Morgunblaðið - 01.11.1986, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1986
15
Haustvaka Kvenfélagasambands fs-
lands um helgina:
Fjallað verður um fjöl-
skylduna í samtímanum
Bein útsending á morgunþættí rásar 2 frá Lækjartorgi í ágúst sl. Ríkisútvarpið á lögum samkvæmt að
reka tvær hljóðvarpsrásir. Rás 2 hefur staðið undir sér með auglýsingum og ekki fengið neinn skerf
af afnotagjöldum til reksturs síns.
Þá spumingu og aðrar hliðar
hinna margslungnu útvarpsmála er
sjálfsagt að ræða af fullri einurð
og yfirvegun. Næsta lítið fór fyrir
rannsakandi úttekt á dagskrár-
stefnu og þjónustumarkmiðum
Ríkisútvarpsins þegar Alþingi fjall-
aði um útvarpslögin í fyrra. Mestum
tíma var varið til rökræðna um ein-
stök atriði er snertu meginbreyting-
una í lögunum, þ.e. stofnun nýrra
útvarpsstöðva.
Útvarpslögin á að endurskoða
innna þriggja ára. Þennan breyt-
inga- og aðlögunartíma þarf að
nýta vel og mjög kærkomið væri
að fá fram víðtæka umræðu um
þá framtíðarsýn sem menn vilja
tengja Ríkisútvarpinu.
I Bretlandi hefur hið opinbera
almannaútvarp BBC búið við sam-
keppni einkastöðva í útvarps- og
sjónvarpsrekstri í áratugi. BBC
hefur tekjur sínar einvörðungu af
afnotagjöldum en einkastöðvar
plægja akur auglýsingamarkaðar-
ins. Þrátt fyrir öfluga starfsemi
einkastöðvanna er hlutur BBC í
brezkri fjölmiðlun mjög mikill og
stendur traustum fótum. BBC rekur
§órar hljóðvarpsrásir með mismun-
andi dagskrárefni og tvær sjón-
varpsrásir. Að undanfömu hafa
Bretar rætt framtíð fjölmiðlunar og
hlutverk og tekjuöflunarleiðir BBC.
Thatcher forsætisráðherra hefur
verið því hlynnt að BBC aflaði tekna
með auglýsingabirtingu og keppti
þannig við einkastöðvar í stað þess
að hækka afnotagjöldin. Öðmm
þykir ráðlegra að bíða átekta þar
til fundnar verða ömggar aðferðir
til gjaldtöku í samræmi við notkun.
Aðeins er tæpt ár liðið síðan ný
lög ollu gjörbyltingu í útvarpsmál-
um Islendinga. Svo sem búizt var
við hefur ókyrrð og óvissa ríkt
framan af um afkomuhorfur fyrir-
tækjanna sem keppa á þessum
markaði. Þegar frá líður mun
reynslan leiða í ljós hvort og þá
hverra breytinga er þörf í útvarps-
málum. Þar til gaumgæfileg
athugun á öllum þáttum þessa viða-
mikla og afdrifaríka máls hefur
farið fram er með öllu óviðunandi
að hróflað sé verið undirstöðunum
án þess að hugsað sé til þess hveij-
ar afleiðingamar verði.
Höfundur er útvarpsstjóri
Kvenfélagasamband íslands
gengst um helgina fyrir Haust-
vöku. Þetta er nýjung í starfi
sambandsins en áður hefur það
gengist fyrir vinnuvöku og vor-
vöku. Haustvakan verður haldin
á Hallveigarstöðum, Hótel Loft-
leiðum, Þjóðleikhúsinu og
Dómkirkjunni.
Haustvakan hófst í gærkvöldi,
föstudag, með „Opnu húsi“ á Hall-
veigarstöðum. Þar voru ráðstefnu-
gögn afhent, bornar fram veitingar
og skemmtiatriði flutt.
