Morgunblaðið - 01.11.1986, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 01.11.1986, Qupperneq 25
til sex sinnum á dag. Á virkum degi fóru 12.000 ökutæki árið 1981 eftir Bústaðaveginum. 3. Oft heyrast raddir um, að lög- gæslan í umferðinni sé ekki nógu mikil. Eg verð að taka undir þessar raddir með því fororði, að þá á ég við fyrirbyggjandi og leiðbeinandi umferðarstjóm. Ég er þeirrar skoð- unar, að fjölga þurfi löggæslumönn- um úti í sjálfri umferðinni, ekki síst á vissum stöðum og vissum tímum. Það mundi auka aðhaldið og gefa ökumönnum tækifæri til að vera kurteisir, þ.e. bæta umferðarmenn- inguna. Best væri að slík umferðar- stjóm væri í takt við opinberan áróður og fræðslu um umferðarmál. Þeir löggæslumenn, sem sinna þessum verkefnum í Reykjavík, em í fyrsta lagi of fáir og í öðm lagi em þeir uppteknir við neikvæð störf í þessu samhengi. Þeir fara á vett- vang, þegar árekstur hefur orðið, mæla og skrifa skýrslu. Þessir menn em 8 talsins og hvemig halda menn að ástandið hafí verið einn góðan septembermorgun í haust, þegar tilkynntir árekstrar urðu 40 talsins fyrir hádegi. Þetta skipulag er úrelt. Þetta er engin umferðar- stjómun. Létta þarf tafarlaust þessum störfum af umferðarlögreglunni. Lögreglan á því aðeins að koma á staðinn, að slys á fólki hafí orðið. Lögreglunni og vátryggingafé- lögunum ætti ekki að verða skota- skuld úr því að leysa tæknilega þetta framkvæmdaatriði á þann hátt, að öllum rétti allra aðila sé haldið til haga. Það má líta til út- landa eftir reynslu þaðan. Það er svo kapituli út af fyrir sig sú aukna slysahætta, sem verð- ur við þá stíflu í umferðinni, þegar menn bíða á miðri akgreininni, eft- ir lítilfjörlegan árekstur, komu tveggja löggæslumanna til að skrifa skýrslu. Ut í þá sálma ætla ég ekki að fara. 4. Ég vil ekki ljúka svo opinbera þættinum, að minnast ekki á öku- skírteinið. Samkvæmt lögum þarftu leyfí samfélagsins til að aka bíl og stofna til þeirrar áhættu, sem af notkun hans leiðir. Að uppfylltum vissum skilyrðum færðu þetta leyfí. Þetta er eins og að fá byssuleyfi. Ég tel, að herða þurfí skilyrðin til að fá ökuleyfi, einkum að auka kröfumar um óvefengjanlega hæfni til að aka bifreiðinni. Maður í Reykjavík á ekki að taka próf á malbikinu eingöngu, heldur á hann að þurfa að sýna hæfni sína í utanbæjarakstri. Sama gildir um ökumann utan af landi. Hann á að sýna hæfni sína í umferðinni á Stór-Reykjavíkursvæðinu áður en hann fær ökuleyfi. Menn skulu líta á tjónaskýrslumar. Þriðji hver bfll, sem lendir í umferðaróhappi í Reykjavík, er með annað skráning- amúmer en R. Þetta segir ekki, að þeir séu tjónvaldamir. Þetta segir bara nokkuð um það hvar þeir aka. Mjög nauðsynlegt er að tíma- binda ökuleyfíð fyrstu árin og láta unga, verðandi ökumenn sanna hæfni sína. Hinn mannlegi þáttur Þá er komið að hinum mannlega þætti. Hann er erfiðastur viðureign- ar, en þýðingarmestur. Fyrst er kannski rétt að spyrja sjálfan sig: Eru Íslendingar slæmir ökumenn? Ég mundi svara neitandi. Þegar íslendingur er erlendis ekur hann eins og heiforingi, fer eftir öllum