Vísir - 24.12.1943, Síða 55
JÓLABLAÐ VÍSIS
56
A V4*A V44.A ¥♦ +
♦ BRIDGE-ÞÁTTUR *
ELY CULBERTSON
Eftir
Kristínn
Horðmann.
Það leikur ekki á tveim tung-
um, að Ely Culbertson er fræg-
asti spilafræðingur og atvinnu-
spilai-i, sem uppi' er. Almennt er
álitið, að kona hans, frú Josep-
hine Culbertson, sem hann nú
er skilinn við, hafi átt drýgstan
þátt í þvi, að hann gerði spila-
fræði að atvinnu sinni.
Culhertson myndaði nýtt,
heilsteypt kerfi um kontrakt-
bridge, samdi fjölda bóka um
þetta efni, er seldust í milljóna-
tali og var orðinn heimsfrægur
og milljónamæi’ingur áður en
hann vissi af. Kona lians mun
hafa yerið honum ómetanleg
hjálp við þetta mikla verk lians,
enda óx hróður þeirra hjóna
hröðum skrefum og frægðarorð
þeirra barst víða um lönd.
En þetta var i Ameriku.
Leiðir hans liöfðu einnig legið
um Evrópu, en þar hafði braut
hans ekki alltaf verið blómum
stráð, né frægðin legið við fæt-
ur hans, enda þótt hann hefði
alist upp við auð og allsnægtir
og hlotið ágæta menntun.
Ely Culbertson er fæddur í
Rúmeniu árið 1891 og er kom-
inn af skozk-írskum og rúss-
neskum ættum. — Faðir hans
gerðist amerískur ríkisborgari,
en fluttist til Rússlands og
kvæntist rússneskri konu, dótt-
ur kósakkahershöfðingja í
Ivaukasus. Hann átti miklar
oliulindir og var auðugur að fé.
Culbertson ólst upp hjá for-
eldrum sínum þar til er hann
var fulltíða maður, þá ferðaðist
hann með þeim til Evrópu og
stundaði nám við ýmsa háskóla,
en fór svo með bróður sín-
um til Ameríku og innrituðust
þeir báðir í Yaleháskólann.
Áður en Culbertson lagði i þá
ferð, gerðist hann erlendur
fréttaritari fyrir rússneskt blað.
Hann festi ekki rætur í Ameriku
þá, en lifði ævintýralegu lífi og
flæklist um alla Norður-Ame-
ríku.
Síðan snéri hann aftur til Ev-
rópu og hugðist að stunda nám
i París og ljúka prófum sínum.
Dvaldi hann þar í mörg ár. Á
leið sinni til Parísar dvaldi hann
i Genúa og heyrði hann þar í
fyrsta skipti talað um Auktions-
bridge og lærði að spila það,
en þótti gerómögulegur spila-
maður!
Á yngri árum í Rússlandi var
hann sjálfur byítingarsínni, en
í stjórnarbyltingunni 1917 misti
Culbertsonfjölskyldan allar
Ely Culbertson og kona hans. Hann hefir meira
en tíu þúsund kennara og sérfrœðinga í bridge í
þjónustu sinni um allan heim.
eigur sínar. Upp frá því varð
Ely Culbertson að sjá fyrir sér
sjálfur og berjast við fátækt og
atvinnuleysi eins og margir
aðrir Rússar, sem þá flúðu til
Parísar svo þúsundum skipti.
Prinsum og furstum stóðu þar
fleiri leiðir opnar, lieldur en ó-
breyttum manni, sem liét ekki
annað en Culbertson.
Ákvað liann þá að freista gæf-
unnar í Ameriku og er sagt, að
hann hafi eytt sínum síðasta
eyri í fargjaldið, en það fé
græddi hann i fjárhættuspili
(ekki þó í Bridge!).
Þegar Culbertson kom til
Ameríku reyndi hann að vinna
fyrir sér með ýmsu móti. Hann
var ágætur i tungumálum, tal-
aði rússnesku, frönsku og
þýzku með afbrigðum vel og
reyndi því fyrst að liafa ofan af
fyrir sér með tungumála-
kennslu, en hætti fljótt við það.
Reyndi hann þá að sælcja um
kennarastöðu í lieimspeki og
þjóðfélagsfræði, en einhvern-
veginn brást það einnig og gerð-
isl hann þá sölumaður. En hann
virtist heldur ekki vel fallinn til
kaupsýslu; og hvarf hann frá
henni og vann um tíma fyrir sér
með því að þvo upp diska.
Amerika er lýðræðisland. Þar
er ein atvinnugrein annari jöfn,
svo framarlega, sem unnið er
fyrir sér á heiðarlegan hátt.
Culbertson liafði kynnst
mörgum Ameríkumönnum á
nánxsárum sínum í Pai-ís. Hann
tekið þátt í samkvæmislífi og
spilað Bridge á kvöldin.
Eitt kvöld við spilaborðið
kynntist hann ungri amerískri
konu, sem seinna varð kona
hans, frú Josephinu Dillon. Hún
var Bridgekennari i New York
og þekkt þar fyrir afburða spila-
mennsku og framúrskarandi
kennsluhæfileika.
Hún livatti hann mjög til þess,
að gera spilin að atvinnu sinni
og varð hann þegar i stað
Bridgekennari.
Um þetta leyti var Kontrakt-
bridge að ryðja sér meira og
meira til rúms. Margir merkir
spilamenn höfðu spreytt sig á
að semja kerfi um það, og ó-
teljandi voru þær sagnreglur,
sem myndast höfðu, en allt var
þetta í lausu lofti og á ringul-
reið.
Á hverjum degi hættu þús-
undir manna við Auktions-
bridge og byrjuðu að spila
Kontraktbridge. Culbertson
greip nú tækifærið samdi bók
um hið nýja Bridge og gaf út,
og varð hún bezta sölubók árs-
ins.
Þaðan i frá urðu honum allir
vegir færir, og hefir hann siðan
verið álitinn fremsti sérfræð-
ingur lieimsins í Ivontrakt-
bridge.
Kerfi hans og bækur breidd-
ust .óðfluga út og er nú talið að
um 80—90% allra þeirra, sem
Bridge iðka, fylgi að mestu leyti
Culbertsonskerfi. Þetta kerfi er
•byggt á margra ára reynslu
þeirra lijóna og f jölda merkustu
spilamanna heimsins, og er þvi
ef til vill tæplega hægt að segja,
að það sé eins manns verk.
Þau lijónin tóku þátt í kapp-
mótum í Ameriku og Evrópu
um margra ára skeið, kornu, sáu
og sigruðu. Bar öllum saman
um, að sagnkerfi þeirra bæri
langt af öðrum. Þó að þau bæði
væru afburða spilamenn, voru
allstaðar fyrir spilasnillingar,
sem stóðu þeim í rauninni ekki
að baki, en fóru þó halloka í
viðureigninni.
Þó fór svo að lokum, að aðrir
urðu þeim yfirsterkari og voru
það Vinarspilararnir sem sigr-
uðu þau á alþjóðakappmóti
í Budapest árið 1937.
Ely Culbertson hefir lengi
gefið út tímaritið „The Bridge
World“ og er hann aðalritstjóri
þess. Fjallar það eingöngu um
gat nú endurnýjað þann kunn- Myndin er tekin i bridgekepnni i London, þar sem úrvals spila-
mgskap og haldið honum við, menn brezkir töpuðu fyrir CulDertson-hjónunum.