Morgunblaðið - 01.11.1986, Side 28

Morgunblaðið - 01.11.1986, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1986 Deilur innan stjórnar Filippseyja; Bandar í kj astj ór n telur þær eðlilegar Washington, AP. BANDARÍKJASTJÓRN hefur ekki áhyggjur af deilum inn- an stjórnar Filippseyja og telur þær sýna styrk lýðræðisins, að sögn Edwards Derwinsky, aðstoðarmanns utanríkisráð- herra Bandaríkjastjórnar. Juan Enrile, varnarmálaráðhera Filippseyja, hefur að undanförnu gagnrýnt Corazón Aquino forseta og stuðningsmenn hennar hafa beint spjótum sínum að honum. Derwinsky lét þessi ummæli falla á blaðamannafundi í gær. Hann kvað Bandaríkjastjón líta svo á að gagnrýni Enrile væri eðlileg í lýð- ræðisþjóðfélagi og augljóst væri að skoðanir hans ættu hljómgrunn á meðal almennings. Derwinsky bar einnig lof á Corazón Aquino og sagði framgöngu hennar hafa ein- kennst af pólitísku innsæi og stefnufestu. Bandaríska stórblaðið The New Yok Times skýrði frá því í gær að bandarískir sendimenn í Manila hefðu komið þeim skilaboðum áleið- is til Enrile að Bandaríkjastjóm væri ósátt við gagnrýni hans á Corazón Aquino. Enrile hefur eink- um gagnrýnt forsetann fyrir að hafa ekki sýnt nægilega hörku í samskiptum við kommúnista á Filippseyjum. Bandaríkjastjón hef- ur ítrekað lýst yfír stuðningi við Aquino. Juan Enrile lýsti yfir stuðningi við Corazón Aquino í gær og hvatti landslýð allan til að fylkja sér að baki forsetanum. Láttu ekki bak- verkinn buga þig -þér batnar hann betur í vinnunni en heima FLESTIR þeirra, sem þjást af bakverk, ættu að snúa aftur til vinnu sinnar eins fljótt og hægt er, jafnvel þótt þeir séu ekki laus- ir við kvalirnar. Er þetta niður- staða nýrrar rannsóknar í Bandaríkjunum. Var frá henni greint í nýlegu hefti af Lækn- atímariti Nýja Englands (The New England Journal of Medic- ine). Dr. Richard A. Deyo, sem sá um rannsóknina við heilsugæslustofn- un í Seattle, komst að því, að það getur verið varasamt fyrir bakveikt fólk að taka sér langt veikindafrí og hanga heima í aðgerðarleysi. Þá er hætt við, að vöðvastyrkurinn minnki og alls kyns blóðrásartrufl- anir skjóti upp kollinum. „Það bætir andlega líðan fólks að snúa aftur til sinna venjulegu starfa og eykur vonir þess um að ná fullum bata,“ segir Deyo í grein- inni en hann gerði athuganir sínar á tvö hundruð manns, sem þjáðust af bakverk án þess, að um væri að ræða taugaskemmdir. Var annað hundraðið beðið um að bæla rúmið í tvo daga en hitt í sjö og kom í ljós, að bakverkurinn hjá báðum hvarf yfirleitt á 11 dögum. Ofverndaðir sjúklingar „Við læknarnir höfum gerst sek- ir um að ofvemda sjúklingana og jafnvel að telja þeim trú um, að þeir væru veikari en þeir eru,“ sagði Deyo, sem lagði áherslu á, að þá væri aðeins átt við fólk, sem væri með venjulegan bakverk, vegna streitu í vöðvum og liðböndum, en ekki við þá, sem þjást af sliti í lið- flötum eða taugaskemmdum. Bakverkur er eitthvert algeng- asta mannameinið í Bandaríkjunum og ákaflega útlátasamt fyrir þjóð- félagið. Segir dr. Deyo, að talið sé, að launþegar verði árlega fyrir fimm milljarða dollara tekjumissi af hans völdum og minni fram- leiðni. Aðeins gamla, góða kvefið taki honum fram að þessu leyti. Táragasgegn húsatökufólki AP/Símamynd. LÖGREGLAN í Amsterdam í Hollandi hefur oft átt í útistöðum við svokallaða húsatökumenn, fólk, sem leggur undir sig hús, sem standa auð af einhveijum ástæðum. I gær kom til slíkrar sennu og lauk henni með þvi að