Vísir - 24.12.1943, Page 29

Vísir - 24.12.1943, Page 29
JÓLABLAÐ VÍSIS 29 Skipið hafði strsmdað á svo- nefndri Hraunskeið vestan Ölfusár. Var þar skammt til bæja og fékk strandfólk allt hina beztu aðhlynningu og hjúkrun, enda varð þvi ekki meint af. Þökkuðu menn það eingöngu dugnaði Ásgeirs og snarræði, að svo vel skyldi til takast, úi’ því sem komið var. Farmur skipsins var 170 skip- pund af saltfiski, 80 tunnur lýs- is og nokkuð af ull og æðar- dún. Tókst að bjarga megin- hluta farmsins, en alll var það meira og minna skemmt, nema Jýsið. Annað skip, sem Ásgeir hafði ýmist i förum eða við veiðar, var skútan Sigríður, happaskip mikið. Eftir því sem verzlunin efldist, fór þörfin vaxandi fyrir stór og hentug skip til vöru- flutninga. Var þá í það róðizt að kaupa allstórt „skonnortu- brigg“, sem S. Louise nefndist. Hún var 113 lestir að stærð og bætti mjög úr skipaskorti fjnrir- tækisins. Áður er að þvi vikið að vin- átta hafi verið milli Ásgeirs kaupmanns og Jóns Sigurðs- sonar. Sést það greinilega á bréfum forsetans að hann hefir metið Ásgeir mikils og þótt mjög til ráðdeildar hans koma. Hitt er og vitað, að Ásgeir hélt mikilli tryggð við forseta, sendi honum margsinnis rausnarleg- ar gjafir, einkum íslenzkt góð- meti, kjöt, smjör, saltfisk og hákarl. Bauð Jón oft til sín vin- um og kunningjum og hélt matarveizlur rausnarlegar, þar sem íslenzk kjarnfæða var á borð borin. Mun verulegur hluti þeirra veizlurétta hafa ver- ið kominn frá Ásgeiri á ísa- firði. Kona Ásgeirs kaupmánns var Sigríður Jensdóttir Sand- holt. Áttu þau fimm börn, dó eitt í æsku, en hin náðu full- orðinsaldri og giftust öll. Frú Sigriður var hin merkasta kona, vel að sér tl munns og handa og höfðingi í lund. Var hún manni sínum samhent mjög og hin styrkasta stoð i fram- kvæmdum öllum. Auk verzlunarreksturs síns fékkst Ásgeir kaupmaður við útgerð, er fór heldur vaxandi eftir þvi sem árin liðu. Þó mun hann aldrei hafa átt fleiri en fjögur fiskiskip í einu, auk kaupfaranna, sem stunduðu þorskveiðar yfir sumartimann. Vel efnaðist Ásgeir á atvinnu- rekshi sinum, þótt ekki væri um stórfellda auðsöfnun að ræða. Einkum gaf fisksalan mikinn hagnað i aðra hönd. Ásgeir veiktist af slagi árið 1874 og missti þá heilsuna með öllu. Haxm andaðist í Kaup- mannahöfn 1877, 60 ára gam- all. Ekkja hans lifði mörg ár eftir það og dó háöldruð 1915. 3. Ásgeir yngri- Meðan Ásgeir skipherra stjórnaði fyrirtæki sínu, var vöxtur þess jafn og öruggur, en ekki stórfelldur. Hann var maður, sem vildi á allan hátt kunna fótmn sínum forráð, varaðist að stiga nein þau skref, seni víxlspor gætu heitið, lagði aldrei i hæpið tafl á viðskipta- sviði. Máltækið segir að nýir siðir komi með nýjum herrum. Sannaðist það á ýmsan hátt er Ásgeir yngri, sonur Ásgeirs skipherra, tók við fyrirtæki föður sins. Ásgeir Guðmundur Ásgeirs- son, en svo hét hann fullu nafni, var fæddur á ísafirði 1856. Hann var þvi aðeins 18 ára gamall er faðir hans veikt- ist, og vandinn af stjórn fyrir- tækisins lagðist á hans ungu lierðar. Hafði hann alizt upp jöfnum höndum á ísafirði og í Kaupmannahöfn og hlotið góða verzlunarmenntun. Hann var maður hins nýja tíma, djarfur, ákaflyndur og stórhuga, tilbú- inn að hætta miklu til að geta unnið meira. Stefna hans var sú, að efla fyrirtækið og magna það á allar lundir. Stórhugurinn kom fram i mörgum greinum, og fannst hinum gætnari mönn- um kappið stundum meira en forsjáin. Hann var maður sem aldrei þótti sýtingssamur um smámuni. Ör var hann i lund og harðskeyttur, átti það til að gera skyssur í fljótræði, en komst einnig þar yfir sem aðr- ir strönduðu, vegna dirfslcu sinnar og ákafa. Sennilega er hann einhver fyrsti tslendingur, sem „hugsar i milljónum", maður sem stundar viðskipti líkt og íþrótt eða sérstæða list- grein. Einhverju kann það að hafa ráðið, að Ásgeir bjó jafn- Ásgeir Ásgeirsson, yngri. GLEÐILEG JÓL! Júlíus Björnsson. GLEÐILEG JÓL! Bókaverzl. Sigf. Eymundssonar. Óskum öllum okkar viðskiptavinum GLEÐILEGRA JÓLA OG NtÁRS! Þvottahúsið Drífa. BURSTAGERÐIN, Laugavegi 96, óskar öllum sinum viðskiptavinum GLEÐILEGRA JÓLA GLEÐILEG JÓL! Vélsmiðjan Héðinn h.f. 8

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.