Vísir - 24.12.1943, Qupperneq 46

Vísir - 24.12.1943, Qupperneq 46
JÓLABLA.Ð VlSIS 46 ÉÐINN: Auk okkar var farartækið harla merkilegt. Ekki sízt vegna þess, að það var að mestu leyti verk ferðafélaga minna. Þeir unnu við það í margar vikur, öll kvöld fram á nætur. Það þurfti meira að segja að ditta smávegis að bílnum, — billinn var ekkert annað en grindin og vélin, slipp og snauð, allt annað urðu þeir að búa lil eða útvega. Það voru mörg handtök og sum all hávaðásöm, að fólki fannst í nærliggjandi húsum, — en smátt og smátt skapaðist þetta undarlega farartæki og þótli mönnum gaman að fylgj- ast með þvi hvernig þessi ís- lenzki ferðabíll átti að líta út. Svo fór að síga á seinni hlutann, sumarfríið nálgaðist óðum, en ýmislégt Ijráðnauðsynlegt ó- gert, m. a. að fá vélina til þess að ganga. Kvöld eftir kvökl var bíllinn dreginn um Skúlagötu, en ekkert dugði. Fimmtudags- kvöldið 15. júlí, sólarhring áð- ur en við ætluðum að leggja af stað, - þá fór hann að mala blessaður lil!i karlinn, og rauf þar með 10 ára þagnarbindindi. Hann var ólíkur flestum far- artækjum, sem höfðu sézt á okkar ágætu vegum, því hann hafði enga framrúðu, engin sæti, engin Ijós, hann var ekki yfirbyggður —-þar var hátt til lofts og vítí til vcggja, auk þess, sem hljóðin í honum voru eink- ar hávaðasöm og hressandi. Við Iögðum af stað laugar- daginn 17. júlí, að afliðnu há- degi. Það var ausandi rigning og hafði rignt frá því snemma um morguninn. Menn sögðu að þetta hefði verið mesla úrkoma sumarsins. En það gerði okkur ekkert til, við vorum vel búnir og færir í allan sjó. Skvetturn- ar, sem við fengum frá þessum nýju luxus-vögnum, voru vel úti látnar, reglulegar vina- kveðjur, enda juku þær bara á ánægjuna. Við Ölfusárbrú stönzuðum við lítilsháttar, okk- ur var boðið þar upp á kaffi og kleinur, af þcim Rannveigu og Óla Þorsteinss. Það var reglu- lega hugguleg veizla með söng og hljóðfæraslætti. Um kl, 9 vorum við hjá Seljalandi, fengum; þar kaffi. Það var sama rigningin og síð- ur en svo að hann ætlaði að stytta upp. Árnar undir Eyja- fjöllum voru i miklum vexti, sumar flóðu yfir veginn, aðrar höfðu brotið sér farveg að nýju, — var mikiö fjör og gloði í ÞOKU VIÐ Leið Vatnajökulsfaranna pg áfangastaðir. GRIMSVOTN 1 jólablaði Vísis í fyrra birtist bráðskemmtileg ferðasaga eftir Héðin, undir nafninu „Yfir Vatnajökul Jweran“. — / sumar fór Héðinn aftur austur á Vatnajökul og lýsir hann Jteirri ferð í eftirfarandi ferðasögu. Félagar hans uoru að J)essu sinni þrír þekktir ferðagarpar og skíðamenn, þeir Egitl Kristbjörnsson, Friðþjófur Hraundal og Jijalti Jónsson. undir fjöllunum þetta kvöld. Við slömpuðumst hæglega vfir flestar sprænurnar, að einni undantekinni — við höfnuðum í henni miðri; vélin hætti að starfa, því kaldur vökvinn ofan frá Eyjafjallajökli ætlaði að kaffæra hana og reyndar allt farartækið, og þar með að koma leiðangrinum fyrir katt- arnef, — þvílíkl og annað eins! Fyrr vorum við þó ekki búnir að bleyta okkur upp fyrir silj- anda en fararlækið stóð á þurru — við-ýttum þvi til sama lands. Við reyndutn á öðrum stað og jjá heppnaðist það. Til Víkur komum við hlaðskcll- andi kl. 3 um nóttina. Það sem eftir var nætur, gistum við í rollukofa, sem við fundum þá ólæstan. Fórum frá Vík kl. 2 daginn eftir, þá var rigning sem fyrr, en stytti upp þegar á dag- inn leið. Á bæjunum meðfram végin- um hélt fólk að við værum er- lendir stríðsmenn og þorði því ekki að veifa til okkar, nema á einum bænum, sem við kom- um á, þar rauk allt kvenkyns út i gluggana, þegar við keyrð- um í hlað, og brosti hjartanlega til okkar. Þá stundina litum við stórt á okkur, eða þar til ein tátan, sem kom þjótandi út, staðnæmdist skyndilega og and- varpaði: — Æ! þetta eru þá ís- lendingar! — Þar með var auð- vitað kvenhylii' okkar á þeim bænum rokin. Að Klaustri komum við um kvöldið. Þá var rigningarlaust, og því tekið til að breiða úr öllu blaufu, því ferðinni að Kálfafelli gátum við ekki haldið áfrum,. Iiörglandsá var ófær bílum. Við sváfum i hlöðuniii á Klaustri um nóttina. Eg vakn- aði siiemma næsta morgun. Haninn á Klaustri sá um það. ILunn vakti konurnár- sinar limánlega eins og hans er góð- ur siður, og var heldur hávær, bleásaður, enda hafði hann eitt- hvað að státa af þennan morgun, auk sinna gullfallegu kvenna. Þetta var fagur morgun íheð sóbog .sumri. Eg var farinn að spógspora um hlaðvai'pann kl. 5 alveg eins og hænsnin, að öðru leyti samdi eg mig ekki að sið- um þeirra. — Og svo var haldið af stað og sungið eins og vant var og ekki stanzað fyrr en bíllinn stóð fastur í Hörglandsá. Heldur var mikið í henni ennþá. Um hádegisbil komuin við að Kálfa- felli. Við höfðum látið skila því til Guðlaugs á Blómsturvöllum, en hann ætlaði að fylgja okkur upp að jökli, að við kæmum ekki fyrr en á þriðjudagsmorg- un. Guðlaugur var því i heyjum eins og aðrir kristnir menn og ekki undir komu okkar búinn. Hann sá þó aumur á okkur og var lagður af stað með allt haf- urtaskið kl. 5 e. li. Fórum við nú sem Ieið liggur upp með Djúpá að vestan; er það heldur greiðfær vegur, að undantekn- um smá kafla, sem liggur um hraunstraum, en það er ein kvíslin frá Skaftáreldum. Það- an er skammt að rótum Skaft- árjökuls. Jökuljaðarinn er hvorki brattur né illur upp- göngu, enda fórum við með hestana spölkorn upp, eða þang- að til við töldum okkur geta notað sleðann. Það var um 20 mín. gangur frá jökulbrúninni. Guðlaugur skildi við okkur um kvöldið kl. 10 og fór til byggða. Veður var bjart og kyrrt, hiti 3°. Þá var maður enn kominn á Vatnajökul, kominn á kaldan klakann með skíði og allt til- heyrandi. Veturinn- nægði oltk- ur ekki til skiðaferða og er þó áreiðanlega notað hvert tæki- færi, sem býðst. Það er okkar líf og yndi að ferðast um á skíðum, um fjöll og firnindi, og undanfarin ár höfum við ferðast um jökla og hefir það ekki dregið úr ákafanum og ánægjunni. Þetla er þó fyrsta jökulferð Iljalta, en hann er Farartældð mjakast áfram.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.