Morgunblaðið - 01.11.1986, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 01.11.1986, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1986 Frumflutningur sellókon- serts Jóns Asgeirssonar Tónlist Egill Friðleifsson Háskólabíó 30.10 ’86. Efnisskrá: Beethoven, Fideli- o-forleikur. Jón Ásgeirsson, Sellókonsert. G. Fauré, Élégie fyrir selló og hljómsveit. 1. Stravinsky, „Petrúsjka“ bal- let-svíta. Þriðju áskriftartónleikar Sin- fóníuhljómsveitar íslands fóru fram í Háskólabíói sl. fímmtu- dagskvöld. A efnisskránni voru verk eftir þá Beethoven, Jón Ásgeirsson, G. Fauré og Stravin- sky. Beethoven samdi aðeins eina óperu, „Leonoru“-forleikina þrjá og svo Fidelio-forleikinn, sem hér var fluttur og var fyrstur á efnis- skránni. Það var ánægjulegt að heyra þennan gamla kunningja, ábúða- og átakamikinn, sem svo mjög ber öll einkenni meistara síns. Beethoven var vissulega snillingur í að blanda saman heitu og köldu. Það var bandaríski hljómsveitarstjórinn Arthur Weisberg sem leiddi hljómsveit- ina að þessu sinni og hafði allt sitt á þurru. Taktslög hans voru ákaflega skýr og hann hélt öllu snyrtilega til haga, enda lét hljómsveitin vel að stjóm og skil- aði hlutverki sínu með prýði. Það fylgir því jafnan nokkur eftirvænting þegar nýtt íslenskt verk er frumflutt, og nú var það sellókonsert Jóns Ásgeirssonar, sem vakti forvitni manna. Verkið er í þremur þáttum. Fyrsti þátt- urinn er ljóðrænn og rólegur með alvarlegu yfírbragði, þar sem breið skref sellósins njóta sín vel. Annar þátturinn er fjörlegur og gáskafullur, sem þó rofnar af rólegri íhugun sellósins. Þriðji og síðasti þátturinn er að mínu mati sá rismesti, þar sem takast á harka og mýkt, átök sem þó enda í fullri sátt og endatónn síðasta þáttar er sá sami og upp- hafstónn fyrsta þáttar. Tónskáld- ið segir sjálft að þessi konsert sé eins konar umfjöllun um gam- alt og nýtt og hugsanlega nýtt og persónulegt tónmál. Mörg, raunar allflest verka Jóns Ás- geirssonar, bera sterkan þjóðleg- an blæ. Að þessu sinni er ekki vitnað í þjóðlög, en þó er al- þýðulagið ekki langt undan. Á sama tíma gælir tónskáldið við tólftónakerfíð, án þess. þó að verkið sé tólftónamúsík í venju- legum skilningi þess orðs. Það er sennilega þetta sem tónskáldið á við með nýju og persónulegu tónmáli. Ég veit ekki hvort hægt er að kalla þetta „meðaldrægan Jónsstíl". En þessi aðferð, að blanda saman eða tefla fram nýju og gömlu, þjóðlegu og al- þjóðlegu á þennan persónulega hátt gerði konsertinn bæði áheyrilegan og spennandi. Með einleikshlutverkið fór Gunnar Kvaran og gerði konsert- inum góð skil. Hann hefur falleg- an tón og lék af innlifun. Samvinna einleikara og hljóm- sveitar var góð. Eftir hlé heyrðum við Élégie (trégaljóð) fyrir selló og hljóm- sveit eftir Gabriel Fauré, ákaf- lega fallegt verk en viðkvæmt og klæðir sellóið sérlega vel, og þó flutningur væri ekki hnökra- laus var hér margt vel gert. Tónleikunum lauk svo með því magnaða og litríka verki Petrúsj- kaballetsvítunni eftir Igor Strav- insky, verk sem gerir óvægnar kröfíir til flytjenda en skilar áheyrandanum í sjöunda himni ef vel tekst til, og hér tókst vel til. Hljómsveitin átti góðan dag. Það er sérstök ástæða að nefna Hljómsveitarstjórinn þakkar Gunnari Kvaran að leik hans loknum. Tónskáldinu, Jóni Ásgeirssyni, fagnað eftir flutning sellókonsertsins. Hljómsveitarsijórinn, Art- hur