Morgunblaðið - 23.11.1986, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1986
65
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Vilt þú lifandi starf?
Seldu þá
líftryggingu
Við bjóðum ykkur vinnu sem gefur góða
tekjumöguleika, vinnutíma sem hentar þér,
skemmtilegt og lærdómsríkt starf.
Við erum að leita að duglegu fólki, sem get-
ur unnið sjálfstætt, á auðvelt með að
umgangast fólk og hefur góða framkomu.
Þetta starf hentar mjög vel t.d.:
skólafólki.
húsmæðrum.
vaktavinnufólki o.fl.
Setjið á blað nafn, heimilisfang, aldur og
símanúmer og sendið til auglýsingadeildar
Mbl. merkt: „LÍF86" og við munum hafa
samband.
Umsjónarfóstra
Laus er til umsóknar staða umsjónarfóstru
að Félagsmálastofnun Kópavogs. Megin
verksvið er fólgið í eftirliti og umsjón með
daggæslu í heimahúsum.
Staðan veitist frá 1. jan. 1987. Umsóknar-
frestur er til 8. des. nk. Umsóknareyðublöð
liggja frammi á Félagsmálastofnun Digranes-
vegi 12.
Nánari upplýsingar veitir dagvistarfulltrúi í
síma 45700.
Félagsmálastjóri.
Svæfingalæknir
óskast
Svæfingalæknir óskast nú þegar til starfa
við Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs í 60%
stöðu.
Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags
íslands og fjármálaráðuneytis.
Búseta á Suðurnesjum er æskileg.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um
menntun og fyrri störf berist stjórn sjúkra-
húss Keflavíkurlæknishéraðs og heilsu-
gæslustöðvar Suðurnesja.
Nánari uppl. gefur undirritaður í síma 92-4000.
Fyrir hönd stjórnar sjúkrahúss Keflavíkurlækn-
ishéraðs og heilsugæslustöðvar Suðurnesja,
Eyjólfur Eysteinsson.
Ungur maður
með stúdentspróf af viðskiptabraut óskar
eftir góðu starfi á sviði verslunar eða við-
skipta. Getur byrjað strax. Tilboð óskast
send til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 28. nóv.
merkt: „Ungur maður — 1670".
Dagvist barna
í Reykjavík óskar að ráða fóstrur og aðstoð-
arfólk á eftirtalin dagvistarheimili:
★ Laugaborg við Leirulæk.
★ Brákarborg við Brákarsund.
★ Rofaborg við Rofabæ.
★ Grandaborg við Eiðsgranda.
Upplýsingar gefa forstöðumenn viðkomandi
heimila.
Véltæknifræðingur
með starfsreynslu óskar eftir spennandi
starfi. Er laus upp úr áramótum.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 27.
nóv. '86 merkt: „V - 1685".
SlMSPJÓNUSm n/f
Ef þú ert í atvinnuleit hafðu þá samband
við okkur.
Okkur vantar nú meðal annars gott fólk í
eftirtalin störf:
• Góðan verkstjóra á plötusmíðaverkstæði
helst yngri en 40 ára.
• Viðskiptafræðing af endurskoðunarsviði
eða mann vanan bókhaldsuppgjöri fyrir
góða endurskoðunarskrifstofu.
siMSNúmm n/r
BrynjólfurJónsson • Nóatún 17 105 Rvik • simi 621315
• Alhlida raöningaftjonusta
• Fyrirtækjasala
• Fjármálaráögjöf fyrir fyrirtæki
Tungumálakunnátta
Ung kona með mjög góða kunnáttu í ensku,
frönsku, þýsku og sænsku og mikla reynslu
í ýmsum ritara- og þýðendastörfum óskar
eftir góðu starfi.
Upplýsingar í síma 34099.
Karlmaður
óskar eftir vellaunuðu framtíðarstarfi. Hefur
mikla reynslu í sölumensku og verslunar-
störfum. Margt kemur til greina. Hefur bíl.
Tilboð leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrirs
28. þm. merkt: „G — 100“.
Mig bráðvantar
vinnu sem fyrst. Ég er alvön skrifstofuvinnu
ýmiss konar (vélritun, ritvinnslu, telexi, síma-
vörslu o.fl). Get unnið sjálfstætt.