umferðarmerkjum og virðist rata býsna vel í ókunnri borg. Sjaldan lendir hann í umferðarslys- um, og enn sjaldnar á hann sök á umferðaróhappi. En af hveiju ekur hann betur erlendis en hér heima? Mitt svar er: Þar er hann vakandi og varkár, af því að honum fínnst mikið vera í húfi, þ.e. hann gerir sér betur grein fyrir ábyrgð sjálfs sín en hér heima. Ekki þarf þetta að vera rétt svar. Mín ályktun er þó sú, að sé þess kostur að auka ábyrgðartilfínning- una hjá þeim, sem eru hér í umferðinni, muni umferðarmenning okkar stórbatna. Vandinn í þeim efnum er tvíþættur Finna réttu aðferðirnar og kosta þær. En þetta verðum við að láta okkur takast. Ég játa, að mér er nokkuð gjarnt MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1986 25 að einfalda hlutina fyrir sjálfum mér og þið verðið að taka mig með þeim fyrirvara. Við undirbúning þessa framlags míns hér fletti ég mikið tjónaskýrsl- um. Vátryggingafélögin létu tölvu- vinna samræmdar tjónaupplýsingar sínar í janúar 1986, bæði eftir áhættusvæðum, bifreiðategundum og bónusflokkum. Ennfremur skoð- aði ég um 40 mál í minni tjónadeild. Hvemig er ég velti þessum tölum fyrir mér lentu öll umferðarslysin í tvo stóra flokka í mínum huga. í öðrum flokknum eru kærulaus- ir ökumenn, ekki bara við stýrið heldur og í öðmm efnum, og em oft og einatt að hugsa um annað eða gera eitthvað annað en akkúrat bílstjómarverkið. í hinum flokknum em ofurhugamir og frekjurnar. Þeir þurfa að flýta sér og komast áfram og hvað varðar þá um hina, sem em fyrir þeim. Ungur piltur vill á fund unnustu sinnar í öðm bæjarfélagi og hann ekur af stað. Á vegi hans er blind beygja en hvað varðar hann um það. Hann gefur í. Hann eyðileggur 3 bfla, sendir 7 manns í sjúkrahús og nær ekki fundum unnustu sinnar fyrr en hinum megin. Við þessa skiptingu hef ég lagt þau umferðaróhöpp til hliðar, sem em hrein óhappatilvik, sem alla gæti hent. I þessari flokkun minni skipti ég ökumönnum ekki niður eftir kyni, starfí eða menntun, heldur eftir ein- staklingsbundnum eiginleikum þeirra. Allt tengist þetta í raun ábyrgðartilfínningunni. Tökum til dæmis leigubifreiða- stjóra, sem Óli H. Þórðarson hafði réttilega áhyggjur af, þegar hann sá niðurstöður tölvuvinnslunnar, sem ég gat um áðan. Þegar ég reyni að skyggnast dýpra í málið verða fyrir mér stað- reyndir og er það aðallega byggt á gögnum Bmnabótafélagsins: Þú fínnur góða leigubifreiðastjóra og þú fínnur slæma bifreiðastjóra. En þó má halda áfram að rök- ræða og benda á þær tölulegu staðreyndir, að tjónatíðni og tjóna- þungi er mjög mikill hjá leigubif- reiðum. Á árinu 1984, því miður em ekki nýrri tölur komnar, er tjónaprósentan 231% eða í tölum 16,5 mkr. í tjónum á móti 5 mkr. í iðgjöldum. Framhjá þessum tölulegu stað- reyndum verður ekki gengið og í raun þarf að rannsaka þessi tjón sérstaklega, kannski gagnvart meiraprófsmönnum í heild. En ekki má maður láta það fara framhjá sér í þessu sambandi, að þegar hinn almenni bifreiðaeigandi í landinu ekur að meðaltali 6—8000 km á ári, ekur leigubifreiðastjórinn 45—50.000 km á ári. Það þýðir, að