Morgunblaðið - 23.11.1986, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1986
Gestir við opnun sýningarinnar.
svipuðu má búast við hér í París.
En á öllum stöðunum er um að
ræða fjölþætta sýningarstaði þar
sem jafnan er mikil umferð af
fólki. En á tveimur fyrmefndu
stöðunum virðist myndlistarsýn-
ingin ekki hafa náð mikið til
fjölmiðla nema sem kynning á því
að þama sé opin íslensk myndlist-
arsýning. Hvað sem verður í París
þar sem samkeppnin er svo gífur-
leg.
I opnunarræðu sinni gat M.
Fourré, þess, að þetta sé síðasti
þátturinn í mikilli herferð félags-
ins France-Islande til kynningar
á íslenskri menningu á þessu
hausti, með góðri aðstoð ýmissa
aðila í báðum löndum.
Nýafstaðin
kvikmyndavika
íslenzk málaralist
Í50ár
Yfirlitssýning á íslenzkum málverkum opnuð í París
Nýlega var opnuð í París
íslenska málverkasýningin „50
ans de peinture en Islande“, að
viðstöddum sendiherra íslands
Haraldi Kröyer og formanni
félagsins France-Islande, þing-
manninum Jean Pierre Fourré,
sem opnaði sýninguna form-
lega. Þessi sýning á 29 verkum
úr eigu og lánuð af Listasafni
íslands, hefur þegar veríð á
tveimur stöðum úti á landi í
Frakklandi við góða aðsókn á
báðum stöðum, í Saint Malo og
La Rochelle. í Paris er sýningin
í hinu nýja visindasetrí í Vil-
ette, í svokölluðum Grande
Halle, þar sem eru tónlistarsal-
ir og sýningarsalir af ýmsu tagi
og mikil umferð fólks. Þar sem
sýningin var komin á skrá á
staðnum komu 200 manns
þangað þegar daginn fyrír opn-
unina og var hleypt inn, svo
búast má við verulegrí aðsókn.
Þessi íslenska málverkasýning
er sett upp með aðstoð franska
mennta- og samgöngumála-
ráðuneytisins.
Þessi sýning í París nær yfír
50 ára feril íslenskrar myndlistar,
allt frá brautryðrjendunum þremur
Kjarval, Ásgrími og Jóni Stefáns-
syni og fram á okkar dag til
yngstu málaranna Jóns Axels
Bjömssonar og Jóhönnu Yngva-
dóttur, sem fædd eru eftir 1950.
Eru þar verk 22 málara, stórar
mjmdir en aðeins 1—2 eftir hvem
þeirra. Og eins og Selma Jóns-
dóttir segir í sýningarskrá getur
slík sýning og svo takmörkuð að
stærð ekki gefið nema ófullkomna
mynd af þessu 50 ára tímabili,
sem hefur verið einstaklega frjó-
samt í islenskrí listasögu. En S
sérstaklega vandaðri sýningar-
skrá, sem íslenska sendiráðið
gekk frá, eru litmyndir af verkum
allra listamannanna. Þeir eru í
stafrófsröð: Ásgrímur Jónsson,
Bragi Ásgeirsson, Einar Hákonar-
son, Erro, Finnur Jónsson,
Gunnar Öm Gunnarsson, Gunn-
laugur Scheving, Jóhann Briem,
Jóhanna Kristín Ingvadóttir, Jó-
hannes Jóhannesson, Jón Axel
Bjömsson, Jóhannes Kjarval, Jón
Stefánsson, Jón Þorleifsson, Jón
Engilberts, Karl Kvaran, Kristján
Davíðsson, Nína Tryggvadóttir,
Snorri Arinbjamar, Svavar
Guðnason, Þorvaldur Skúlason,
Valtýr Pétursson. Eru allir þessir
málarar kynntir í skránni og stutt
greinargerð um íslenska málara-
list.
Sýningin opnuð af franska þingmanninum Jean Pierre Fourré, sem er formaður félagsins France-
Islande. T.v. er Haraldur Kröyer, sendiherra.
