Morgunblaðið - 23.11.1986, Síða 3

Morgunblaðið - 23.11.1986, Síða 3
1 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1986 3 Utibússtjóri Utvegsbankans í Eyjum: Höfum tapað næst- mest á stjórn- málamönnunum Vestmannaeyjum. „ÞAÐ er skoðun mín, að bankinn hafi tapað næst- mest á stjórnmálamönnum. Ummæli forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafa orðið bankanum dýr, jafn- vel dýrari en eitt eldgos,“ sagði Vilhjálmur Bjarna- son, útibússtjóri Útvegs- bankans I Vestmannaeyj- um, í boði sem bankinn hélt útgerðarmönnum þeg- ar þeir þinguðu í Eyjum nýlega. Ummæli útibús- stjórans hafa vakið tals- verða athygli og fékk fréttaritari Morgunblaðs- ins ræðu hans til birtingar. Vilhjálmur sagði meðal annars að á þessum haustdögum væri dimmt yfir starfsemi Utvegs- bankans sem hann sagði að hefði átt verulegan þátt í uppbyggingu fiskiflotans, allt frá vélvæðingu bátaflotans til skuttogara og loðnuskipa. Sagði hann að þó útgerðin hafí ekki alltaf búið við velgengni sem á þessu ári hafi bankinn aldrei tapað neinu stór- vægilegu á útgerðinni. Síðan sagði Vilhjálmur Bjama- son orðrétt í ræðu sinni: „Það er skoðun mín, að bankinn hafi tapað næstmest á stjómmála- mönnum. Ummæli forsætisráð- herra og fjármálaráðherra hafa orðið bankanum dýr, jafnvel dýr- ari ein eitt eldgos. Menn skulu hafa það í huga að íslandsbanki var gerður gjaldþrota af pólitísk- um ástæðum, en ekki af efna- hagslegum. I bankaráði og bankastjóm hafa ávallt setið alþingismenn, fyrrverandi og núverandi. Nú eru kollegar þeirra ekki tilbúnir til að hlaupa undir með bankanum en bankinn er þó nógu góður til að hringja í til pólitískra redd- inga.“ -hkj. Morgunblaðið/Sig Jóns. Flugklúbbsmenn unnu af kappi við að negia þakplöt- uraar á skýlið. , Selfoss: NÝTTÞAK SETT Á FLUGSKÝLIÐ Selfossi. FLUGKLÚBBSMENN á Selfossi brugðu við skjótt þegar þakið fauk af öðru flugskýli þeirra við flugvöllinn, 5. nóvember sl., og drifu nýtt þak á skýlið. Um sl. helgi var unnið við það að negla þak- plötumar á og ganga frá húsinu svo það haldi vatni og vindum frá flugvélunum, sem þar eru geymdar. Sig Jóns L U v I h# I I« • t FJOISKYLDUFERÐ HL COSTA DEL SOL 18. desember 17 dagar, aðeins 6 vinnudagar. Verð frá kr. 28.700 (Jupiter) Kr. 19.000 fyrir böm 2—11 ára í gistingu með fullorðnum. ENSK J0LIL0ND0N 22. desember - 7 dagar Gisting á Cumberland Hotel. Kr. 23.300 (morgunverðarhlaðborð). Kr. 12.100 fyrir böm í gistingu með fullorðnum. K4NARIEYJAR - PUERT0 RIC0 11. desember - örfá sæti laus. 18. desember - uppselt, biðlisti. AUSTURRIKl - SKIÐAFERÐ Mayrhofen 20. desember - örfá sæti laus. FIORIDA Austurstræti 17, sími 26611. St. Pete Beach/Orlando. 18. og 20. desember - uppselt, biðlisti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.