leigubifreiðastjóramir em sjö sinnum meira í umferðinni en hinn almenni bifreiðaeigandi. Þetta þarf að yega á móti tjónaprósentunni. Ég lét skoða það, að láta menn greiða iðgjöld eftir kflómetramælin- um, eins og gert er í Noregi, eftir reglunni: því meira í umferðinni, þeim mun meiri áhætta. Sérfræð- ingar mínir töldu, að slíkt mundi ekki takast hér á landi og færðu fram margar ástæður, sem ég tíunda ekki hér. í framhaldi af því spurði ég: Hvemig væri þá að láta greiða iðgjöldin með bensínkaupun- um? Því er enn ósvarað. Annað, sem vekur athygli, þegar tjónahlutföllin em skoðuð, er hversu stór hlutur nýrra ökuleyfishafa er að tjónum og stómm tjónum. Þessa reynslu hafa einnig aðrar þjóðir, en þær hafa þó gripið til fyrirbyggj- andi ráðstafana. Það höfum við ekki gert ennþá, en þurfum að fara til þess. Vinur minn einn í útlöndum á aldur við mig greiðir ábyrgðarið- gjald af bflnum sínum sem samsvar- ar 150 dollumm á ári. Þegar sonur* hans varð 17 ára og fékk ökuleyfí, varð faðirinn að tilkynna vátrygg- ingafélaginu, hvort sonurinn mætti aka bflnum eða ekki. Þegar faðirinn gaf leyfi sitt til þess, hækkaði ábyrgðariðgjaldið upp í 400 dollara eða tæplega 3-falt. Hins vegar féll hækkunin niður þegar sonurinn gifti sig á 20. aldursári. Vinur minn sagði, að þetta væri allt byggt á statistik um umferðaróhöpp og byggði á því meginsjónarmiði að láta þá, sem valda tjóninu, greiða hærra iðgjald, þ.e. umferðar- pólitískt iðgjald. Við þurfum að taka slík iðgjöld upp í ríkara mæli. Oft blasir við váttyggingafélögunum sú mynd, að ráðsettur faðir með hæsta bónus setur fína bílinn sinn í hendur á elskulegum syni, sem fékk ökuleyfí á afmælisdegi sínum, og hinn síðar- nefndi „keyrir hann í klessu“ eins og sagt er. Hvorki hefur pilturinn greitt iðgjald né faðirinn áhættu- álag. Vátryggingafélagið verður að borga tjónið. Eg sagði áðan, að ég teldi, að íslendingar væm góðir ökumenn. Hins vegar er mér fullkomlega Ijóst, að alltof margir óhæfír ökumenn em í umferðinni. Kunna hreinlega ekki að aka bfl, þekkja ekki um- ferðarreglumar og líta. aldrei í bakspegilinn. Þessum ökumönnum verður að fækka með einhveijum ráðum. Á tölvuöld hlýtur að vera auðvelt að gera ökuferlisskýrslu um hvem einasta ökumann. Á gmndvelli hennar á að koma upp punkta- kerfí, sem miðar að þvi að taka ökuleyfið af manni, sem hefur sýnt okkur og sannað, að hann er óhæf- ur í umferðinni. Um vegfarandann er hins vegar ekki mikið að segja. Hann er oftast þolandinn, en hann á líka oft mikla sök á umferðaróhappinu vegna ónægrar aðgæslu. Hér em böm og gamalmenni alveg í sérflokki og þau verða ekki á sama hátt og aðrir aldursflokkar dregnir til ábyrgðar. Látlaus áróður, fræðsla og leið- beiningar til vegfarandans í umferðinni er það eina, sem ég hef upp á að bjóða. Lokaorð Mál mitt er þegar orðið alltof langt og biðst ég velvirðingar á því. Að lokum vil ég benda á eftirfar- andi: Þegar á heildina er litið, em umferðarmálin vandamál okkar allra. Við eigum hér öll hlut að. Þau em ekki sérmál neins. Við hljótum að vera sammála um að brýna nauðsyn beri til að bæta. núverandi