Morgunblaðið - 01.11.1986, Page 29

Morgunblaðið - 01.11.1986, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGÁRDÁGUR í. NÖVEMBER 1986 Bandaríkin: Vara við munn- tóbaki o g skro BANDARÍSKA viðskiptaráðið kynnti fyrir rúmri viku nýja reglu- gerð, sem skyldar framleiðendur neftóbaks og munntóbaks til að vara kaupendur við hættunni, sem af vörunni getur stafað. Eiga þeir að merkja umbúðirnar á sama hátt og vindlingaf ranileiðendur. Reglugerðin nær til alls tóbaks, sem ekki er reykt, en að undan- fömu hefur mikið verið fjallað um það heilsutjón, sem það getur vald- ið. Bandaríska heilbrigðismála- stofnunin hefur varað fólk við að neyta þessara tóbaksvara, sem eru neftóbak og skro, og kemur fram hjá henni, að þær geti valdið krabbameini í munni og hálsi. Áróðurinn gegn reykingum hefur m.a. leitt til þess, að margt ungt fólk, ekki síst íþróttafólk, hefur Sprenging í Berlín Berlín, AP. SPRENGJA sprakk í gær við bandarískan herflugvöll í Berlín. Óþekktur maður hringdi í frétta- stofu í borginni og sagði „Frelsis- fylkingu Araba í Líbanon “ hafa staðið að baki sprengjutilræðinu. Talsmenn lögreglunnar segja að sprengjan hafi verið af sovéskri gerð. Sprengjunni var komið fyrir í farangursgeymslu bifreiðar, sem lagt hafði verið í götu samsíða flug- vallarsvæðinu. Bíllinn tættist í sundur og nærliggjandi bifreiðar urðu fyrir skemmdum en slys urðu ekki á mönnum. Maður sást hlaupa frá bifreiðinni í þann mund sem sprengingin varð. Lögreglan telur að þar hafi tilræðismaðurinn verið á ferð og er líklegt að hann hafi særst í sprengingunni. Mannsins er nú ákaft leitað og telur lögreglan sig vera komna á sporið. Talsmenn lögreglunnar vildu hins vegar ekkert láta hafa eftir sér um samtökin sem lýstu yfir ábyrgð á sprengingunni. snúið að neftóbaki eða skroi. Síðustu athuganir benda t.d. til, að 10 milljónir Bandaríkjamanna a.m. k. noti þessar tóbaksvörur, þar af þijár milljónir undir 21 árs aldri. Merkingamar á umbúðunum verða að vera mjög greinilegar og hafa einhverja þessara þriggja við- varana: „Þessi vara getur valdið krabbameini í munni"; „Þessi vara getur valdið sjúkdómum í gómi og tannlosi" og „Þessi vara er ekki hættulaus staðgengill vindling- anna“. Framleiðendur þessa tóbaks hafa ekki viljað fallast á, að nokkur hætta fylgi notkun þess en þeir hafa 45 daga frest til að skýra Viðskiptaráðinu frá því hvemig þeir ætli að framfylgja lögunum, sem taka gildi 27. febrúar nk. Fyrr á þessu ári var bannað að auglýsa neftóbak og skro í útvarpi og sjón- varpi. Gengi gjaldmiðla London, AP. BANDARÍKJADOLLAR hækk- aði í gær gagnvart helztu gjald- miðlum heims nema sterlings- pundinu. Var þetta m. a. rakið til vaxtalækkunar í Japan. Síðdegis í gær kostaði pundið 1,4065 dollara í London (1,3980), en annars var gengi dollarans þann- ig, að fyrir hann fengust 2,0673 vestur-þýzk mörk (2,0455), 1,7160 svissneskir frankar (1,6930), 6,7375 franskir frankar (6,6750), 2,3365 hollenzk gyllini (2,3095), 1.428,00 ítalskar límr (1.413,50) 1,3903 kandaískir dollarar (1,3874) og 163,65 jen (159,90). Gullverð lækkaði og var verð þess 400,00 dollarar hver únsa (405,00). AP/Símamynd Við öllu búnir á Heathrow Öryggisgæsla á Hea.throw-flugvelli í London hefur verið efld mjög að undanförnu og hermenn þjálfaðir til að fást við hugsan- lega hryðjuverkamenn. Myndin er frá einni slíkri æfingu. Fyrir aftan skriðdrekann, sem er af Scorpion-gerð, er þota frá ísra- elska flugfélaginu EI Al. Hafði hún viðkomu í London á leið til New York. ViÖ hófiim okkur og lentum við hus nr. 17 við Laugaveg Full búð af vönduðum og fallegum fötum á börnin. Verið velkomin SENDUM í PÓSTKRÖFU. OPIÐ í DAG KL. 10-13. ENGIABORNIN Laugavegi 17 og Laugavegi 28. / Hreinsið teppin Utleiga á teppahreinsivélum Margir hafa á undanförnum árum sann- reynt hversu frábærar teppahreinsivél- ar við leigjum út. Fyrir jólin er rétt að panta vél tímanlega ef hreinsa þarf teppið, sófasettið eða bílinn. Teppatand Við bjóðum einungis nýjar, öflugar hreinsivélar með háþrýstikrafti og frá- bæru hreinsiefni. ítarlegar leiðbeiningar fylgja. En hreinsunin sjálf er reyndar jafnauðveld og ryksugun og þetta er ódýrara en þig grunar. Dúka/and Grensásvegi 13, símar 83577 og 83430 Ath.: Pantanir teknar í síma

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.