Morgunblaðið - 23.11.1986, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1986
51
Oddur Olafsson kjörinn heiðurs-
formaður Oryrkjabandalagsins
AÐALFUNDUR Öryrlgabanda-
lags íslands var haldinn 31.
október siðastliðinn. Fundinn
sátu fulltrúar 14 aðildarfélaga
bandalagsins auk fulltrúa þess í
stjórnarnefnd og svæðisstjórnum
um málefni fatlaðra.
í tilefni 25 ára afmælis Ör-
yrkjabandalags íslands sam-
þykkti fundurinn einróma að
kjósa Odd Ólafsson lækni og
fyrrum þingmann heiðursfor-
mann Öryrkjabandalags íslands.
Oddur hefur staðið í fylkingar-
brjósti fatlaðra hér á landi um
áratuga skeið. Hann var einn af
stofnendum Sambands íslenskra
berklasjúklinga árið 1938 og átti
drýgstan þátt í að Öryrkjabanda-
lag Islands var stofnað árið 1961.
Oddur var fyrsti formaður Ör-
yrkjabandalagsins og gegnir enn
stöðu formanns stjórnar hússjóðs
Öryrkjabandalags íslands.
A fundinum tók Amþór Helgason
við formennsku Öryrlg'abandalags
íslands, en Vilhjálmur B. Vilhjálms-
son lét af því starfi.
Aðalfundurinn samþykkti eftir-
farandi ályktanir:
Aðalfundur Öryrkjabandalags
fslands, haldinn í Reykjavík 31.
október 1986, skorar á stjómvöld
að veita fé á fjárlögum næsta árs
til þess að Tölvumiðstöð fatlaðra,
sem stofnuð var 24. október 1985,
geti tekið til starfa. Aðalfundurinn
bendir á að tölvustýrð hjálpartæki
eru helsta von fjölda fatlaðra um
aukna þátttöku í námi og starfí og
nauðsynlegt er að hér á landi starfí
sérstök miðstöð, sem safni upplýs-
ingum um hjálpartæki og aðlagi
þau íslenskum aðstæðum.
Aðalfundurinn skorar á ríkis-
stjómina að sjá til þess að öryrkjar
og aldraðir sem njóta lífeyris frá
Tryggingastofnun ríkisins fái þær
kjarabætur sem samið verður um í
væntanlegum kjarasamningum auk
þess sem lífeyrir hækki þannig að
hann nægi til framfærslu á hveijum
tíma.
Aðalfundurinn skorar á félags-
málaráðherra að hraða endurskoð-
un reglugerðar um hálfvemdaða
vinnu öryrkja, þar sem núverandi
reglugerð hefur alls ekki hvatt ör-
yrkja til að gera samninga við
fyrirtæki og Tryggingastofnun i
þeim mæli sem æskilegt væri.
Washboard þvottaker
WB 200 þvottaker er létt og fyrirferðalítið og hefur 2
gallona tank sem hægt er að dæla í eða úr kerinu
eftir þörfum.
Tilvalið fyrir ýmis verkstæði, i bílskúrinn og fleira.
Verð aðeins kr. 5448,-.
Þyrill sf.f
Tangarhöfða 7, 2. hœð, sími 685690.
sionln oavKMöttlr t>f ddl oo staMaeröi
Matreiðslubæk-
ur fyrir börn
BÓKAÚTGÁFAN Setberg gefur
út „Matreiðslubók barnanna" og
koma nú tvær bækur „Veislumat-
ur“ og „Heitir réttir".
Þetta em matreiðslubækur
samdar sérstaklega fyrir böm, texti
og teikningar eru bömunum til leið-
beiningar svo þau geti auðveldlega
fylgt uppskriftunum.
I bókunum er kennd nokkur und-
irstöðuatriði matargerðarinnar.
Sigrún Davíðsdóttir þýddi og stað-
færði.
VEISLUMATUR
I
j
Bók um blönd-
un drykkja
BÓKAÚTGÁFAN Setberg hefur
gefið út bókina „Kokkteilar og
aðrir blandaðir drykki“.
Símon Siguijónsson barþjónn
annaðist útgáfu þessarar bókar.
Litmyndir em af hverri upp-
skrift, sem em af kokkteilum,
löngum drykkjum, sterkum, léttum
og óáfengum diykkjum, Fizz og
Sting drykkjum, heitum og köldum
púns og vínbollum.
Fyrirlestur um
Þjórsárver
ÞÓRA Ellen Þórhallsdóttir held-
ur fyririestur á vegum Hins
íslenska náttúrufræðifélags nk.
mánudagskvöld.
I fyrirlestrinum verður sagt frá
Ilfí í Þjórsárvemm, dregnar verða
upp myndir af verunum á ólíkum
árstímum og rakið hvemig gróður
og umhverfisþættir breytast frá
vori, yfír sumarið og fram á haust.
Fyrirlesturinn verður i stofu 101
I Odda, hugvísindahúsi Háskólans,
og hefst kl. 20.30.