ástand, auka öryggið í umferðinni og fækka slysum, eða með öðmm orðum: Skapa um- ferðarmenningu. Umferðarráð og bifreiðatrygg- ingafélögin eiga nú að fóta sig til samstöðu um nýtt átak í umferð- armálum, stilla saman strengi yfírvalda, félagssamtaka og al- mennings og taka fjölmiðla og skóla inn í þá mynd. Hlutavelta og kökusala Kópa hefst klukkan tvö í frétt í Morgunblaðinu í gær um hlutaveltu Skátafélagsins Kópa misritaðist tíminn, en hlutaveltan hefst klukkan tvö, klukkan 14, á sunnudaginn í Félagsheimili Kópa- vogs. Ikonasýn- ing- í Nor- ræna húsinu SUNNUDAGINN 2. nóvember verður opnuð sýning á íkonum í anddyri Norræna hússins og stendur hún til 16. nóvember. Þetta eru allt nýir íkonar, sem finnski listamaðurinn Liisa Makelá hefur málað á undan- förnum árum. Ikonamyndgerð á sér ævafoma hefð og var útbreidd um allan heim rétttrúnaðarkirkjunnar, en náði mestri fullkomnun í Rúss- landi. Ikonar em andlitsmyndir af dýrlingum og píslarvottum, gerðar samkvæmt ákveðnum fyr- irmyndum og er þeim sýnd mikil trúarlotning. Efniviðurinn er jafn- an tré, sem er málað með náttúru- litum (tempera) og á hver litur sitt táknmál, háð vissum yrkisefn- um og persónum. Á síðari tímum var farið að skreyta íkona með eðalmálmum og gimsteinum. Liisa Mákelá lærði íkonamynd- gerð hjá sr. Robert de Caluwé, belgískum presti, sem starfar í Finnlandi. Hún heldur sig við hina fomu hefð, að íkonamir séu ein- göngu málaðir, en ekki skreyttir. Hún þykir hafa náð góðum tökum á þessari list og hefur sýnt verk sín víða við góðan orðstír. Fólki, sem séð hefur íkona í kirlqum eða annars staðar, bregður ef til vill í brún við að sjá hversu bjart er yfír íkonum Liisu Mákelá. Gamlir íkonar hafa að jafnaði dökkt yfir- bragð, líkt o'g gömul málverk, því litimir dofna með tímanum. Upp- haflega hafa þeir þó verið eins skýrir og sjá má á verkum Liisu Mákelá í Norræna húsinu næsta hálfa mánuðinn. Sendiherra Finnlands, Anders Huldén, opnar sýninguna í and- dyri Norræna hússins kl. 16.00 á sunnudaginn. Eru allir velkomnir að koma og kynna sér þessar myndir, sem telja má nýstárlegar hér á landi. Sýningin verður opin daglega á venjulegum opnunartíma Nor- ræna hússins kl. 9—19 virka daga og 12—19 á sunnudögum. Henni lýkur 16. nóvember. (Fréttatilkynnmg) Qkutfam frá LANCIA ----,----------------y-------------------/---/ TISKUBILLINNIAR! Það er bjart framundan hjá kaupendum smábíla, því nú er kominn á markaðinn stórskemmtilegur lítill bíll, sem á ekkert sameiginlegt með öðrum smábílum nema stærðina. SKUTLAN er framleidd af hinum þekktu LANCIA verksmiðjum, sem hingað til hafa einbeitt sér að framleiðslu stórra og vandaðra luxusbíla og sportbíla. Hún er 5 manna „lítil að utan — en stór að innan“ og býður upp á áður óþekkt þægindi og íburð í bílum af þessari stærð. SKUTLAN er flutt inn af Bílaborg h/f. Það tryggir 1. flokks þjónustu, sem er rómuð af öllum sem til þekkja. SKUTLAN kostar frá aðeins 285.000 genglsskráning 24.10. 1986. BÍLABORG HF Smiðshöfða 23sími 6812 99 Alm. auglsl./SlA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.