húsatökufólkið var rekið út með táragasi. A myndinni má sjá táragas- sprengjuna á leið inn um annan gluggann. Vaxtalækkun í Japan: Mun hafa örvandi áhrif á japanskt efnahagslíf - segir Nakasone forsætisráðherra Tókýó, AP. JAPANSKI seðlabankinn tilkynnti í gær, að hann hefði lækkað for- vexti um hálfan af hundraði niður í 3%. Hafa þeir ekki verið lægri eftir heimsstyijöldina síðari. Þetta eru þeir vextir, sem bank- inn tekur af lánum, sem hann lánar út til viðskiptabankanna. Sagði Sátoshi Sumita, bankastjóri, að vonir stæðu til, að þessi breyting ætti eftir að hafa „varanleg áhrif" fyrir aukinn hagvöxt og stöðugra gengi erlendra gjaldmiðla í Japan. Forvextir seðlabankans í Japan eru nú þeir lægstu, sem þekkist í hinum stærri iðnaðarlöndum heims. Sam- svarandi vextir eru nú 3,5% í Vestur-Þýzkalandi, 5,5% í Banda- ríkjunum og 7% í Frakklandi. Þetta er í fjórða sinn á þessu ári, sem japanski seðlabankinn lækkar for- AP/SImamynd Götubardagar í Karachi TIL mikilla götuóeirða kom í Karachi I Pakistan í gær og áttust þar við menn af tveimur ætt- flokkum, sem lengi hafa elt grátt silfur saman. Var byssum beitt í bardaganum, kveikt í strætis- vögnum og ráðist á hús og heimili. Féllu sex menn úr hvorra tveggja liði og tugir særðust. Tókst lögreglunni loks að tvístra fjandaflokkunum með táragasi og kylfum. vexti. Hafa þeir lækkaað um 0,5% í hvert sinn, í fyrsta sinn í janúar, þá í marz og síðan í apríl. Margir þykjast nú sjá merki um stöðnun í japönsku efnahagslífi, einkum í verksmiðjuiðnaði, sem byggður er á útflutningi. Er stór- felldri hækkun jensins kennt um fyrst og fremst, en það hefur hækk- að um 58% gagnvart Bandaríkja- dollar frá því í september 1985 (er nú 160 jen á móti dollar en var 240 í fyrra haust). Þá komu efnahags- málaráðherrar fimm helztu iðnríkja heims saman til fundar, þar sem ákveðið var að taka upp samvinnu gagngert í því augnamiði að lækka gengi dollarans og draga með því úr stórfelldum viðskiptahalla Bandarílqanna. Þrátt fyrir þetta virðist ltið lát á hagstæðum viðskiptajöfnuði Jap- ans. Greiðslujöfnuðurinn var hagstæður um 9,1 milljarð dollara í september en um 7 milljarða doll- ara í ágúst. Þá var viðskiptajöfnuð- urinn hagstæður um 9,8 milljarða dollara í september en um 8,1 millj- arða dollara í ágúst. Greiðslujöfnuð- urinn nær til vöru, þjónustu og vaxta af skammtímalánum, en við- skiptajöfnuðurinn nær til vöru og þjónustu. Bandaríkjamenn hafa lagt hart að Japönum að lækka vexti í von um aukinn hagvöxt og meiri eftir- spurn eftir vörum og þjónustu í Japan, svo að draga megi þannig úr viðskiptahalla Bandaríkjanna. Forsætisráðherra Japans, Yasuhiro Nakasone, fagnaði vaxtalækkun- inni í gær og sagði, að hún kæmi á réttum tíma og ætti eftir að hafa mjög örvandi áhrif á japanskt efna- hagslíf. Systir Shirmans til ísrael á mánudaginnn Tel Aviv, AP. INESSA Fleurova, systir hvítblæðissjúklingsins Michaels Shirman, mun halda til ísrael frá Moskvu á mánudaginn kemur. Eins og mönnum er glöggt í minni kom Shirman hingað frá Isra- el á meðan á leiðtogafundinum stóð til þess að vekja athygli á málstað systur sinnar og gyðinga í Sov- étríkjunum. Skömmu síðar fékk systir hans leyfi yfirvalda til að halda til ísrael. Nú er ljóst að Shir- man mun fá beinmerg úr systur sinni sem er eina von hans um að halda lífí. Að sögn Michaels Shir- man mun Inessa Fleurova halda til Vínar á mánudag og þaðan til ísra- el.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.