Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.08.1986, Blaðsíða 63

Tímarit lögfræðinga - 01.08.1986, Blaðsíða 63
Ávíð og dreif GERÐARDOMUR OG ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ LAGASTOFNUNAR Þann 28. febrúar sl. voru gerSardómur og þjónustumiðstöð Lagastofnunar Háskóla íslands sett á stofn. Hér er annars vegar um að ræða fastan gerðar- dóm og hins vegar fasta þjónustumiðstöð eða ráðgjafarþjónustu. í báðum tilvikum fer starfsemin fram í nafni Lagastofnunar. Umrædd starfsemi er ný af nálinni með þeirri tilhögun sem hér hefur verið ákveðin. Tilgangurinn er að bjóða fram þá þekkingu sem Lagastofnun hefur yfir að ráða til þess að greiða úr réttaróvissu og veita aðra fræðilega þjón- ustu. Það er að vísu svo að einstakir kennarar lagadeildar hafa oftlega sinnt verkefnum af þessu tagi á undanförnum árum. Hugmyndin er ekki sú að hrófla við því fyrirkomulagi, heldur fremur að efla þjónustu af þessu tagi og gera hana aðgengilegri fyrir þá sem hennar óska. Ráðgjafarþjónustunni er ætlað það hlutverk að greiða úr ýmsum álitaefn- um með lögfræðilegum álitsgerðum, með þvi að bjóða fram aðstoð við samn- ingu frumvarpa að lögum og öðrum almennum fyrirmælum, með því að veita umsagnir um slík fyrirmæli o.s.frv. Að sjálfsögðu er mönnum frjálst að leita til einstakra sérfræðinga á þann hátt sem verið hefur ef menn kjósa það frekar. Tilgangurinn með því að stofnsetja sérstaka gerðardómsstofnun er hins veg- ar sá að freista þess að auka verulega gerðarmeðferð. Gerðarmeðferð er fá- tíð hér á landi enda þótt auðvelt sé að sýna fram á kosti hennar ef rétt er á haldið. Með hinum nýja gerðardómi er mönnum opnuð ný leið til þess að leysa deilumál sin á vandaðan og greiðfæran hátt. Er því fyrst og fremst stefnt að „magnaukningu í dómsmeðferð“, ef svo má að orði komast. Fyrrgreindum markmiðum hyggst Lagastofnun einkum ná með þessum hætti: a) Með því að sjá um að verkefnum sé hraðað. Þetta er sérstaklega áber- andi að því er snertir gerðardóminn. Mörg ákvæði samþykktanna og regln- anna lúta að þessu beinlínis. Fyrir þessu er auðvitað fyrst og fremst séð með því að velja ,,réttu“ mennina f gerðardóm, auk þess sem þeim er settur ákveð- inn frestur. Verkefnanefnd mun að sjálfsögðu telja það eina af helstu skyld- um sínum að sjá svo um að slíkir frestir séu haldnir. b) Með því að búa svo um hnúta að sá sem biður um þjónustuverkefni geti fengið upplýsingar um það fyrirfram hvað fulllokið verkefni muni kosta. Regl- urnar eru þannig úr garði gerðar að gert er ráð fyrir nokkuð áreiðanlegri kostnaðaráætlun að því er gerðardóma varðar. Þegar um ráðgjafarverkefni er að ræða skal einnig veita upplýsingar um áætlaðan kostnað. Með þessum 141
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.