Tilboð óskast sem fyrst á auglýsingadeild
Mbl. merkt. „Traust — 5004“.
Tækniteiknari
Ungan tækniteiknara vantar vinnu, get byrjað
strax. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl.
merkt: „T.T.20“ fyrir 1. des.
Sjúkraþjálfarar
Stöður tveggja sjúkraþjálfara við sjúkrahús
Akraness eru lausar til umsóknar frá
1. janúar nk.
Nánari upplýsingar um stöður þessar veitir
framkvæmdastjóri sjúkrahússins.
Sjúkrahús Akraness.
Sjúkrahús
Blönduóss
óskar að ráða í eftirtalin störf:
• Hjúkrunarfræðinga nú þegar eða eftir
samkomulagi.
• Sjúkraliða frá 1. jan. 1987.
• Sjúkraþjálfara.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri og yfir-
læknir í síma 95-4206 og 95-4207.
Félagsmálaráð Garðabæjar
Starfsfólk óskast
í Kirkjuból Garðabæ hálfan eða allan daginn.
Fóstrumenntun eða starfsreynsla æskileg.
Uppl. gefur forstöðukona í síma 656322.
Umbrot
(Lay-out)
Við erum á höttunum eftir reyndum umbrots-
manni sem hefur næmt auga fyrir leturgerð
og myndbyggingu. Hér gefst tækifæri til að
taka þátt í að móta fjölbreytt auglýsinga- og
kynningarefni fyrir hina ágætu viðskiptavini
okkar.
í umsókn skal tilgeina aldur, nám og fyrri
störf. Umsóknarfrestur er til 1. desember.
ARGUS
ALHLIÐA AUGLYSINGAÞJONUSTA
RÁÐGJÖF ÁÆTIANIR HÖNNUN
ALMENNINGSTENGSL SÍÐUMÚIA 2
128 REYKJAVÍK SÍMI 685566
Vistheimilið
Sólborg
Þroskaþjálfar! Staða deildarstjóra laus frá
1. janúar 1987.
Staða yfirmanns á skóladagheimili laus að
vori 1987.
Staða deildaþroskaþjálfa laus eftir sam-
komulagi.
Höfum milligöngu með útvegun húsnæðis.
Hafið samband og leitið eftir nánari upplýs-
ingum í síma: 96-21755 virka daga milli 8.00
og 16.30.
Fagmennska í fyrirrúmi.
Forstöðumaður.
SY.-EÐISSTJÓRN MALEFNA FATLAÐRA
NORÐIRLASDI EVSTRA
Stbrholti 1
600 AKUREYRI
Garðyrkjustjóri
Heilsuhæli NLFÍ, Hveragerði, óskar að ráða
garðyrkjustjóra frá 1. janúar 1987 eða síðar.
Starfið felst í rekstri garðyrkjustöðvar heilsu-
hælisins sem byggir á lífrænum ræktunar-
aðferðum og umsjón með lóð þess.
Launakjör samkvæmt samkomulagi.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og
garðyrkjustjóri í síma 99-4201.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun,
aldur og fyrri störf sendist framkvæmda-
stjóra heilsuhælisins. Frestur til að skila
umsóknum framlengist til 5. desember nk.
Sölumaður
Rótgróin fasteignasala í miðborginni óskar
eftir sölumanni. Þarf að hafa bíl til umráða.
Umsóknir með sem ýtarlegustum upplýsing-
um um aldur, menntun, fyrri störf o.fl. óskast
sendar auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Fasteignasala — 5007“.
Nýtt veitingahús
í miðbænum, sem tekur til starfa um mán-
aðamót, óskar eftir að ráða:
Þjóna, aðstoðarfólk í sal, aðstoðarfólk í
eldhús, uppþvott og ræstingu.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
26. nóv. merktar: „Fiskur — 5020“.
Gott tækif æri
Starfskraftur óskast í heildverslun. Starfs-
svið: tollur, verðútreikningar, fjármál og
fleira. Þarf að geta unnið sjálfstætt.
Góð laun í boði.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Góð laun — 5005“ fyrir 26. nóvember.