Weisberg, t.h. þá Jón H. Sigurbjömsson flautu- trompetleikara sem blésu lista- fylgjast með stjómandanum Art- leikara og Ásgeir Steingrímsson vel. Það verður spennandi að hur Weisberg seinna í vetur. SIMAR 21150-21370 S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS L0GM J0H Þ0ROARS0N HDL Til sýnis og sölu m.a.: Laus strax — sanngjarnt verð 4ra herb. ib. á 1. hæö viö Kleppsveg aö meðalstærð (rétt viö Dai- braut). Ný teppi. Sólsvalir. Geymsla í kj. Gott risherb. fylgir. Eins og ný með öllu sér Stór og góö 2ja herb. á neöri hæð i reisulegu steinhúsi viö Langholts- veg. Nýtt eldhús, nýtt baö. Allt sór. ib. er skuldlaus. Glæsileg raðhús á útsýnisstað Við Funafoid rétt við Gullinbrú i Grafarvogi „á einni og hálfri hæö“. Mjög rúmgóð. 4 stór svefnherb. Tvöf. bilsk. Góöar geymslur. Sólsval- ir um 24 fm. Allur frágangur utanhúss fylgir. Teikn. á skrifst. Byggjandi Húni sf. Ein bestu kaup á markaðnum í dag. Einbýlishús í gamla Austurbænum Hæð og ris á steyptum kj. meö 4ra-5 herb. ib. alls. Endurbótum er ekki lokið. Grfl. um 50 fm. Laust fljótlega. 2ja og 3ja herb. ódýrar íbúðir m.a. við: Sogaveg — Rónargötu — Hverfisgötu — Reynimel — Vestur- braut Hf. Ennfremur stór og glæsileg 2ja herb. ib. í lyftuhúsi við Kríuhóia á mjög sanngjörnu verði. Neðarlega í Seljahverfi Glæsilegt parhús ein hæð um 158 fm með bílsk. 4 góö svefnherb. með innb. skápum. Stór ræktuö lóð. Ákv. sala. Losun 1. sept. 1987. Við nýja miðbæinn — skipti Til kaups óskast góö 2ja herb. íb. á 1. hæö. Helst viö nýja miöbæinn eöa nágr. Skipti mögul. á 4ra herb. endaíb. viö Stórageröi. Til kaups óskast 2ja herb. góö íb. í borginni. Skipti mögul. á 3ja herb. rúmgóðri úrvalsíb. á 4. hæð rétt við nýja miöbæinn. Til kaups óskast 3ja herb. íb. viö nýja miöbæinn eöa nágr. Skipti mögul. á góðri 2ja herb. íb. við Safamýri. Til kaups óskast 5-6 herb. góö íb. í lyftuhúsi. Helst í nýja miðbænumi eöa við Espigerði. Skipti mögul. á 5 herb. sérhæð með bílsk. í Hlíöunum. Fossvogur — Vesturborgin — Nesið Nokkrir fjárst. kaupendur óska eftir sérhæöum, raðhúsum og einb- húsum á svæöinu frá Fossvogi út á Seltjarnarnes. Margskonar eignaskipti möguleg. Allar nánari uppl. trúnaðarmál. Opið í dag laugardag kl. 11.00 til kl. 14.00. AIMENNA FASTEIGNASALAN LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 Morgunblaðið ÓL. K. M. Leifur Breiðfjörð Gallerí Borg: Sýning á myndum eftir Leif Breiðfjörð SÝNING á verkum Leifs Breið- fjörð stendur yfir f Gallerí Borg. Að þessu sinni sýnir hann pastel- myndir, vatnslitamyndir og teikningar sem flestar eru unnar á síðustu þrem árum. Þetta er fyrsta einkasýning Leifs á myndverkum, en hann er þekkt- astur á sviði steindra glerverka. „Ég hef alltaf teiknað talsvert, hug- m}mdir að glerverkunum þróa ég oft úr þessum myndum. Sfðasliðið ár hef ég verið hvattur til að halda sýningu á myndunum og ákvað að láta verða af því.“ Leifur er fæddur 1945 í Reykjavík. Hann stundaði nám við Myndlista og Handíðaskóla íslands frá ’62-’66, The Edinburgh College of Art frá ’66-’68 og nam við Bur- leighfíeld House í Englandi frá ’73-’75. Hann kenndi við Myndlista og Handfðaskólann á árunum, ’69-’75. Hann hefúr haldið igórar einkasýningar í Reykjavík og eina á Akurejrri. Auk þess hefur hann tekið þátt í fjölda samsýninga.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.