í dag, laugardag, verður ráð-
stefna um „Fjölskylduna í samtí-
manum“ sett á Hótel Loftleiðum kl.
9 árdegis. Fjallað verður um efnið
í sjö efnisflokkum. Efnisflokkamir
eru: Hjónabandið, hollusta, mann-
legt líf í tæknivæddri framtíð, kynlíf,
foreldrahlutverk, tómstundir og
vinnumarkaður.
Tvö stutt framsöguerindi verða
flutt um hvem efnisflokk. Sr. Ólafur
Skúlason vígslubiskup og Guðrún
Ásmundsdóttir fjalla um hjónaband-
ið, Guðrún Agnarsdóttir læknir og
alþingismaður og Ómar Ragnarsson
fl'alla um hollustu, Magnús Pálsson
forstöðumaður markaðssviðs Iðnað-
arbanka og Lilja Ólafsdóttir fram-
kvæmdastjóri fjalla um mannlegt líf
í tæknivæddri framtíð, Grétar Sigur-
bergsson geðlæknir og Hulda
Guðmundsdunttir félagsráðgjafi um
kynlíf, Jóhanna Bemharðsdóttir
hjúkrunarfræðingur og Haraldur
Olafsson lektor og alþingismaður um
foreldrahlutverkið, Anna Lea
Bjömsdóttir íþróttafræðingur og
Eiríkur Öm Amarson sálfræðingur
um tómstundir og loks fjalla Þór
Vilhjálmsson hæstaréttardómari og
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir skrif-
stofumaður um vinnumarkaðinn.
Eftir framsöguerindi er gefinn
stuttur tími til fyrirspuma og and-
svara.
I kvöld er leiksýning í Þjóðleik-
húsinu á dagskrá. Á sunnudag er
guðsþjónusta í Dómkirkjunni þar
sem konur úr prestastétt predika og
þjóna fyrir altari. Síðdegis á sunnu-
dag er bókavaka á Hótel Loftleiðum.
Þar lesa konur úr eigin bókum, lista-
konur syngja og leika á fiðlu og loks
syngja Ömmurnar úr Kópavogi þjóð-
lög og vísur.
I Kvenfélagasambandi íslands eru
nú um 23 þúsund konur í 248 aðild-
arfélögum og 22 samböndum.
Þátttaka í Haustvöku 1986 er öllum
heimil.
Mímir:
Handrit Margrét-
ar sögu og
fæðingarhjálp
MÍ MIR, félag stúdenta í íslensk-
um fræðum gengst fyrir a.m.k.
einum fyrirlestri í hverjum mán-
uði i vetur. í dag verður fyrirlest-
ur Ásdísar Egilsdóttur sem
nefnist „Handrit Margrétarsögu
og notkun þeirra við fæðingar-
hjálp.“
Fyrirlestrar þessir eru í tilefni 40
ára afmælis Mímis þann 11. desemb-
er nk. Sverrir Tómasson hélt fyrsta
fyrirlesturinn, um íslenska menntun
á 12. öld. Fyrirlestur Ásdísar í dag
vefður í Odda, stofu 101 kl. 14.
Ásdís fjallar um heilaga Margréti
sem var vemdardýrlingur kvenna í
bamsnauð og ein þeirra helgu meyja
sem mestur átrúnaður var á. Fleiri
handrit hafa varðveist af sögu henn-
ar en nokkurs annars dýrlings.
Fréttatilkynning
M Btömuin
Fallegar plöntur fyrir lágt ®rö. D/EMI.
FicusBeniamínáhálfvirö^ 2g5 .
eo-70 cm ........Jusxr-- 945-'
100-120 cm ......“ 250.-
Burknar . ;
Kaktusar allir a halfvirði kr 42.-
Veröfrá ...................
' pottahlífz
BSK— .
Komið í Blómaval um helgma
- Gerið góð kaup.
við Sigtún: Símar 36770-
Gróðurhusmu