Vísir - 24.12.1943, Síða 17

Vísir - 24.12.1943, Síða 17
17 JÓLABLAÐ VÍSIS AÐ ER SIÐUR í mörgum sveitum þessa lands, að lialda skemmtanir milli jóla og nýjárs, og almennt ganga þær þá undir nafninu jólaskemmtun eða jóladansleikur. Á æskuárum mínum sótti eg þessar skemmtanir af miklum áhuga, en ein þeirra er mér al- veg sérstaldega minnistæð og hún mun sennilega verða það á meðan eg lifi. Þessi umrædda jólaskemmt- un var ekki haldin í mihni eigin sveit, heldur í öðrum fjarlæg- um dal, sem Svartidalur heitir. Hann heitir svo af því, að þar sér ekki til sólar í tuttugu og eina viku á hverju ári. Svo þröngur og djúpur er hann. Skemmtunin var haldin í ungmennafélagshúsinu hjá Fefíi — en Fell var læknissetur sýsl- unnar. Og til að komast þangað styztu leið var yfir fjallgarð að fara — urn sex klukkustunda gang heiman að frá mér. Við vorum þrjú, sem héídum hópinn að þessu sinni. Það var ung, ljóshærð og lokkhærð stúlka af næsta bæ, frændi hennar, ungur guðfræðingur úr sveitinni sem kom heim til átt- haganna í jólafríinu, og loks var eg. Við lögðum af stað um há- degisbilið. Það var bratt upp á fjallið og okkur sóttist gangan seint, þvi við vildum ekki hita okkur um of. Þegar kom upp á fjallið, tók við flatt heiðaland, og nú gekk ferðin betur. Jörðin var alauð og gangfæri ágætt. Eftir miðri heiðinni rann á. Hún var nokkuð vatnsmikil, en við vonuðum að hún væri komin á ís, því að stillur höfðu gengið undanfarna daga-, enda þótt frostið hefði ekki verið til neinna íppn^,; En þegar við vorum komipnt^,, ánni, var hún allt en ,}pgð — hún ólgaði og virtist hin versta yfirferðar. ÚVtí hlutskipti að kftÍWi#P%siÆ^i!<.ýar vanastur tjlartóúh- mLhnafi þyí að kven- maður var með í ferðinni, þorði eg ekki að fara úr brókunum, sem eg annars hefði gert. Eg öslaði i gegnum krapann, vatnið náði mér í mitti þar sem áin var dýpst, og það var blátt áfram alveg hræðilega kalt. Of- an á þetta bættist svo, að botn- inn var háll, krapinn hafði setzt utan á steinana og það var ó- venju vont að vaða. Þegar ána tók sýnilega að grynnka nær landinu, snéri eg til baka, að sækja félaga mina. En þá rak eg annan lappar- skrattan í stóran stein, sem eg sá ekki fyrir krapinu og féll kylliflatur beint á hrammana. Það var andstyggileg bylta. Eg saup hveljur — hræði- legar hveljur niðri i isköldu vatninu, en þau sem á bakkan- um stóðu hlóu. Hláturinn hafði áþekk áhrif á mig og rauð dula á mannýgan tarf. Eg komst í illt skap. Þegar eg komst yfir, hold- votur frá hvirfli til ilja og geð- vondur að auk, ætlaði eg að halda á stúlkukindinni og guð- fræðingnum yfir ána. En þau aftóku það bæði og sögðu að eg dytti aftur. Þetta kostaði okkur hálfrar annarrár slundar gang upp með ánni, unz við komum að iskyggi- lega mjórri ísspöng — einu spönginni sem sjáanleg var svo langt sem augað eygði. Hana urðum við að reyna. Mér var otað á foræðið í ann- að sinn. Eg var blautur hvort eð var, svo það gerði ekkert til þó eg dytti í ána aftur — þ. e. a. s. í augum félaga minna. Þegar eg kom út á spöngina, sá eg að það var hyldýpi undir. Eg var illa syndur og átakan- lega lífhræddur. Það sló út á mér köldum svita af skelfingu og augist. Eg skreið á maganum — mér þótti það vissara. En þrátt fyrir það brakaði og bra'st í spöng- inni og mér sýndist hún blátt á- fram ganga í bylgjum. Eg hélt eg væri að deyja. En það sem mér fannst næstum þvi verra, var hláturinn í skötuhjúunum á bak við mig. Þau hlóu eins og fifl. Þegar eg loksins var kominn lieilu og höldnu yfir, heimtuðu þau að eg snéri aftur. Þau á- ræddu ekki út á spöngina, en kröfðust þess að eg kæmi til baka og bæri þau yfir á vaðinu þar sem eg hafði dottið í ána hálfri annari klukkustund áður. Af tvennu illu þótti þeim betra að detta i ána þar. Nú sauð skapið í mér upp úr. Eg sagði þeim að fara veg allrar veraldar fyrir mér. Þau mættu gera livað sem þau vildu, en ef þau kæmu ekki á spönginni yfir ána, færi eg mina leið, mér væri ox-ðið kalt og eg léti ekki snatta mér lengur. Auk þess var tekið að skyggja og við áttum sem næst tveggja stunda gang eftir yfir fjallið, þó við tækjum eng- an krók á leið okkar. Einbeitnin í mér lcom þeirn báðurn til að reyna sama slu'ið- dýrsháttinn, sem þeim hafði orðið að hlátursefni hjá mér. Og nú kom til minna kasta að hlæja. Það er sannarlega skringileg sjón að sjá slcriðandi mannfóllc og auk þess skjálfandi af hi'æðslu. Það var þungbúið loft þetta kvöld og engin tunglsbirta. Það dimnxdi smám saman og loks kom svartamyrkur. Hættuleg- asti kafli leiðarinnar var eftir, það voru há og þverhnípt björg sem lágu niður í Svartadal. Til þess að komast ldakklaust nið- ur, þurftum við að lenda i skarði sem klauf björgin beint fyrir ofan læknissetrið. Það vei'sta var, að ekkert okkar var leiðinni kunnugt, enda leið ekki á löngu unz við vorum orðin villt og vissum ekki hvert við áttum að stefna. Okkur hafði að vísu verið sagt til vegar áður en við lögðum af stað, og við þurftum ekki ann- að en ganga beint áfram. Við létum okkur þetta að kenningu verða og gengum beint áfram — í þrjár áttir! Við vorum að hugsa um að ganga í fjórðu áttina líka, en nentum þvi bara ekki. Loks urðum við svo villt að við gengum í eilifa liringi. Eg er sannfærður um, að það eru allra vitlausustu hringir — fyrir utan trúlofun- arhi’ingi — sem nokkuru sinni hafa orðið til. Að við gengum í hringi, viss- unx við af þvi, að eg datt öðru hvoru um heljarstóra þúfu — alltaf sömu þúfuna og niður i 5

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.