Vísir - 24.12.1943, Síða 41

Vísir - 24.12.1943, Síða 41
JÓLABLAÐ VÍSIS 41 „Fara Skotar og Englending- ar lika oft til lslands?“ spurði eg. „Já, það megið þér reiða yð- ur á. Og suma mánuðina er yfir- leitt einstaklega heilsusamlegt og þægilegt að ferðast héðan til íslands. Á þessum tíma árs er sjórinn oftast nær spegilsléttur, og loftið óvanalega hreint og hressandi." „Fara menn þá til íslands sér til heilsubótar?1' „Eg held, að flestir þeir, sem til íslands fara, geri það sér til hressingar og til þess að lyfta sér upp. Aðrir, sem á milli fara, munu flestir eiga kaupsýsluer- indi.“ Maðurinn sagði mér síðan frá því, að sonur sinn væri búinn að fara fimm ferðir til íslands, en sjálfur hefði hann farið níu sinnum. Og í öll skiptin hefðu báðir komið heim aftur hress- ari og þrekmeiri. „Annars eru ferðalögin í land- inu sjálfu aðalatriðið," þætti hann við, hvort heldur farið er á .hestum eðá í bílum. ísland er tvímælalaust eitthvert fegursta, merkilegasta og þægilegasta ferðamannaland í heimi. Lofts- lagið er framúrskarandi gott, að minnsta kosti að sumrinu. Læknar og lærðir menn hafa skrifað. sérstakar ritgerðir um íslenzka loftið. Og náttúrufeg- urð landsins er svo stórkostleg og fjölbreytt, að naumast verð- ur með orðum, lýst .... Eg verð að minnsta kosti aldrei leið- ur á því að ferðast um ísland á þessum ágætu íslenzku hest- um, eins og landslagið er þar stórkostlegt. Og einu má ekki gleyma: gestrisni islenzku þjóð- arinnar! Ilvergi í víðri veröld hefi.eg notið annarrar eins gest- risni óg á fslandi." „Eg heyri á öllu,“ sagði eg, „að þér eruð mikill íslandsvin- ur.Og mér þykir vænt um, að mér skyldi vera stefnt beint til yðar fyrir sérstaka hendingu.“ „Það er rétt, sem þér segið,“ sagði hann, „eg er afarmikill íslandsvinur. En það eru ótal- margir menn á Englandi." Allt í einu kvað við blástur mikill niðri á götunni og trufl- aði viðræður okkar. „Þarna er bíllinn kominn, sem eg hefi pantað handa ykkur,“ sagði gestgjafi oltkar. „Hann fer með ykkur niður að skipi í Leith.“ Við kvöddum alla fjölskyld- una og 'þökkuöum henni inni- lega fyrir þessar ánægjustundir, sem við hefðurn notið þar á heimilinu. Húsbóndinn hélt því fram, að við mundum fá enn betri við- tökur á Islandi heldur en hjá sér. „Betri en hjá yður!“ svaraði eg, — „eg trúi þvi nú ekki fyrr en eg tek á.“ „Góða ferð!“ kallaði þetta al- úðjega fólk á eftir olckur um leið og vagninn rann af stað. Bíllinn okkar þaut.áfram eft- ir breiðum strætum, fram hjá blómreitum, torgum og aldin- görðum. , Við Viktor sátum fyrst þegj - andi um stund og horfðum á bæinn,húsin, vagnana og allan þann fjölda manna, sem við fórum frarn hjá. Alls staðar sáum við langar raðir verkamanna híma með húsveggjum. Þeir stóðu þar hreyfingarlausir og töluðu sam- an. Þetta voru atvinnuleysingjar ...! I Englandi voru þeir taldir skipta milljónum! Svo sögðu blöðin. Og enska ríkið varð dag- lega að fæða og framfæra all- ar þessar milljónir manna, sem enga vinnu gátu af hendi leyst, af því að engin vinna var fáan- leg. Daglega varð stjórnin að úthluta þeim peningum. Jón Sveinsson . (t. h.) á leið til Viðeyjar. í fylgd með hón- 'um ertí Gurinar Einarsson .(-t. ^ ,v.), Bjarni Kr. Björnsson (við vélina) og Da- víð Ólafsson (nú forseli Fiskifélags ís- • lamjs, yið stýr7 , iðþ ‘ '. GLEÐILEG JÓL! Verzlunin Ingólfur, Hringbraut 38. Grundarstíg 12. GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT NÝÁR! Verzlun O. Ellingsen h.f. GLEÐILEG JÓL! Rafvirldnn s.f. Skólavörðustíg 22. GLEÐILEG JÓL! 0. H. Helgason & Co. Borgartún 4. n

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.