Nýafstaðin er íslensk kvik-
myndavika í einu af kvikmynda-
húsum Parísar, þar sem sýndar
vom sex íslenskar kvikmyndir og
boðið var frá íslandi tveimur kvik-
myndagerðarmönnum, til um-
ræðna við áhorfendur eftir
sýningu á „Land og synir" á laug-
ardagskvöldið, þeim Kristínu
Jóhannesdóttur og Ágústi Guð-
mundssyni. Var aðsókn um 1.200
manns, og ágætar umræður um
íslenska kvikmyndalist.
í janúar mun útvarpið „France
Musique" senda út upptöku á tón-
leikum Eddu Erlendsdóttur
píanóleikara hér í París nýlega,
þar sem hún leikur m.a. verk eft-
ir íslensk tónskáld. En þetta
tónlistarútvarp kynnti íslenska
músík í dagskrá sinni í eina viku
í október í blönduðum þáttum.
Hafði Gunnar Snorri Gunnarsson
sendiráðunautur útvegað og valið
með þeim tónlistina. En enn hefur
ekki verið sett á dagskrá menn-
ingardagskrá í útvarpinu „France
Culture" um íslenskar bókmenntir
og listir, sem búið er að taka upp
með viðtölum við íslensk skáld og
listamenn, byggt á dagskránni frá
La Rochelle.
Safnast þegar saman kemur
og óhætt er að segja að þessi
kynning á íslenskri menningu í
FVakklandi á þessu ári hefur teygt
anga sína víða og náð til margra.
Það hefur verið ánægjulegt að fá
tækifæri til að fylgjast með því
og hitta á sýningunum margt
áhugasamt fólk um Island og
íslenska menningu, sem hefur við
þetta átak fengið hvatningu sem
eflaust á eftir að dreifa út frá sér.
Þótt framtaki France-Islande
sé að ljúka mun myndlistarkynn-
ing frá íslandi ná fram á &nr
Guðmundur Thoroddsen, myndlistarmaður, og Laufey Helgadótt-
ir, listfræðingur, sem settu sýninguna upp.
Málverk ljósmyndað á sýningunni.
! Grande Halle í La Vilette tek-
ur þessi sýning sig ákaflega vel
út, miklu betur en á hinum stöðun-
um, enda er þama nægt rými og
þar sem sýningarrýmið er langt
og tengt með göngubrú þá er
hægt um leið að fá mikla fjarlægð
á myndir, svo sem mynd Gunn-
laugs Schevings af bátum að
koma í höfn, myndir Jóhanns
Briem annars vegar og nokkrar
abstraktmyndir hins vegar. En
það sem eínkum ræður úrslitum
um það hve þessi sýning svo sund-
urleitra mynda verður þama
falleg, er að þeim Laufeyju
Helgadóttur listfræðingi, Guð-
mundi Thoroddsen listmálara og
Elísabetu Gunnarsdóttur arkitekti
hefur tekist að tengja málverkin
í listfræðilegt samhengi og gefa
hveiju þeirra nauðsynlegt rými.
En þau Laufey og Guðmundur
munu vera allan tímann á víxl á
sýningunni til gæslu og upplýs-
inga á vegum félagsins France-
Islande.
í San Malo opnaði sýningin í
sumar í sambandi við minningar-
hátíð um dr. Charco í menningar-
miðstöð sem gerð hefur verið þar
í gamalli komhlöðu „Halle au
Ble“. Samkvæmt fréttum frá
Rachel Guilleuz, sem þar setti upg
sýninguna, var hún vel sótt. í
Rochefort, þar sem sýningin teng-
ist aldarafmæli bókar Lotis um
frönsku fiskimennina, koma einn-
ig fréttir af mjög góðri aðsókn,
en þar vom þijár íslenskar sýning-
ar á bókmenntum, ljósmyndum
og myndlist í gangi í einu. Og
1987, því í febrúar verður opnuð
Norðurlandasýning á verkum
myndlistarmanna, sem fæddir em
fyrir aldamót, í Petit Palais í mið-
borg Parísar. Og þar verða verk
eftir Þórarin B. Þorláksson, sem
alltof sjaldan hefur verið kynntur
erlendis, en tilheyrir kynslóð Ed-
vards Munchs o.fl., sem verða á
sýningunni í Petit Palais. Verður
þá búið að spanna að mestu mynd-
listarferil íslendinga til kynningar
í listaborginni París að þessu
sinni.