Hafnarhrepp-
ur, Mýrahreppur).
52